Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir episode artwork

EPISODE · Oct 2, 2024 · 53 MIN

Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir

from Víðsjá

Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Lilja bæði skrifar og leikstýrir. Hún á að baki fjölda stuttmynda og einnig fjórar kvikmyndir sem hún var handritshöfundur að, og segir Lilja sjálf að hún líti fyrst og fremst á sig sem handritshöfund, hún sé leikstýrandi handritshöfundur. Lilja er dóttir norska þýðandans Tone Myklebost, sem er margverðlaunuð fyrir þýðingar úr íslensku yfir á norsku, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011. Hún ólst upp bæði á Íslandi og í Noregi en lærði kvikmyndagerð í London og Prag. Hún bjó um tíma í París þar sem hún gerði yfir 20 stuttmyndir en býr í dag í Osló þar sem hún kennir við kvikmyndaháskólann og elur upp börnin sín fjögur auk þess að starfa við kvikmyndagerðina. Lilja Ingólfsdóttir, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, er gestur okkar í svipmynd dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 2, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir

0:00 53:04

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 53 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on October 2, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!