Svipmynd af myndlistarmanni / Amanda Riffo episode artwork

EPISODE · Apr 3, 2024 · 48 MIN

Svipmynd af myndlistarmanni / Amanda Riffo

from Víðsjá

Amanda Riffo hlaut á dögunum íslensku myndlistarverðlaunin fyrir sýningu sína House of Purkinje í Nýlistasafninu, sýningarstjóri var Sunna Ástþórsdóttir. Amanda er frönsk-sílesk myndlistarkona sem hefur verið búsett í Reykjavík í rúman áratug. Hún ólst að hluta til upp í franskri sveit en fluttist snemma á lífsleiðinni með fjölskyldu sinni til Parísar. Myndlist lék ekki ýkja stórt hlutverk í uppeldi hennar en heimsóknir á söfn og gallerí í París voru tíðar og í raun venjubundnar hjá fjölskyldu hennar. Hún nam við Háskóla hinna fögru lista í París en sá skóli bauð á námsárum hennar upp á ótrúlegt frelsi fyrir nemendur sína sem krafðist þess að þeir skipulögðu sig sjálfir eða flosnuðu upp úr námi. Amanda segist hafa flutt til Íslands fyrir slysni, en hugmyndin að koma hingað í listamannadvöl kviknaði eftir að hún fór á litla íslenska tónlistarhátíð í París um 2007. Hún ætlaði að vera hér í nokkra mánuði en tíminn hljóp frá henni. Samkvæmt dómnefnd myndlistaverðlaunanna: Á sýningunni House of Purkinje samstillir Amanda ólíkar frásagnir á afar snjallan hátt, allt frá þekkingarfræði og ljósfræði, í gegnum eigin reynslu sína af listtengdu bútasaums-hagkerfi til gagnrýnnar skynjunar á samtímalistinni og gangverki þess. Það er mat dómnefndar að House of Purkinje sé einstaklega áhugaverð sýning sem virðist í upphafi vera hlé á uppsetningarferli sýningar á meðan hvert smáatriði í glundroða slíkra ferla er listaverk, sem endurspeglar á snjallan hátt vinnusiðferði innan listheimsins og skapar breyttan veruleika þar sem hver hlutur er sviðsett útgáfa af sjálfum sér, rétt eins og á kvikmyndasetti.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 3, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Svipmynd af myndlistarmanni / Amanda Riffo

0:00 48:08

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 48 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on April 3, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!