Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni episode artwork

EPISODE · Nov 14, 2024 · 53 MIN

Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni

from Víðsjá

Á laugardaginn opnar samsýningin Veður fyrir veður í húsnæði Veðurstofu Íslands og í undirgöngunum þar sunnan við. Sýningarstjórn er í höndum þeirra Söru Riel og Eddu Ýrar Garðarsdóttur en markmið sýningarinnar er, að sögn Söru, að gefa sálarfæði inn í hversdaginn, fyrir starfsfólk Veðurstofunnar. Sýningin samanstendur af úrvali verka íslenskra listamanna, sem eiga það sameiginlegt að hverfast um veðrið. Hún fær að standa í sex mánuði fyrir starfsfólk Veðurstofunnar, en verður opin almenningi þessa einu helgi. Hluti sýningarinnar er þó kominn til að vera, útilistaverk Söru Riel, í undirgöngunum undir Bústaðaveginn. Raunar spratt hugmyndin að samsýningunni út frá útilistaverkinu, sem varð að nokkurs konar samfélagsverkefni síðasta sumar, þegar íbúar Suðurhlíðar tóku þátt í að mála sólskinið inn í göngin. Við könnum veðrabrigðin í göngunum milli lífs og dauða í síðari hluta þáttar. Gauti Kristmannsson verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni rýnir hann í fyrsta og annað bindi af Rúmmálsreikningi Solvej Balle, í þýðingu Steinunnar Stefánsdóttur. En við hefjum þáttinn á því að fara í Eddu þar sem fyrsta handritasýning hússins opnar um helgina. Það var stór stund í vikunni þegar fyrstu handritin voru flutt úr Árnagarði og yfir í nýtt öryggisrými í Eddu. Handritin hafa verið geymd í í Árnagarði síðan í byrjun áttunda áratugarins en 20 ár eru síðan hætt var að sýna handritin þar, vegna lélegrar aðstöðu og ótryggs sýningarrýmis. Handritasýn­ing­ Árnastofnunar var í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu á árunum 2002 til 2013 en var einnig lokað vegna ör­ygg­is­mála. Sýningin Heimur í orðum verður opnuð í Eddu á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember, og þá gefst í fyrsta sinn í langan tíma kostur á að sjá þennan ómetanlega menningararf, en meðal handrita á sýningunni eru frægustu íslensku miðaldahandritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 14, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni

0:00 53:24

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 53 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on November 14, 2024.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!