EPISODE · Jun 29, 2026 · 15 MIN
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður
from Þetta helst
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100. Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestingarfélagið Stoðir er einn stærsti hluthafi beggja þessara fyrirtækja. Stoðir eru langstærsti hluthafi Arctic Adventures með tæplega 42 prósenta hlut og fyrirtækið er þriðji stærsti hluthafi Bláa lónsins með 7,3 prósenta hlut. Fjallað er um stærð Stoða í íslensku viðskiptalífi í dag og er saga félagsins rifjuð upp. Rætt er við fjármálagreinandann Snorra Jakobsson og Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.