EPISODE · Jul 8, 2026 · 54 MIN
Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák
from Við skákborðið · host Útvarp Saga
Kristján Örn Elíasson ræðir við Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák, um þróun byggðarmála í Reykjavík og áhrif skipulags, byggingarreglna og húsnæðisstefnu á kostnað og gæði íbúðabyggðar.Í upphafi þáttarins ræða þeir félagar um skák og snúa svo aftur að henni undir lok þáttarins. Þar sem Björgvin er byggingarverkfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri og fjölbreyttri starfsreynslu og er jafnframt tíður gestur skákþáttarins, var ákveðið að fara að þessu sinni verulega út fyrir hefðbundið efni þáttarins og ræða skipulagsmál í Reykjavík.Í viðtalinu segir Björgvin að núverandi þróun hafi leitt til dýrari framkvæmda, sem geri almenningi sífellt erfiðara fyrir að byggja eigið húsnæði. Hann segir jafnframt að ef hann kæmi að ákvörðunum um skipulagsmál myndi hann láta endurskoða Borgarlínuverkefnið áður en lengra yrði haldið. Að hans mati ætti að kanna hvort unnt væri að ná betri árangri með öðrum og ódýrari úrræðum sem auðvelduðu umferð um höfuðborgarsvæðið.Þrátt fyrir mikilvægi almenningssamgangna telur Björgvin jafnframt nauðsynlegt að horfa til þess að stór hluti fjölskyldna þurfi áfram að reiða sig á einkabílinn vegna vinnu, skóla, íþrótta og annarra daglegra ferða.Í lok þáttarins fara þeir yfir helstu skákfréttir og kosningarnar til stjórnar European Chess Union (Evrópska skáksambandsins), sem fara fram laugardaginn 18. júlí 2026 í Búkarest í Rúmeníu samhliða aðalfundi sambandsins (General Assembly). Þar er Gunnar Björnsson, framkvæmdastjóri Skáksambands Íslands, í framboði til embættis gjaldkera sambandsins.
Embed this episode
Ready to play
Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.