Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu episode artwork

EPISODE · May 21, 2025 · 20 MIN

Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu

from Spegillinn

Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í dag. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í dag um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósent í 7,5. Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir að verðbólgan þurfi að hjaðna í sumar til að hægt verði að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. Horfur í efnahagsmálum séu góðar en óvissa á alþjóðamörkuðum út af tollastríði gæti sett strik í reikninginn. Menningarferðaþjónusta er nú í fyrsta sinn formlega skilgreind sem hluti af ferðamálastefnu stjórnvalda enda er menning talin afar mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu og ferðamenn sem hingað koma njóta íslenskrar menningar með ýmsum hætti um allt land.

NOW PLAYING

Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on May 21, 2025.

What is this episode about?

Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!