Tumi Magnússon/svipmynd episode artwork

EPISODE · Jan 28, 2026 · 47 MIN

Tumi Magnússon/svipmynd

from Víðsjá

Tumi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957 en ólst upp við jaðar Mosfellsbæjar í stórum bræðrahóp. Á heimilinu var myndlist upp um alla veggi og hugur Tuma stefndi alltaf í þá átt. Hann fór í Myndlista og handíðaskólann en ákvað að hætta eftir fornámið og klára námið í Hollandi. Hann langaði í nýtt umhverfi en svo hafði það líka áhrif að faðir hans, myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson, var þarna orðin lykilmaður í kennslu við skólann. Magnús varaði son sinn reyndar við því að feta þessa leið en Tumi tók ekki mikið mark á því. Hann er ekki mikið gefinn fyrir að staðsetja sig á einum stað í listinni, en aðspurður segist hann kannski alltaf vera á slóðum konseptlistarinnar, og að kannski megi líka tengja hann við Fluxus hreyfinguna. Tími, skynjun og hversdagslegar athafnir eru meðal hans helstu viðfangsefna og oft má greina leikgleði og húmor í verkunum. Meðfram listinni hefur Tumi kennt bæði við Listaháskóla Íslands og við Konunglegu dönsku listaakademínuna en hann hefur búið í Kaupmannahöfn síðustu 20 árin. Frá sinni fyrstu sýningu á Akureyri 1981 hefur Tumi verið ötull í sýningarhaldi, hér á landi og víða um heim. Um þessar mundir sýnir hann í Listasafni Reykjanesbæjar og kallast sýningin Héðan þaðan þangað hingað.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 28, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Tumi Magnússon/svipmynd

0:00 47:56

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 47 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on January 28, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!