Vísitala, Sumartónleikar í Skálholti og sköpunarkraftur náttúrunnar episode artwork

EPISODE · Jun 27, 2023 · 55 MIN

Vísitala, Sumartónleikar í Skálholti og sköpunarkraftur náttúrunnar

from Víðsjá

Hagfræði og myndlist, fagurfræði og fjármál - þetta eru heimar sem sjaldan mætast þannig að úr verði listaverk. En á fimmtudag opnaði í Ásmundarsal einkasýning Geirþrúðar F. Hjörvar sem kallast Vísitala. Þar eru listaverk sem sprottin eru upp úr persónulegri hrifningu Geirþrúðar á tölfræðilegum breytum settum fram á sjónrænan máta sem einföld tölfræðirit. Vísitala sækir innblástur í skýringarmyndir fjármálakerfisins og einnig þá hugmynd að hægt sé að formgera efnahagsstefnur í haldbæra hluti. Við hittum Geirþrúði F. Hjörvar í Ásmundarsal í þættinum. ?Getum við tamið okkur að hugsa minna eins og einstaklingar og meira eins og ein heild? Reynt að sjá hvernig allur lífsvefurinn er samfelldur þráður með uppruna í sama punktinum.? Freyja Þórsdóttir ætlar að kafa ofan í djúpið, alla leið til uppruna lífsins. í lokapistli sínum hér í Víðsjá. Þar fjallar um sköpunarkraftinn sem býr í náttúrunni og okkur sjálfum (og hvernig við tökum hann stundum út úr hringrásinni og beitum honum á hátt sem er á skjön við heilbrigði jarðarinnar og lífsins). Sumartónleikar í Skálholti hefjast á morgun og standa yfir til 9.júlí. Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri þetta árið, en hann flutti aftur heim til Íslands fyrir tveimur árum, eftir margra ára dvöl erlendis. Bene­dikt hef­ur verið önn­um kaf­inn sem sjálf­stætt starf­andi söngv­ari síðan hann flutti til Berlín­ar 2008, og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlaun frá því hann útskrifaðist frá Hanns Eisler-tón­list­ar­há­skól­an­um í Berlín 2015. Hann hefur komið fram í mörgum stærstu tónleika- og óperuhúsum heims, er stöðugt á ferðinni og bókaður langt fram í tímann, en hann hefur gefið sér tíma til að stýra hinni rótgrónu tónlistarhátíð Sumartónleika í Skálholti.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 27, 2023

Embed this episode

NOW PLAYING

Vísitala, Sumartónleikar í Skálholti og sköpunarkraftur náttúrunnar

0:00 55:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 55 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on June 27, 2023.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!