Vegurinn yfir Öxi, loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna og ríkislögreglustjóri. episode artwork

EPISODE · Nov 6, 2025 · 20 MIN

Vegurinn yfir Öxi, loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna og ríkislögreglustjóri.

from Spegillinn

Þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fékk fyrst veður af 160 milljóna viðskiptum ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf, á mánudagskvöld í síðustu viku, beið hún ekki boðanna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, var kölluð á teppið og langlundargeð ráðherrans var ekki mikið. Eftir fund í ráðuneytinu voru Sigríði gefnir fimm dagar til að svara ítarlegri upplýsingabeiðni um þessi viðskipti. Í millitíðinni fundaði ráðherra aftur með ríkislögreglustjóra til að ræða alvarlega stöðu hennar sem forstöðumanns. Leiðtogar og sérfræðingar alls staðar að úr heiminum safnast nú saman í brasilísku borginni Belém, þar sem þrítugasta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í dag með leiðtogafundi. Talað hefur verið um að þetta eigi ekki að vera ráðstefna umræðna og samningaþófs, heldur ákvarðana og aðgerða, því engan tíma sé að missa. Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir enn mögulegt að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins um að halda hlýnun Jarðar innan 1,5 gráða umfram meðalhita fyrir iðnbyltingu. Vegurinn yfir Öxi á sunnanverðum Austfjörðum liggur úr Berufjarðarbotni upp á Fljótsdalshérað. Mikilvæg samgönguæð að mati heimamanna fyrir austan, þrátt fyrir að þarna sé hlykkjóttur og ósléttur malarvegur. Þetta er innan við 20 kílómetra leið en nýr Axarvegur myndi stytta hringveginn um tæpa 70 kílómetra miðað við núverandi leið um Austfirði. Öxi er ekki síst mikilvæg leið fyrir íbúa á Djúpavogi eftir myndun sveitarfélagsins Múlaþings og þá sameiningu sem henni fylgdi.

NOW PLAYING

Vegurinn yfir Öxi, loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna og ríkislögreglustjóri.

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on November 6, 2025.

What is this episode about?

Þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fékk fyrst veður af 160 milljóna viðskiptum ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf, á mánudagskvöld í síðustu viku, beið hún ekki boðanna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, var...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!