Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir episode artwork

EPISODE · Feb 21, 2026 · 52 MIN

Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir

from Bara bækur

Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum. Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum. Hann fæddist í frönsku nýlendunni Santki Dominík í Vestur-Indíum, þar sem nú er Haítí. Faðir hans var franskur aðalsmaður, hvítur þrælahaldari en móðir hans var þræll hans, svört kona af óþekktum afrískum uppruna. Alexandre Dumas ólst upp föðurlaus og í sárafátækt hjá móður sinni og varð svo einn afkastamesti og frægasti rithöfundur Frakka fyrr og siðar. Faðirinn sem hann fékk ekki að kynnast var samt goðsögn í augum Dumas og var hann innblástur að mörgum af persónunum í bókunum. Bækur Dumas, sem sumar fara að nálgast 200 ára aldur, eru enn þá gríðarlega vinsælar og mikið þýddar og Dumas er á topplista yfir mest þýddu höfunda sögunnar. Sögurnar hafa líka orðið reglulega innblástur fyrir bíó, sjónvarp og leikhús. Ein þessara bóka, Greifinn af Monte Cristo, verður einna mest í brennidepli í dag. Viðmælendur: Ragnhildur Helgadóttir, Sigurjón Bergþór Daðason og Guðrún Kristinsdóttir.

NOW PLAYING

Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir

0:00 52:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 52 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on February 21, 2026.

What is this episode about?

Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!