Utanríkisráðherra um Gaza og veiðigjaldið

EPISODE · May 5, 2025 · 20 MIN

Utanríkisráðherra um Gaza og veiðigjaldið

from Spegillinn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Ísland noti rödd sína á alþjóðavettvangi og knýi fram aðgerðir vegna ástandsins þar. Hún segir ljóst að aðrir hagmsunir vegi meira hjá mörgum stórþjóðum, sem láti þar af leiðandi lítið til sín taka. Ísrael sé að fremja stríðsglæpi á Gaza. Atvinnuvegaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi sínu um breytingar á veiðigjaldi á Alþingi í dag - þetta er það frumvarp sem hörðustu deilurnar verða líklega um á þessu vorþingi og það er ekki óhugsandi að starfsáætlun þingsins verði hreinlega tekin úr sambandi til að greiða götu þess; svo ríkur er viljinn hjá stjórnarmeirihlutanum að frumvarpið verði að lögum. Jákvæð niðurstaða úr ársreikningum sveitarfélaga er áberandi þessar vikurnar og í mörgum tilfellum er afkoman í fyrra margfalt betri en ráð var fyrir gert. Formaður Sambands sveitarfélaga segir þetta ekki endilega ávísun á sömu niðurstöðu að ári. Þótt almennt hafi orðið viðsnúningur í rekstri sveitarfélaga síðustu ár þurfi áfram að glíma við miklar áskoranir.

NOW PLAYING

Utanríkisráðherra um Gaza og veiðigjaldið

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

URL copied to clipboard!