Valdatafl í Valhöll, Þróun afbrota á Íslandi, staða efnahagsmála í ESB episode artwork

EPISODE · Nov 26, 2025 · 20 MIN

Valdatafl í Valhöll, Þróun afbrota á Íslandi, staða efnahagsmála í ESB

from Spegillinn

Útlit er fyrir að slagur um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík geti orðið býsna harður. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, íhugar alvarlega að gefa kost á sér í leiðtogakjöri flokksins í lok janúar, leiðtogasæti sem Hildur Björnsdóttir, núverandi oddviti, ætlar ekki að gefa svo glatt eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir mögulegan leiðtogaslag sjálfstæðismanna í Borginni. Mikið hefur verið rætt um ofbeldi á Íslandi undanfarin misseri - og ekki síst hafa verið áberandi áhyggjur af hnífaburði ungmenna og hann talinn vaxandi. Alvarlegustu ofbeldismálin, sérstaklega þegar börn eiga í hlut, vekja mikinn ugg og þau hafa verið óvenjutíð undanfarið. Helgi Gunnlaugsson prófessor hefur rannsakað afbrot á Íslandi um áratugaskeið og skrifar í grein í nýjasta hefti Skírnis að brýnt sé að greina þróunina og vandann sem við er að etja - en bendir á að auknar áhyggjur af afbrotum og ofbeldi séu ekki nýtilkomnar og í opinberum gögnum sé ekki að sjá að brotum fari fjölgandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Helga. Þjóðarframleiðsla Evrópusambandsríkjanna vex um tæplega eitt og hálft prósent á næsta ári, og búist er við að verðbólga verði rétt ríflega tvö prósent. Þetta kemur fram í nýrri efnahagsspá sem kynnt var í Brussel fyrir nokkrum dögum. Meðaltalið felur hins vegar talsverðan mun milli ríkjanna og þýskur efnahagur verður áfram í kröggum. Björn Malmquist talar frá Brussel.

NOW PLAYING

Valdatafl í Valhöll, Þróun afbrota á Íslandi, staða efnahagsmála í ESB

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on November 26, 2025.

What is this episode about?

Útlit er fyrir að slagur um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík geti orðið býsna harður. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, íhugar alvarlega að gefa kost á sér í leiðtogakjöri flokksins í lok...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!