Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu episode artwork

EPISODE · Feb 14, 2024 · 20 MIN

Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu

from Spegillinn

Þórkatla skal það heita, eignaumsýslufélagið sem Grindvíkingum býðst að selja íbúðarhúsnæði sitt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Drög að lögum um þetta voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Yfir 300 umsagnir bárust um drögin, nær undantekningarlaust frá Grindvíkingum, sem hafa ýmislegt við þau að athuga. Það á sérstaklega við um fimm atriði og athugasemdir við þau liggja sem rauður þráður í gegnum flestar umsagnirnar. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessi atriði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins. Lögregla í Dyflinni greindi frá því gær að tvö nafnlaus bréf hefðu borist með nýjum ábendingum sem tengjast hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í borginni fyrir fimm árum. Hún hefur girt af svæði í almenningsgarði í borginni, þar sem jarðneskra leifa Jóns var leitað í gær og leit heldur áfram á morgun. Anna Marsibil Clausen dagskrárgerðarkona hefur fylgst vel með þessu máli og vinnur að hlaðvarpsþáttaröð um það í samvinnu við kollega sinn hjá írska ríkisútvarpinu, Liam O'Brian. Ævar Örn ræddi við hana um þessar nýjustu vendingar. Prabowo Subianto, varnarmálaráðherra Indónesíu og fyrrverandi hershöfðingi, er svo gott sem öruggur um að verða næsti forseti landsins. Endanleg niðurstaða verður ekki kynnt fyrr en í næsta mánuði, en svokölluð hraðtalning sýnir að hann hafi tryggt sér meirihluta atkvæða, - um það bil 57 prósent, - þannig að ekki þurfi að kjósa að nýju vegna tveggja efstu. Einnig var kosið til þings og borgar- og sveitarstjórna og þykja þetta með flóknari kosningum sem haldnar hafa verið enda landið bæði víðfeðmt og fjölmennt. Ásgeir Tómasson segir frá.

NOW PLAYING

Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on February 14, 2024.

What is this episode about?

Þórkatla skal það heita, eignaumsýslufélagið sem Grindvíkingum býðst að selja íbúðarhúsnæði sitt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Drög að lögum um þetta voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Yfir 300 umsagnir bárust um drögin, nær...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!