EPISODE · May 11, 2026 · 20 MIN
Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi
from Spegillinn
Hart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum. Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn eru 302.688 manns. Það er kosið í 57 sveitarfélögum, kjörstaðir eru 129 og kjördeildirnar 293. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar skrifaði í grein á Vísi um helgina að ekki væri fjarri lagi að áætla að 1.400 til 1.500 manns yrðu að störfum í kjördeildum á laugardaginn. Og fjöldi þeirra sem komi með einum eða öðrum hætti að undirbúningi og framkvæmd kosninganna hlaupi á þúsundum og handtökin séu nánast óteljandi.
Embed this episode
NOW PLAYING
Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.