Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar episode artwork

EPISODE · Jan 8, 2025 · 20 MIN

Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

from Spegillinn

Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn að beita afli gegn Dönum ef þeir mögluðu, og útilokaði reyndar ekki þegar blaðamaður spurði hvort til greina kæmi að beita hervaldi. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðastjórnmálum, sem segir að þótt ekki beri að taka orð Trumps bókstaflega, þá sé fyllsta ástæða til að taka þau alvarlega. Í raforkuspá fyrir næstu 25 ár gerir Landsnet ráð fyrir stóraukinni þörf á orku til framleiðslu rafeldsneytis. Tvö stór verkefni eru í undirbúningi ár sem ætlunin er að nota vindorku til að framleiða vetni og ammoníak. Gnýr Guðmundsson, forstjóri kerfisþróunar hjá Landsneti, segir þróun rafeldsneytis ganga hægt, eftirspurnina vera óvissa og mörgum spurningum enn ósvarað. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman. Það vakti nokkra athygli í haust þegar starfandi fangelsismálastjóri boðaði nokkuð umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá stofnuninni. Ástæðan var 8 milljóna króna gat í fjármögnun á rekstri stofnunarinnar. Í greinargerð sem sviðsstjóri reksturs og fjármála hjá Fangelsismálastofnun sendi dómsmálaráðuneytinu kemur fram að rekstraráætlunin sem skilað var hafi sýnt ágæta niðurstöðu innan fjárveitingaramma - en að . þegar fjárlagafrumvarpið hafði verið samþykkt hafi komið í ljós, „talsverður misskilningur“. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

NOW PLAYING

Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on January 8, 2025.

What is this episode about?

Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!