EPISODE · Jan 10, 2024 · 47 MIN
Svipmynd af skáldi / Gerður Kristný
from Víðsjá
Í dag verður dregin upp svipmynd af skáldi sem nýverið hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, Gerði Kristnýju. Gerður Kristný ólst upp í Háaleitishverfinu og stefndi á að verða myndlistarmaður eða jafnvel barnaskólakennari þegar hún yrði stór. Barnaskólakennari sem gæfi út barnabækur. Því frá unga aldri hafði hún gaman að því að semja vísur og sögur. Gerður lærði frönsku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands og síðar nám í hagnýtri fjölmiðlun við sama skóla og árið 1994 gaf Gerður út sína fyrstu ljóðabók, Ísfrétt. Hún var ritstjóri Mannlífs í 6 ár og hlaut 2005 Blaðamannaverðlaun fyrir bókina Myndin af pabba - Saga Thelmu. Gerður hefur starfað sem rithöfundur í fullu starfi frá 2004 og skrifar hún jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir.
Embed this episode
NOW PLAYING
Svipmynd af skáldi / Gerður Kristný
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.