EPISODE · Jun 9, 2026 · 20 MIN
Spegillinn 9. júní 2026 Skautun í pólitískri umræðu og bálfarir
from Spegillinn
Þegar rætt er um samfélagsmál og stjórnmál eru oftar en ekki viðraðar áhyggjur af skautun, skautun orðræðu og samfélagsins sem ali á sundrungu og vegi að rótum lýðræðisins, sérstaklega segja menn þetta reyndar um málflutning þeirra sem eru á öndverðri skoðun í málum, en ólíkar skoðanir og ágreiningur um mál þarf ekki að vera neikvæður. Það er gagnlegt að greina á milli ólíkra tegunda skautunar, segir Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem hefur rannsakað skautun í stjórnmálum í íslensku kosningarannsókninni. Andlátum fjölgar um 100% á næstu 20 árum. Þetta kemur fram í gögnum kirkjugarðaráðs sem hefur yfirumsjón með yfir 350 kirkjugörðum um allt land. Bálförum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Kirkjugarðaráð segir það gríðarlegt hagsmunamál fyrir bæði ríki og sveitarfélög að sem flestir velji bálför að þessu jarðlífi loknu.
Embed this episode
Ready to play
Spegillinn 9. júní 2026 Skautun í pólitískri umræðu og bálfarir
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.