Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará episode artwork

EPISODE · Feb 6, 2026 · 20 MIN

Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará

from Spegillinn

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar að komið sé að vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, að yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun. Það vita færri - en þó allir sem vilja - að staðan á hernumdum Vesturbakkanum er líka skelfileg þótt hún sé til allrar hamingju fjarri því jafn slæm og á Gaza. ­Þar halda Ísraelar áfram að ræna landi Palestínumanna sem Ísraelum, sem hernámsaðilum, ber þó skýr lagaleg skylda til að verja. Þvert á móti leggjast þar allir á eitt, Ísraelsher, ísraelsk stjórnvöld og svo landræningjarnir sjálfir, bæði þeir um það bil 700.000 sem fyrir eru og þeir sem hyggja á nýtt landrán Allt frá því að gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni sé til að endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við að grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 6, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on February 6, 2026.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!