30 Plús podcast artwork

PODCAST · society

30 Plús

Í hlaðvarpinu 30 Plús ræðum við um þær áhugaverðu og óvæntu breytingar sem eiga sér í lífinu þegar við dettum inn á fertugsaldurinn. Það er margt sem breytist á þessum árum t.a.m. sjálfsviðhorf, tilfinningalíf, fjármál, barneignir, uppeldi, vinnan, framabrautin, heilsan, þroski, kynlíf og fleira í þeim dúr. Markmiðið með hlaðvarpinu er að vera með opinskáar, persónulegar og skemmtilegar samræður út frá okkar persónulegu upplifun.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 11, 2026 · Source feed

  1. 8

    #8 - Imposter Syndrome

    Gestur þáttarins er Tómas Valgeirsson fjölmiðlamaður. Í þættinum ræðum við Imposter Syndrome eða svikaraheilkenni, sem eflaust margir hafa upplifað einhvern tímann á lífsleiðinni. Við förum yfir það hvernig þetta fyrirbæri birtist í daglegu lífi, hvaðan það getur sprottið, hvaða áhrif það getur haft á sjálfsmynd, ákvarðanatöku fólks og ræðum þessa þætti út frá okkur persónulegu reynslu. Að lokum tökum við samtal um reynslu Tómasar af störfum sínum sem kvikmyndagagrýnandi.Þátturinn er í boði:💡ShutterRental - Camerur, ljós og hljóð fyrir þitt verkefni.🎥 @blindspot_framleidsla - Efnissköpun & auglýsingagerð fyrir þá sem vilja láta taka eftir sér.

  2. 7

    #7 - Gott uppeldi

    Gestur þáttarins er Berglind Brynjarsdóttir, fjögurra barna móðir og eiginkona sem starfar sem forstöðuþroskaþjálfi. Í þættinum ræðum við hvernig við tökumst á við uppeldishlutverkið, gildin okkar og sýn sem uppalendur. Við tölum um mikilvægi þess að mæta börnum þar sem þau eru og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér að setja börnum ekki skýr mörk. Við förum líka yfir aðra þætti s.s tímaskortinn, samviskubitið, ólíkar skoðanir foreldra og pressuna úr samfélaginu.Þátturinn er í boði:💡ShutterRental - Camerur, ljós og hljóð fyrir þitt verkefni.🎥 @blindspot_framleidsla - Efnissköpun & auglýsingagerð.

  3. 6

    #6 - Fæðingasögur feðra

    Gestur þáttarins er Ísak Hilmarsson, þriggja barna faðir og sérfræðingur í upplýsingatækni.Í þættinum ræðum við Fæðingarsögur feðra – bæði sem umræðuefni en einnig út frá samnefndri bók sem Ísak og konan hans Grétu Maríu Birgisdóttur gáfu nýlega út. En í bókinni stíga feður fram og segja frá eigin upplifun af fæðingum barna sinna. Við förum inn á þá ólíku upplifun sem margir karlmenn ganga í gegnum á þessum mótandi augnablikum í lífinu, hvernig þessar stundir móta sjálfsmynd, tengslamyndun og hlutverk feðra. Þátturinn er kostaður af:💡ShutterRental - Camerur, ljós og hljóð fyrir þitt verkefni🎥 @blindspot_framleidsla - Efnissköpun & auglýsingagerð

  4. 5

    #5 - Fjármál: það sem skiptir máli

    Athugið að efnið í þessum þætti er eingöngu til upplýsinga og fræðslu. Það felur ekki í sér persónulega fjármálaráðgjöf og hlustendur ættu að leita til fagaðila áður en fjárhagslegar ákvarðanir eru teknar.Gestur þáttarins er Björn Berg Gunnarsson, sem er reynslumikill fjármálaráðgjafi með áralanga reynslu af því að hjálpa fólki að skilja peninga, áhættu og framtíðarskipulag.Við ræðum fjármál út frá mörgum hliðum og setjum þau í samhengi við daglegt líf. Hvernig breytist nálgun okkar þegar ábyrgðin eykst, börn koma til sögunnar og framtíðin fer að skipta meira máli en næsti mánuður. Við förum yfir hvernig gott er að tala við börnin okkar um peninga, hvaða gildi skipta máli í fjármálauppeldi og hvernig við getum lagt grunn að heilbrigðu sambandi við fjármál strax á unga aldri.Í þættinum er einnig farið yfir fjármálalæsi og venjur sem styðja við betri ákvarðanatöku. Við ræðum neyslulán, húsnæðislán og þá algengu gildrur sem fólk fellur í þegar skammtímahugsun fær að ráða för. Einnig er fjallað um fjármál í ellinni og hvers vegna ákvarðanir sem teknar eru á þrítugs- og fertugsaldri geta haft afgerandi áhrif á lífsgæði síðar.Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠⁠Shutterrental⁠⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠⁠Blindspot framleiðsla⁠⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.

  5. 4

    #4 - Það sem er ekki talað um

    Gestur þáttarins er Andrea Rut Sigurjónsdóttir sem er þriggja barna móðir, leikskólakennari og stundar nám við Háskólann á Akureyri. Í þættinum stígum við inn á svæði sem kannski margir forðast – umræðuefni sem geta verið óþægileg, persónuleg eða einfaldlega sjaldan rædd nema innan innsta hóps góðra vina. Viktor tók saman nokkrar spurningar sem varða reynslu og viðhorf kvenna, á meðan Andrea kom með spurningar sem varða karla. Okkur langaði er opna á heiðarlegt samtal um allskonar hluti – frá túrtöppum yfir í sjálfsmynd, líkamsímynd, kynlíf, viðhorf og það sem fólk hugsar en segir sjaldnar upphátt. Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠⁠Shutterrental⁠⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠⁠Blindspot framleiðsla⁠⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.

  6. 3

    #3 - Baráttan við sjálfið

    Gestur þáttarins er hann Jónas Tryggvi Stefánsson markþjálfi. Í þættinum ræðum við ströggið og breytingarnar sem við upplifum innra með okkur sem geta dúkkað upp. Á þessu lífsskeiði eru oft breyttar áherslur, við breytumst sem persónur og væntingar til okkar sjálfra geta tekið breytingum. Við förum yfir hvað það er sem fólk er almennt að ströggla við og hvernig sjálfsvinna hefur áhrif á betra líf.Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠Shutterrental⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠Blindspot framleiðsla⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.

  7. 2

    #2 - Að verða pabbi

    Gestur þáttarins er hann Birgi Dýrfjörð sem er faðir, eiginmaður og lærður gullsmiður. Við ræddum hver okkar upplifun var við það að verða pabbar, þetta nýja hlutverk og það hvað enginn sagði okkur að þetta gæti verið erfitt. Karlmenn eru ekker sérstaklega þekktir fyrir að ræða mikið um tilfinningamál og við viljum því kafa dýpra og opna á umræðuna á persónulegan hátt.Þessi þáttur er í boði:🎥⁠Blindspot framleiðsla⁠ - Auglýsingagerð fyrir þitt fyrirtæki💡⁠Shutterrental⁠ - Vantar þig leigu á búnaði fyrir kvikmyndagerð?

  8. 1

    #1 - Að fara úr 20 plús yfir í 30 plús

    Gestur þáttarins er hún Írisi Mist Magnúsdóttir sem er fyrrum fimleikadrottning, tveggja barna móðir og framkvæmdastjóri barnaþáttanna Sólon sem hún og eiginmaður hennar Einar hafa verið að skapa saman. Í þættinum förum við yfir helstu breytingarnar og áskoranir sem fylgja því að komast á þennan aldur s.s. markmið, sjálfsvinna, barneignir og lífsviðhorf. Við ræðum okkar eigin upplifun við að komast á þennan aldur og íris segir frá sinni vegferð að jafnvægi í lífinu eftir að lenda á vegg, hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag og segir aðeins frá því hvernig Sólon Barnaefni varð til.Þessi þáttur er í boði:🎥Blindspot framleiðsla - Efnissköpun og auglýsingagerð fyrir þitt fyrirtæki.💡Shutterrental - Vantar þig að leigja kvikmyndatökubúnað fyrir komandi verkefni?

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í hlaðvarpinu 30 Plús ræðum við um þær áhugaverðu og óvæntu breytingar sem eiga sér í lífinu þegar við dettum inn á fertugsaldurinn. Það er margt sem breytist á þessum árum t.a.m. sjálfsviðhorf, tilfinningalíf, fjármál, barneignir, uppeldi, vinnan, framabrautin, heilsan, þroski, kynlíf og fleira í þeim dúr. Markmiðið með hlaðvarpinu er að vera með opinskáar, persónulegar og skemmtilegar samræður út frá okkar persónulegu upplifun.

HOSTED BY

Viktor A. Bogdanski

Frequently Asked Questions

How many episodes does 30 Plús have?

30 Plús currently has 8 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is 30 Plús about?

Í hlaðvarpinu 30 Plús ræðum við um þær áhugaverðu og óvæntu breytingar sem eiga sér í lífinu þegar við dettum inn á fertugsaldurinn. Það er margt sem breytist á þessum árum t.a.m. sjálfsviðhorf, tilfinningalíf, fjármál, barneignir, uppeldi, vinnan, framabrautin, heilsan, þroski, kynlíf og fleira í...

How often does 30 Plús release new episodes?

30 Plús has 8 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to 30 Plús?

You can listen to 30 Plús on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts 30 Plús?

30 Plús is created and hosted by Viktor A. Bogdanski.
URL copied to clipboard!