Stríðsbjarmar, Kúbudeilan og Aksturslag innfæddra episode artwork

EPISODE · Feb 3, 2024 · 50 MIN

Stríðsbjarmar, Kúbudeilan og Aksturslag innfæddra

from Bara bækur

„Svo heldur heimsstyrjöldin áfram til sívaxandi blessunar fyrir land og þjóð, enda af mörgum aldrei nefnd annað en blessað stríðið,“ segir í Sjálfstæðu fólki. Þegar kemur að stríðsátökum hefur litla herlausa þjóðin hér á Íslandi upplifað stríðstíma úr fjarlægð en þó ekki mikilli því þeir rata oft heim á endanum og það vitum við. Við ætlum að taka fyrir tvær bækur sem komu út í lok síðasta árs og glíma við stríð. Önnur er um örlagaríka atburði kalda stríðsins og hin er skrifuð um atburði sem standa okkur nær í tíma, og gerast nánar til tekið í rauntíma: stríð í Úkraínu. Við rýnum í bækurnar Kúbudeilan eftir Max Hastings í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, og Stríðsbjarmar eftir Val Gunnarsson. Magnús og Valur verða gestir þáttarins. En hefjum leika á allt öðru: sögum af fólki, sögum fjarri stríði. Þórdís Gísladóttir skáld og þýðandi sendi frá sér nýtt smásagnasafn á síðasta ári, Aksturslag innfæddra sem geymir sjö smásögur sprottnar úr raunveruleikanum. Þórdís sendi þar að auki frá sér tvær þýðingar á síðasta ári: Smáatriðin eftir Ia Genberg og Gift eftir Tove Ditlevsen. En í Aksturslagi innfæddra má finna glefsur inn í líf fólks úr ólíkum áttum frá ólíkum tímum. Við fyrstu sýn eru atburðirnir í Aksturslagi innfæddra hversdagslegir og jafnvel smávægilegir en þeir endurspegla stærri hliðar tilverunnar og vekja upp spurningar um það hver við erum og hvort við þekkjum aðrar manneskjur til fulls. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

NOW PLAYING

Stríðsbjarmar, Kúbudeilan og Aksturslag innfæddra

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on February 3, 2024.

What is this episode about?

„Svo heldur heimsstyrjöldin áfram til sívaxandi blessunar fyrir land og þjóð, enda af mörgum aldrei nefnd annað en blessað stríðið,“ segir í Sjálfstæðu fólki. Þegar kemur að stríðsátökum hefur litla herlausa þjóðin hér á Íslandi upplifað stríðstíma...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!