Sumar-Heimskviður - Íþróttir episode artwork

EPISODE · Jul 18, 2026 · 44 MIN

Sumar-Heimskviður - Íþróttir

from Heimskviður

Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050. Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því. Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jul 18, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Sumar-Heimskviður - Íþróttir

0:00 44:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 44 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on July 18, 2026.

Can I download this Heimskviður episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!