Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni episode artwork

EPISODE · Nov 11, 2024 · 53 MIN

Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni

from Víðsjá

„Ég stend svona eins og strá fyrir straum og segi með Gretti, ber er hvur að baki nema bróður eigi" - Þetta skrifar Sigríður Pálsdóttir bróður sínum, Páli Pálssyni, skrifara á Stapa, árið 1865. Í bréfasafni Páls hafa varðveist um 250 bréf frá Sigríði á yfir 50 ára tímabili og bréfin eru grunnurinn að nýrri ævisögu Sigríðar, Strá fyrir straumi, sem kemur út á morgun. Bókina skrifar sagnfræðingurinn Erla Hulda Halldórsdóttir og um er að ræða tímamótaverk, þar sem ævisagan veitir heildstæða mynd af hinni söguríku 19. öld, en frá sjónarhorni konu. Þar er staldrað við aðra hluti en í ævisögum karla og fjallað um hið stóra og smáa: Ást, börn og bónorð, líf og dauða, bækur og sjúkdóma, hunda og hordauðar kindur, svo fátt eitt sé nefnt. Erla Hulda segir okkur nánar af bókinni í þætti dagsins. Við höldum okkur á tengdum miðum, en þó af allt öðrum meiði, í síðari hluta þáttar, þegar við kynnum okkur íslenska hönnunarverkefnið Flothettu. Vöruhönnuðurinn Unnur Valdís Kristjánsdóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við Flothettu en flotmeðferðin var tilnefnd til hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Kolbrún Vaka Helgadóttir mælti sér mót við Unni Valdísi í Vesturbæjarlauginni til að fá að vita meira um Flothettu og uppruna hugmyndarinnar. Sölvi Halldórsson rýnir í nýútkomna bók Steinunnar Sigurðardóttur, Skálds sögu, þar sem höfundurinn veitir innsýn í eigin hugarheim, ytri og innri aðstæður og aðferðir við skriftir með 74 köflum úr höfundarlífinu. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 11, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni

0:00 53:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 53 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on November 11, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!