Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28) episode artwork

EPISODE · Oct 4, 2025 · 12 MIN

Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28)

from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla

Í þessum heilsumola fer Erla yfir praktísk atriði fyrir alla sem hafa áhuga á því að koma á námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu í Suðurbæjarlaug. Ungbarnasund hefur gífurlega jákvæð áhrif á heilsu barna, líkamlega, andlega og félagslega. Ungbarnasund örvar hreyfiþroska barna og styrk, stuðlar að betri svefni og matarlyst, örvar skynfæri barnsins og hækkar streituþröskuld. Einnig styrkir ungbarnasund tengslamyndun foreldra og barna sem hefur áhrif á líðan og heilsu bæði foreldra og barns til framtíðar. Ungbarnasund Erlu var stofnað af Erlu Guðmundsdóttur í júlí 2006. Erla er félagi í Busla, félagi ungbarnasundkennara á Íslandi og var ritari félagsins frá 2005-2019 og hefur verið formaður félagsins síðan árið 2019.Upplýsingar um námskeiðHvert námskeið er 6 vikur (að undanskildu sumarnámskeiði sem er 3 vikur) með skipulagðri dagskrá í sundlauginni þar sem góða skapið, brosið og stöðugt hrós eru lykilatriði. Ungbarnasund byggir á nánu sambandi foreldra og barns og þetta er því ekki síður námskeið fyrir foreldrana en börnin. Kennt er einu sinni í viku, 40-45 mínútur í senn.Byrjendanámskeið er fyrir börn 3 mánaða og eldri.  Framhaldsnámskeið 1 er fyrir börn 4-10 mánaða sem lokið hafa byrjendanámskeiði í ungbarnasund eða eldri byrjendur ogFramhaldsnámskeið 2 er fyrir börn 7 mánaða-2 ára sem lokið hafa byrjendanámskeiði og/eða framhald 1.Framhaldsnámskeið 3 er nýr hópur fyrir 1-2,5 ára börn. Hægt er að koma aftur og aftur á framhald 2 og 3.Námskeiðið fer fram í innilaug Suðurbæjarlaugar. (Hringbraut 77, Hafnarfirði). Hitastig laugarinnar er 34-36°C. Lofthiti er 25-30°C. Skiptiborð eru við innilaugina fyrir hvert barn.Nánari upplýsingar á nýrri og glæsilegri heimasíðu www.ungbarnasunderlu.isUngbarnasund Erlu er einnig á TikTok og InstagramFylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 4, 2025

Embed this episode

Í þessum heilsumola fer Erla yfir praktísk atriði fyrir alla sem hafa áhuga á því að koma á námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu í Suðurbæjarlaug. Ungbarnasund hefur gífurlega jákvæð áhrif á heilsu barna, líkamlega, andlega og félagslega. Ungbarnasund örvar hreyfiþroska barna og styrk, stuðlar að betri svefni og matarlyst, örvar skynfæri barnsins og hækkar streituþröskuld. Einnig styrkir ungbarnasund tengslamyndun foreldra og barna sem hefur áhrif á líðan og heilsu bæði foreldra og barns til...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

NOW PLAYING

Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28)

0:00 12:42

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 12 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on October 4, 2025.

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!