EPISODE · Jul 25, 2026 · 53 MIN
Sumar-Heimskviður - Sjónvarp
from Heimskviður
Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru meðal kyndilbera á vetrarólympíuleikunum og hafa dúkkað upp á öllum helstu rauðu dreglum ársins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að sjónvarps og tónlistarstöðin góðkunna MTV væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Birta Björnsdóttir skoðaði sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn
Embed this episode
NOW PLAYING
Sumar-Heimskviður - Sjónvarp
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.