Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46) episode artwork

EPISODE · Jul 15, 2026 · 19 MIN

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla

Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn.Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið.Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki.Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka.Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jul 15, 2026

Embed this episode

Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að ky...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

NOW PLAYING

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

0:00 19:44

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 19 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on July 15, 2026.

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!