Stjórnarskrármál í sjálfheldu, varnargarður rís, kjörstærð 20.000 episode artwork

EPISODE · Jan 2, 2024 · 20 MIN

Stjórnarskrármál í sjálfheldu, varnargarður rís, kjörstærð 20.000

from Spegillinn

Guðni Th. Jóhannesson forseti segir að að það yrði undarleg niðurstaða að ráðast í breytingar á stjórnarskrá nú en hrófla ekki við kaflanum um þjóðhöfðingjann. Stjórnarskrármál á Íslandi séu í sjálfheldu og kaflinn um forsetann hafi þarfnast endurskoðunar frá stofnun lýðveldis. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður tók forseta tali í dag í kjölfar þess að hann tilkynnti í nýársávarpi sínu að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér í embættið á ný. Framkvæmdir eru hafnar við varnargarð norðan við Grindavík. Unnið verður allan sólarhringinn. Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna segir gert ráð fyrir að á næstu tveimur vikum takist að koma garðinum að mestu leyti í þá hæð sem þarf til í bili. Viðamikil könnun meðal íbúa íslenskra sveitarfélaga sýnir að þjónustan er almennt betri í fjölmennari sveitarfélögum en fámennari. Vífill Karlsson sérfræðingur í byggðarannsóknum segir margt erfiðara í fámennum samfélögum og að hröð þróun og auknar kröfur um þjónustu krefjist sérfræðiþekkingar sem fámenn dreifbýlissveitarfélög ráði illa við. Kjörstærð sveitarfélags gæti verið um tuttugu þúsund íbúar. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Kári Guðmundsson.

NOW PLAYING

Stjórnarskrármál í sjálfheldu, varnargarður rís, kjörstærð 20.000

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 2, 2024.

What is this episode about?

Guðni Th. Jóhannesson forseti segir að að það yrði undarleg niðurstaða að ráðast í breytingar á stjórnarskrá nú en hrófla ekki við kaflanum um þjóðhöfðingjann. Stjórnarskrármál á Íslandi séu í sjálfheldu og kaflinn um forsetann hafi þarfnast...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!