Veðurfregnir og jarðarfarir, Sjónsbók í útrás og orðabókaskrif episode artwork

EPISODE · Sep 21, 2024 · 56 MIN

Veðurfregnir og jarðarfarir, Sjónsbók í útrás og orðabókaskrif

from Bara bækur

Ný bók með fræðigreinum um rithöfundinn Sjón var að koma út hjá breska bókarisanum Routledge, þetta sætir tíðindum því langt er síðan að alþjóðlegt fræðiverk var ritað um íslenskan rithöfund, síðast um Halldór Laxness. Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og bókaverja segir frá útgáfunni en hún ritstýrði því ásamt Lindu Badley, prófessor emerita í ensku og kvikmyndafræði hjá Middle Tennessee ríkisháskólanum og Gitte Mose, aðjúnkt emerita frá Oslóarháskóla. Orðabækur eru líka bækur! Björn Halldórsson rithöfundur segir okkur hvernig það er að semja orðabókaskilgreiningar en Árnastofnun vinnur að gerð nýrrar íslensk-enskrar orðabókar á netinu. Veðurfregnir og jarðarfarir heitir fyrsta skáldsaga Maó Alheimsdóttur sem áður hefur fengist við ljóðlist, pistla og gjörninga. Sagan segir frá veðurfræðingnum Helenu eða Lenu og flæðir frásögnin í tíma og milli landa, aðallega Íslands, Póllands og Frakklands en einnig upp í skýin. Lena, sem rannsakar veður og loftslag, sér skýrt hvað blasir við mannkyni, hrakandi heilsu loftslags á jörðu, hvernig það mun hafa áhrif á okkur og hefur áhrif á okkur. Veðrið speglar líka sálarlíf Lenu og ástar- og fjölskyldusambönd hennar. Innra með okkur öllum eru sviptingar í veðri og stundum loftslagsbreytingar. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

NOW PLAYING

Veðurfregnir og jarðarfarir, Sjónsbók í útrás og orðabókaskrif

0:00 56:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 56 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on September 21, 2024.

What is this episode about?

Ný bók með fræðigreinum um rithöfundinn Sjón var að koma út hjá breska bókarisanum Routledge, þetta sætir tíðindum því langt er síðan að alþjóðlegt fræðiverk var ritað um íslenskan rithöfund, síðast um Halldór Laxness. Úlfhildur Dagsdóttir...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!