Skip to content
Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld episode artwork

Jun 4, 2024 53 min

Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld

from Víðsjá

Davíð Örn Halldórsson hefur fyrir löngu skapað sér sess í íslensku myndlistarlífi. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2002 og hefur síðan haldið fjölda einkasýning hér og erlendis. Verk Davíðs eru jafnan litrík abstrakt málverk, þar sem birtast vísanir í óvæntar áttir, jafnt teiknimyndir, graffíti eða vestræna listasögu. Hann notar jöfnum höndum sprey, málningu, liti og lökk, og festir hugarheim sinn oft á tréplötur en útilokar ekkert í þeim efnum, og segir varla auðan blett að finna á vinnustofunni í Stuttgart, þar sem hann hefur búið síðastliðin ár. Við hittum Davíð Örn í Þulu í þætti dagsins. Sýningin Brot úr framtíð sem opnar í Þjóðminjasafni um næstu helgi, en hún byggir á listrannsókn og myndlistarverkefni Þorgerðar Ólafsdóttur þar sem hún veltir fyrir sér fyrirbærum tengdum mannöld. Á sýningunni verður hægt að sjá verk unnin með hliðsjón af munum úr safneign Þjóðminjasafns Íslands sem falla undir flokk núminja og einnig verða þar verk sem tengjast verkefni Þorgerðar í Surtsey sem kom út í bókinni Esseyja í fyrra. Víðsjá ræddi við Þorgerði um það verkefni í fyrra og einnig Þóru Pétursdóttur fornleifafræðing sem á grein í Esseyju, en Sýningin er einmitt unnin í samstarfi við rannsóknarverkefnið Relics of Nature sem Þóra leiðir við háskólann í osló. Við rifjum hluta þeirrar umfjöllunar upp í þætti dagsins.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld

0:00 53:43

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 53 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on June 4, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.