Spegillinn 4.10.23 Loðnubrestur, fiskeldi, Svíþjóð, Súdan og sveitin episode artwork

EPISODE · Oct 4, 2023 · 30 MIN

Spegillinn 4.10.23 Loðnubrestur, fiskeldi, Svíþjóð, Súdan og sveitin

from Spegillinn

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart. Villti laxastofninn á að njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum að stefnu um lagareldi. Heimildir til sjókvíaeldis gætu orðið að engu, hafi reglulegt strok úr kvíum mikil áhrif á villta laxinn. Matvælaráðherra segir stefnt á að hækka auðlindagjöld í sjókvíaeldi nær því sem tíðkast í nágrannalöndunum Noregi og Færeyjum. Formaður tollvarðafélags Svíþjóðar segir glæpaölduna í landinu ekki koma á óvart enda flæði fíkniefni inn í landið vegna niðurskurðar í landamæraeftirliti. Ung kona í breska hernum svipti sig lífi vegna linnulausar kynferðislegrar áreitni frá yfirmanni sínum. ---- Stefnumótun fyrir umgjörð og uppbyggingu lagareldis á og við Ísland til ársins 2040 var kynnt í morgun og sett inn í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Fjallað er um allt í senn landeldi, sjókvíaeldi, úthafseldi og þörungarækt en að vanda er það sjókvíaeldið sem fangar athyglina, enda ýmislegt þar sem betur má fara, samkvæmt nýlegum úttektum þar á. Fólki sem flýr frá Súdan yfir landamærin til Suður-Súdans fjölgar stöðugt. Borgarastríð hefur geisað í landinu frá því um miðjan apríl, kostað á áttunda þúsund lífið og hrakið yfir fimm milljónir á flótta, þar af tvær komma átta milljónir íbúa höfuðborgarinnar Khartoum. Eitt af hverjum tíu börnum sem send voru í sveit á árum áður varð fyrir eða varð vitni að ofbeldi meðan á dvöl stóð. Prófessor við Háskóla Íslands segir erfiðisvinnu, afskiptaleysi og líkamlegar refsingar meðal þess sem sé þessum hópi minnisstætt.

NOW PLAYING

Spegillinn 4.10.23 Loðnubrestur, fiskeldi, Svíþjóð, Súdan og sveitin

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on October 4, 2023.

What is this episode about?

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart. Villti laxastofninn á að njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum að stefnu um...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!