Staða innflytjenda í Reykjavík, öfgar og umræða episode artwork

EPISODE · Jul 28, 2025 · 10 MIN

Staða innflytjenda í Reykjavík, öfgar og umræða

from Spegillinn

Haldinn var aukafundur í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 24. júlí. Tilefnið var það sem í fundargerð er kallað nýjar vendinga í umræðunni um stöðu innflytjenda í borginni. Með því er vísað til þess, þegar hópur manna fylkti liði í miðborg Reykjavíkur um næstliðna helgi, allir klæddir samskonar bolum með áletruninni Skjöldur Íslands og þýskum járnkrossi, sem er alþekkt tákn í heimi hægri-öfgahreyfinga. Aðspurðir sögðust þeir vera að „taka stöðuna á leigubílamarkaðnum.“ Af færslum á Facebook-síðu hópsins mátti ráða að þessi stöðutaka hafi einkum beinst að erlendum leigubílstjórum og þá sér í lagi þeim sem ólíkastir eru hinum íslensku Jóni og Gunna í sjón og þá umfram allt dekkri á hörund. Í fundargerð mannréttindaráðs segir að samstarfsflokkar mannréttindaráðs lýsi yfir þungum áhyggjum af því að öfgahópar merktir þekktum fasískum táknum skuli taka sér hlutverk lögreglu og ógna íbúum, einkum íbúum af erlendum uppruna. Fulltrúar minnihlutans taka undir áhyggjur meirihlutans af því að einstaklingar og hópar í samfélaginu taki lögin í sínar hendur og leggja áherslu á að ofbeldisfullir öfgahópar skuli hvorki liðnir né eiga sér samastað í íslensku samfélagi. Alexander Kristjánsson fréttamaður hitti Sabinu Leskopf, formann mannréttindaráðs að máli Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

NOW PLAYING

Staða innflytjenda í Reykjavík, öfgar og umræða

0:00 10:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 10 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on July 28, 2025.

What is this episode about?

Haldinn var aukafundur í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 24. júlí. Tilefnið var það sem í fundargerð er kallað nýjar vendinga í umræðunni um stöðu innflytjenda í borginni. Með því er vísað til þess, þegar hópur manna fylkti liði í...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!