Skip to content
Sundraðar þjóðir sameinast episode artwork

EPISODE · Mar 19, 2022 · 18 MIN

Sundraðar þjóðir sameinast

from Óli Björn - Alltaf til hægri · host olibjorn

Í skjóli veik­lynd­is og klofn­ings Vest­ur­landa taldi Pútín sér óhætt að leggja til atlögu og ráðast inn í fullvalda ríki. Þegar frjálsar þjóðir verða efnahagslega og pólitískt háðar landi sem stjórnað er af hrotta, sem hefur leikreglur lýðræðis að engu og virðir fullveldi nágrannaríkja að vettugi, eiga þær á hættu að verða berskjaldaðar gagnvart yfirgangi. Leiða má rök að því að Pútín hafi nýtt sér sinnuleysi og fullkomið ábyrgðarleysi þjóða Evrópusambandsins og þá sérstaklega Þýskalands í orkumálum. Kæruleysi og barnaskapur forysturíkja Evrópusambandsins í varnarmálum á síðustu áratugum hefur opinberast með afgerandi hætti eftir innrásina í Úkraínu. Sambandið hefur hvorki hernaðarlega burði né pólitískt þrek til að tryggja varnir aðildarlanda. Öryggi Evrópu og þar með Evrópusambandsins byggist á öflugu varnarsamstarfi Atlantshafsbandalagsins. Lærdómurinn frá hryllingi borgarastríðsins í Bosníu er ekki ofarlega í huga þeirra sem af léttúð telja Evrópusambandið hafa tryggt frið í Evrópu. Þá reyndist Evrópusambandið fullkomlega ófært um að koma á friði í bakgarði sínum. Friður komst ekki á fyrr en Bandaríkin létu til sín taka með bakstuðningi NATÓ. Það er því í besta falli smekklaust að eins máls flokkar reyndi að nýta sér innrás Rússa í Úkraínu til að boða hina endanlegu og einu lausn allra vandamála; aðild að Evrópusambandinu, með þeim rökstuðningi að verið sé að tryggja varnar- og öryggishagsmuni Íslands. Í þeirri von að loksins rætist draumurinn ESB-aðild er hoppað á vagn hræðsluáróðurs. Einu sinni var það evran sem öllu átti að bjarga hér á landi og nú á Evrópusambandið að tryggja öryggi landsins gagnvart utanaðkomandi ógn.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 19, 2022

Embed this episode

Ready to play

Sundraðar þjóðir sameinast

0:00 18:16

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Óli Björn - Alltaf til hægri?

This episode is 18 minutes long.

When was this Óli Björn - Alltaf til hægri episode published?

This episode was published on March 19, 2022.

Can I download this Óli Björn - Alltaf til hægri episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!