Venesúelabúum vísað úr landi. Færanlegt sjúkrahús til Úkraínu. episode artwork

EPISODE · Sep 29, 2023 · 30 MIN

Venesúelabúum vísað úr landi. Færanlegt sjúkrahús til Úkraínu.

from Spegillinn

29.09.2023 Útlendingastofnun mátti synja Venesúelabúum um alþjóðlega vernd, að mati kærunefndar útlendingamála. Á annað þúsund manns frá Venesúela geta búist við að vera send úr landi á næstunni. Ari Páll Karlsson sagði frá. Sænska hernum verður falið að aðstoða lögregluna við að ráða niðurlögum glæpagengja sem hafa orðið ellefu manns að bana í þessum mánuði. Vísbendingar eru um tengsl íslenskra glæpahópa við sænsk glæpasamtök sem staðið hafa í grimmilegum hjaðningavígum síðustu misseri. Ævar Örn Jósepsson og Ásgeir Tómasson sögðu frá. Rætt var við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Færanlegt sjúkrahús sem Íslendingar fjármagna verður afhent Úkraínumönnum á næstunni. Bjarni Pétur Jónsson talaði við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Áratugum saman hefur verið rætt og stundum rifist um Sundabraut. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjiist 2026 og kynningarfundir um umhverfisáhrif og breytingar á skipulagi verða í næstu viku. Á löngum tíma hefur verkefnið þróast og breyst segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni. Til dæmis er ekki lengur í forgangi að tengja umferðina við miðborgina. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Guðmund. Alberto Núñez Feijóo, leiðtoga Lýðflokksins PP á Spáni, mistókst í dag að tryggja sér stuðning meirihluta þingmanna til að mynda nýja ríkisstjórn. Pedro Sanchez, forsætisráðherra og formaður Sósíalistaflokksins, fær stjórnarmyndunarumboðið. Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Dianne Feinstein er látin, níræð að aldri. Hún var elst þingmanna í deildinni. Meðalaldur þeirra er 65 ár. Umsjón með Speglinum hafði Ásgeir Tómasson. Magnús Þorsteinn Magnússon var tæknimaður og Annalísa Hermannsdóttir stýrði fréttaútsendingu.

NOW PLAYING

Venesúelabúum vísað úr landi. Færanlegt sjúkrahús til Úkraínu.

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 29, 2023.

What is this episode about?

29.09.2023 Útlendingastofnun mátti synja Venesúelabúum um alþjóðlega vernd, að mati kærunefndar útlendingamála. Á annað þúsund manns frá Venesúela geta búist við að vera send úr landi á næstunni. Ari Páll Karlsson sagði frá. Sænska hernum verður...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!