EPISODE · Mar 13, 2024 · 51 MIN
Svipmynd af rithöfundi / Margrét Tryggvadóttir
from Víðsjá
Margrét Tryggvadóttir fæddist í Kópavogi 1972. Hana langaði til að læra myndlist en fór í Verslunarskólann til að vera skynsöm og svo í bókmenntafræði við Háskóla Íslands því hana langaði til að vinna sem ritstjóri. Hún hefur unnið með texta og myndir nær allar götur síðan, sem ritstjóri, myndritstjóri og höfundur. Margrét hefur gefið út fjölda bóka fyrir börn og ungmenni og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir. Í vetur gaf hún út tvær bækur, Stolt, sem er sjálfstætt framhald Sterk, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2021, og bókina Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina en fyrir hana hlaut Margrét Fjöruverðlaunin á dögunum. Margrét verður gestur okkar í Svipmynd dagsins.
Embed this episode
NOW PLAYING
Svipmynd af rithöfundi / Margrét Tryggvadóttir
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.