Útreiðartúr um Álftanes og Svört orkídea hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs episode artwork

EPISODE · Oct 25, 2025 · 51 MIN

Útreiðartúr um Álftanes og Svört orkídea hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

from Bara bækur

Tvær bækur verða í forgrunni hjá okkur í dag, íslensk skáldsaga og færeysk ljóðabók, tvö ólík verk tveggja nágrannaþjóða sem báðar fjalla um flókið samband foreldris og unglings. Útreiðartúrinn er ný skáldsaga eftir Rögnu Sigurðardóttur - þetta er virkilega athyglisverð saga sem gerist á nokkrum mismunandi tímum, aðalsagan er í samtímanum en teygir sig líka til síðari hluta 19 aldar. Samtímasagan er um feðgasamband í flækju og vináttu sem ekki er öll þar sem hún er séð og þetta speglast í fortíðinni, gömlu glæpamáli frá 1881. Undirliggjandi eru spurningar um grimmd mannsins, hvort hún búi í okkur öllum, hvort hún erfist og leit að sannleika. Eitthvað sem er alveg jafn flókið hvort sem maður grefur upp 150 ára mál eða rýnir í það sem er að gerast hér og nú. Ragna verður gestur minn í lok þáttar og segir okkur frá lífinu á Álftanesi og hugmyndunum sem urðu kveikjan að þessari bók. Færeyingar máttu fagna dátt þegar tilkynnt var um Norðurlandaráðsverðlaunin í ár - Færeyjar fá bæði kvikmynda- og bókmenntaverðlaunin í ár. Bókmenntaverðlaunin hlýtur ljóðabókin Svørt orkidé eftir Vónbjørtu Vang - ljóðabók sem fjallar um móður sem óttast að missa unglingsson sinn, að horfa á hann fullorðnast og feta sínar eigin leiðir – og fer hugsanlega villur vegar. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þekkir vel til þessarar bókar og og höfundarins og vinnur nú að þýðingu ljóðanna á íslensku. Við ræðum við Móheiði á eftir. Viðmælendur: Ragna Sigurðardóttir, Árni Matthíasson og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 25, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Útreiðartúr um Álftanes og Svört orkídea hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

0:00 51:36

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 51 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on October 25, 2025.

Can I download this Bara bækur episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!