Episodes
-
#030 : Extreme Ownership - Jocko Willink & Leif Babin
Extreme Ownership - How U.S. Navy SEALS Lead and Win. Til að vera leiðtogi í þínu lífi þarft þú að taka fullt eignarhald á öllum aðstæðum í þínu lífi - engar afsakanir í boði! Í þessari bók er áralangri reynslu tveggja reyndra liðsforingja úr Navy Seals miðlað á hnitmiðaðan og auðskilinn hátt....
-
#029 : The Four Agreements - Don Miguel Ruiz
Stutt og auðlesin bók með skilaboðum sem eiga vel við alla. Höfundurinn miðlar visku ævagamallar menningar Toltec frumbyggja frá Mexíkó og dregur fram fjögur ný samkomulög sem við ættum að gera við sjálf okkur til að verða betri og heilli manneskjur. Samkvæmt sögu Toltec indíánanna upplifum við...
-
#028 : Factfulness - Hans Rosling
Tíu ástæður fyrir því að við sjáum heiminn í röngu ljósi. Heimurinn er betri en þú heldur og höfundur sýnir fram á það með tölfræðilegum staðreyndum. Hans Rosling ásamt Ola Rosling og Önnu Rosling Rönnlund telja upp þau atriði sem helst valda því að við sjáum heiminn í oft verra ljósi en hann er....
-
#027 : The Simple Path to Wealth - JL Collins
Your road map to financial independence and a rich, free life. Einfaldur leiðavísir á mannamáli inn í fjármálaheiminn sem allir geta fylgt. Hvar á að fjárfesta, hvers vegna, hvaða áætlun er hagkvæmust og hvaða kostir og gallar eru við hinar ýmsu fjárfestingarleiðir. Þetta og margt fleira byggir...
-
#026 : Digital Minimalism - Cal Newport
Choosing a Focused Life in a Noisy World Erum við að nota tæknina eða er tæknin að nota okkur? Samfélagsmiðlar, netmiðlar, streymisveitur og stöðugt aðgengi að upplýsingum hefur breytt lífsstíl okkar töluvert. En hverjar eru neikvæðu afleiðingarnar? Hvað ættum við að gera? Cal Newport leggur til…
more -
#025 : Life Force - Tony Robbins, Peter Diamandis & Robert Harari
How New Breakthroughs in Precision Medicine Can Transform the Quality of Your Life & Those You Love. Þessi þétta bók fer yfir flest það sem viðkemur því að lifa lengur, sjúkdómalaus og eymslalaus. Tæknin í dag lofar ótrúlegum framförum í læknavísundum sem er farið vel yfir. Læknigar á…
more -
#024 : AI 2041 - Kai-Fu Lee & Chen Quifan
AI 2041 - Ten Visions for Our Future Gervigreind (AI) mun móta þróun 21. aldarinnar. Innan tveggja áratuga mun daglegt líf verða gjörbreytt. Í þessari bók eru settar fram 10 dæmisögur úr framtíðinni með vísindalegum skáldskap og greiningu á þeirri tækni sem er að brjótast fram. Hvað getum við…
more -
#023 : Why We Sleep - Matthew Walker
Einn mikilvægasti, og oft vanmetnasti hluti góðrar heilsu er án efa svefninn. Matthew Walker, svefn-vísindamaður, tekur fyrir allt sem tengist svefni í þessari mikilvægu bók og opinberar ný vísindi um allt sem tengist svefni og draumum. Mismunandi stig svefns, draumar, ábatar góðs svefns og öll…
more -
#022 - Breath (James Nestor) & The Oxygen Advantage (Patrick McKeown)
Hvernig við öndum er eitthvað sem fæstir pæla sérstaklega í þó svo að hún sé það sem heldur okkur á lífi. Hvernig við öndum skiptir miklu máli; hvort við öndum inn um nefið eða munninn, hversu oft við öndum, hve djúpt ofl. Bækurnar tvær, sem ræddar eru í þessum þætti, taka sama viðfangsefni en...
-
#021 : Talking To Strangers - Malcom Gladwell
Í bókinni Talking To Strangers veltir höfundurinn því fyrir sér hvers vegna við eigum það til að misskilja hvort annað í samskiptum okkar. Hvers vegna eigum við það til að trúa þeim sem eru óheiðarlegir? Hvað veldur því að við dæmum fólk ranglega? Stundum verða afleiðingar þess að við skiljum…
more -
#020 : So Good They Can't Ignore You - Cal Newport
Cal Newport, höfundur bókarinnar, skorar á lesandann til að endurskoða hin algengu meðmæli sem eru að ,,elta ástríðu sína" þegar kemur að starfsferli og kemur með aðra nálgun. Hann heldur því fram að elta ástríðuna sína sé gölluð hugmyndafræði. Ef þú vilt gera það sem þú elskar, þarftu eitthvað…
more -
#019 : The Art of Resilience - Ross Edgley
Íþróttafræðingurinn og ævintýra-íþróttamaðurinn Ross Edgley er hér með sína aðra bók. Hann lýsir upplifun sinni af því að synda umhverfis Bretlandseyjar árið 2019 og deilir hugleiðingum sínum á leiðinni ásamt því að fara yfir undirbúningsferlið, heimspekina á bakvið Stoic Sport Science…
more -
#018 : How To Avoid a Climate Disaster - Bill Gates
Hlýnun Jarðar og allt það ójafnvægi sem mengun mannsins hefur valdið á síðustu áratugum er að ná þolmörkum. CO2 útblástur er nú um 51 milljarðar tonna á ári hverju og fer hækkandi. Afhverju? Hvað er hægt að gera? Hvernig? Hvenær? Hvað átt þú að gera í því? Þessum spurningum og fjölda annara…
more -
#017 : Beyond Order - Jordan B. Peterson
Hér ræðum við nýjustu bók Jordan Peterson, Beyond Order. Bókin er rituð sem mótvægi við hans fyrri bók, 12 Rules For Life - An Antidote for Chaos (sem við ræddum um í þætti #012). Með sína gríðarlega yfirgripsmiklu þekkingu og reynslu af klínískri sálfræði og sagnfræði að baki hefur JP dregið…
more -
#016 : Lifespan - David A. Sinclair PhD
Er öldrun sjúkdómur sem er hægt að lækna? Er hægt að koma í veg fyrir algenga öldrunarsjúkdóma og lifa lengur við betri heilsu? Samkvæmt því sem David Sinclair heldur fram í bókinni Lifespan er svarið já. Hann heldur því fram að öldrun sé sjúkdómur sem hægt er að lækna og byggir það á...
-
#015 : Ábyrgðarkver - Gunnlaugur Jónsson
Hvað varð til þess að bankahrunið átti sér stað 2009? Hvaða lærdóm getum við dregið af því og hvernig má koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig? Gunnlaugur Jónsson ávarpar þetta viðfangsefni í bók sinni Ábyrgðarkver sem kom út árið 2012. Bókin er stutt og skorinort. Þetta er ekki bara bók um...
-
#014 : Never Split The Difference - Chris Voss
Samningatækni er eitthvað sem allir hafa gott af að kynna sér. Chris Voss er meðal helstu sérfræðinga á þessu sviði, en hann starfaði um árabil fyrir FBI sem aðal samningamaðurinn í gíslatökum og stórum valdaránum. Reynslu sína hefur hann yfirfært yfir á önnur svið eins og í mannauðsmálum,...
-
#013 : The Black Swan - Nassim Nicholas Taleb
The Black Swan er bók um handahófs lögmálið sem Nassim Taleb kryfur til mergjar. Hugmyndin er að óvæntir atburðir hafi meiri áhrif á líf okkar en við gerum ráð fyrir og er byggð á því að við höfum of mikla trú á svokallaðar staðreyndir. Í þættinum eru kenningar Taleb ræddar og tengdar við…
more -
#012 : 12 Rules for Life - Jordan B. Peterson
Í nýjasta þætti Bókabræðra ræðum við bókina 12 Rules For Life: An Antidote to Chaos (12 Lífsreglur: Mótefni við glundroða) eftir klíníska sálfræðinginn og prófessorinn Jordan B. Peterson. Markmið Peterson með bókinni er að fræða lesandann um þau atriði sem hann telur hvað mikilvægust að hver...
-
#011 : How To Win Friends and Influence People - Dale Carnegie
Hér er tekin fyrir ein allra þekktasta og mest lesna sjálfshjálparbók til þessa. Hún kom út árið 1936 og hefur selst í yfir 30 milljónum eintaka. Við Bókabræður ræðum þessar 90 ára gömlu (en samt tímalausu) hugmyndir Dale Carnegie um mannleg samskipti, framkomu og áhrif. Þátturinn var tekinn upp...
-
#010 : The Obesity Code - Jason Fung
Jason Fung er meðal fremstu sérfræðinga um áunna lífsstílssjúkdóma í heiminum í dag. Hvers vegna fitnum við? Hvers vegna er sykursýki 2 svona útbreidd? Hvað veldur flestum áunnum lífsstílssjúkdómum? Hvaða lausnir eru í boði? Þessum og ótal fleiri spurningum svarar Jason Fung í mjög svo fróðlegri...
-
#009 : The Happiness Hypothesis - Jonathan Haidt
Happiness Hypothesis, eða "Tilgátan um hamingju,, eins og þýðist á íslensku, er yfirgripsmikil bók sem fjallar um hamingju okkar mannanna. Hún veltir upp tildrögum óhamingju okkar og hvað það er sem veitir okkur hamingju og merkingu í lífinu með því að grafa í sögubókunum og yfirfæra kenningarnar…
more -
#008 : Sapiens - Yuval Noah Harari
Sapiens - A Brief History of Humankind er bók sem opnar huga lesandans fyrir mannkynssögunni með gagnrýnni og óheflaðari frásögn. Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari rekur uppruna mannskepnunnar frá því að vera "hunter gatherers" fyrir 100.000 árum fram til dagsins í dag þegar tegundin okkar...
-
#007 : Atomic Habits - James Clear
Atomic Habits eftir James Clear er leiðandi bók í vanastjórnun. Lífið okkar byggist upp á þeim venjum sem við höfum tamið okkur, meðvitað eða ómeðvitað, sumar góðar en aðrar slæmar. James Clear er talinn einn helsti sérfræðingur í venjum (habits), hann hefur verið með vinsælt blogg og fréttapósta...
-
#006 : Range - David Epstein
Bókabræður 006 Range er bók sem rannsóknarblaðamaðurinn David Epstein skrifaði um það hvernig einstaklingar með breiða reynslu og þekkingu ná oft lengra en þeir sem hafa þröngsýnni nálgun, eins konar mótsvar við 10.000 tíma reglunni sem hefur oft verið kastað fram. Við ræddum um margt af því sem...
-
#005 : Can't Hurt Me - David Goggins
Bókin Can't Hurt Me eftir David Goggins er bók sem hefur haft mikil áhrif á okkur þáttarstjórnendur. David Goggins er fyrrum Navy SEAL hermaður með ótrúlega afrekaskrá í mörgum af erfiðustu hlaupum heims, á heimsmet í upphífingum og er almennt líklega harðasti maður sem Guð hefur skapað. Bókin er...
-
#004 : The Power of Now - Eckhart Tolle
Hin mjög svo magnaða bók, The Power of Now, eftir Eckhart Tolle hefur verið metsölubók í hinum andlega geira í fjöldamörg ár. Þetta er eins konar andlegur sjálfshjálpar leiðavísir í samræðuformi. Við ræddum um innihald og skilaboð bókarinnar og okkar hlið á málunum. Sérstakar þakkir til Sonik…
more -
#003 : How To Be a Stoic - Massimo Pigliucci
Stóísk heimspeki rædd og skoðuð með hliðsjón af bókinni How To Be A Stoic eftir Massimo Pigliucci. Bókin er eins konar kynning á þessari tegund heimspeki og byggist að mestu á Discourses eftir Epictetus, sem er oftast nefndur sem einn af þremur helstu forsögulegu heimspekingum sem vitnað er í í...
-
#002 : Man's Search For Meaning - Viktor Frankl
Bókin Man's Search For Meaning eftir Viktor Frankl var umræðuefni þessa þáttar. Hún fjallar um upplifun höfundarins af útrýmingabúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni sem hann lifði af og lógóþerapíu, sem er form sálfræðimeðferða sem hann lagði grunninn að. Man's Search For Meaning - Viktor...
-
#001 - Bókabræður
Fyrsti þáttur Ómars og Kolbeins um bækur. Umræður og pælingar um lestur bóka. Hugmyndin um hlaðvarp rædd og lagt línurnar að næsta þætti og valið bók til að taka fyrir. Heimspeki, saga, lífsspeki, sjálfshjálp, framtíðarfræði, tækni og almenn. Bók valin sem tekin verður til umræðu í næsta þætti....