Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu episode artwork

EPISODE · Feb 13, 2025 · 20 MIN

Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu

from Spegillinn

„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og varnarmálaráðherra hans um friðarviðræður við Rússa, útlokun á NATO-aðild Úkraínu og fleira, vöktu mikil viðbrögð meðal bandamanna Bandaríkjanna í NATO. Ævar Örn Jósepsson fer yfir helstu ágreiningsmál og Björn Malmquist ræðir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, sem sótti hvorutveggja fund varnarmálaráðherra NATO í dag og stuðningsríkja Úkraínu í Brussel í gær. Landspítalinn er stærsta stofnun ríkisins - þar vinna sex þúsund og þrjú hundruð manns og árlega renna þangað hundrað milljarðar, sirka sjö prósent af heildarútgjöldum. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, sendi forsætisráðherra og fjármálaráðherra hagræðingartillögur í lok janúar, að beiðni ráðherranna. Hann segir Landspítalann alltaf þurfa meira fé því verkefnin séu alltaf að aukast og það sé ekkert sér-íslenskt vandamál heldur þekkist líka í nágrannalöndunum. Stöðugt sé verið að reyna hagræða innan spítalans til að geta aukið þjónustu. Freyr Gígja Gunnarsson talaði við Runólf. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

NOW PLAYING

Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on February 13, 2025.

What is this episode about?

„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!