Umbrot og Duft episode artwork

EPISODE · Nov 11, 2023 · 50 MIN

Umbrot og Duft

from Bara bækur

Skáldsagan Umbrot barst með nýjum bókavindum nú á dögunum eftir Sigurjón Bergþór Daðason. Þetta er þriðja bók höfundar en Sigurjón hefur áður sent frá sér Hendingskast og Óbundið slitlag. Umbrot segir frá Pétri sem lifir afskaplega venjulegu og tilbreytingarlitlu lífi og starfar við það að smíða gervilimi, hendur fætur og jafnvel andlit. Hann segist ekki kynnast þeim sem fá þessa útlimi en það er eitthvað persónulegt við að smíða eftirlíkingar af líkamshlutum. En þetta kyrrláta líf Péturs tekur svo skyndilega beygju sem leiðir hann í leit að uppruna sínum, hann þarf að huga að systur sinni sem burðast með fortíðina á bakinu og svo er það kona sem kemur aftur óvænt inn í líf hans en óvíst er með framtíð hennar. Bergþóra Snærbjörnsdóttir var að gefa út skáldsöguna Duft sem segir frá Veróníku, einkadóttur vellauðugra líkamsræktafrömuða á Íslandi. Duft er saga konu, saga fjölskyldu og um félagsmótun, áhrif uppeldis, fordóma og gildismat. En í duftinu má finna stóran samfélagsspegil, hvernig hugmyndir geta orðið að þráhyggju, og hvernig við lítum á okkur, á líkama okkar og tengjumst öðrum - eða tengjumst ekki? ?Þægindi eru hið nýja krabbamein í vestrænu samfélagi,? segir á einum stað. Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, My body is a Cage - Arcade Fire, Miss Modular - Stereolab Lesari: Lóa Björk Björnsdóttir Umsjón: Jóhannes Ólafsson

NOW PLAYING

Umbrot og Duft

0:00 50:21

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on November 11, 2023.

What is this episode about?

Skáldsagan Umbrot barst með nýjum bókavindum nú á dögunum eftir Sigurjón Bergþór Daðason. Þetta er þriðja bók höfundar en Sigurjón hefur áður sent frá sér Hendingskast og Óbundið slitlag. Umbrot segir frá Pétri sem lifir afskaplega venjulegu og...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!