Einmitt / Menn eins og við podcast artwork

PODCAST · music

Einmitt / Menn eins og við

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Jun 12, 2026 · Source feed

  1. 100

    Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"

    Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýðir eiginlega „ég tek þetta næst"? Að venju fá hversdagsleg vandamál miðaldra karla óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og umræðan endar einhvers staðar allt annars staðar en lagt var upp með. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli… en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við  http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is

  2. 99

    Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?

    Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is

  3. 98

    Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"

    Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is

  4. 97

    Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund

    Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

  5. 96

    Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum

    Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar. Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

  6. 95

    Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu

    Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir. Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera. Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja. Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

  7. 94

    Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"

    Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is

  8. 93

    Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"

    Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>    

  9. 92

    Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"

    Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>

  10. 91

    121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni"

    Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is http://bkhonnun.is/> hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    bpro.is http://bpro.is/> stereo.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is http://biobu.is/> egc.is http://egc.is/> mammaveitbest.is http://mammaveitbest.is/> fylgifiskar.is  kjotburid.is  http://pureshilajit.is    

  11. 90

    120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni"

    Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.

  12. 89

    119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum"

    Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi    pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>

  13. 88

    118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu"

    Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi    pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>    

  14. 87

    117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta"

    Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig mikill áhugamaður um líkamsrækt og keppnismaður af lífi og sál, og þá hefur hann verið einn ötulasti stuðningsmaður íslenskrar tónlistar í útvarpi um áratugaskeið, kynnt nýtt efni, stutt íslenska tónlistarmenn og haft raunveruleg áhrif á það sem þjóðin hefur hlustað á. Í þættinum ætlum við að fara yfir ferilinn, morgnana í útvarpinu, líkamsræktina og lífið, ræða allar eigendurnar sem hafa átt félagið sem á Bylgjuna, væntanleg kaup á stöðinni og hvernig útvarpsumhverfið hefur breyst frá því hann byrjaði í útvarpi seint á níunda áratugnum. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi    pureshilajit.is

  15. 86

    Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi"

    Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu eins og ekkert væri eðlilegra. Báðir áttu þeir afmæli í vikunni, lífið var krufið, ákvarðanir fortíðar dregnar í efa og ýmislegt misgáfulegt rifjað upp eins og venjulega. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við. bakhjarlar manna eins og okkar… www.bpro.is www.bilasnyrtistodin.is www.kolski.is www.gefur.is

  16. 85

    Einmitt special #9 Menn eins og við "Að rækta vinahópinn"

    Í nýjasta þættinum af Menn eins og við ræða strákarnir um mikilvægi þess að rækta vinahópinn – hópinn sem þú hringir í þegar allt fer í apaskít, hópinn sem hlær með manni, stappar í mann stálinu og gefur ráð þegar þeirra er þörf. Baldur kemur svo með óvænta uppgötvun og segir okkur hver klippir Kylie Jenner – og hvernig það virkar. En stærri spurning vaknar líka: má nota sömu rakvél á andlitið og pungsann? Baldur hefur líka uppgötvað flottasta leigubílinn í Reykjavík og hefur varla keyrt í vinnuna síðan. Ekki nóg með það – hann er einnig búinn að finna besta bílasnyrtistað í borginni, þrátt fyrir að hafa leitað víða. Þá eru þeir félagar enn í sárum eftir að Vala Matt skammaði þá í vikunni, og fara yfir allt málið frá A til Ö. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við.

  17. 84

    Einmitt Special #8 Menn Eins & við eru ennþá að vakna daginn eftir með tatto!

      Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við ætluðu Baldur og Einar að vera ábyrgir og málefnalegir – ræða vetrafrí og páskafrí út frá skyldum venjulegra pabba. En það plan entist stutt því helgin hafði verið of ævintýraleg til að fara ekki yfir það fyrst en Baldur endaði á 101 Hótel, pantaði sér kampavínsflöskur á 9.800 krónur og flæktist þaðan inn í kvöld sem innihélt lækni með VIP-kort á leyniklúbb í Reykjavík. Morguninn eftir vaknaði hann með tvö ný tattoo og sennilega aðeins fleiri spurningar en þegar kvöldið hófst. Einar fór í allt aðra átt – bókstaflega – og endaði í Úlfarsárdal þar sem hann horfði á menn lemja hvorn annan fyrir framan um tvö þúsund manns. Stemningin, manngangurinn og dramatíkin eru krufin til mergjar. Eftir þetta allt ná þeir loksins að snúa sér að upprunalega efninu:     • Hvað gera venjulegir pabbar í vetrafríi?     • Hvernig lítur páska-planið út?     • Og hversu langt er hægt að fara út af sporinu áður en maður kallar þetta bara „innihald" Þáttur sem byrjaði sem skipulagsfundur en breyttist í ferðasögu, sjálfskoðun og mid lice crisis á sterum Þetta er alls ekki leiðinlegur þáttur – bara alls ekki sá sem þeir ætluðu að taka upp.

  18. 83

    Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta

    Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni kalla hann einn helsta sendiherra Ralph Lauren Polo á Íslandi. Í þættinum fara þeir yfir ferilinn, fagurfræðina og áhrifin – en láta ekki þar við sitja. Arnar gefur hreinskilið álit sitt á:     • Skinni á gallabuxum – snilld eða synd?     • Cargo-buxur – tímalaus praktík eða tískuslys?     • Og hvort Dolce & Gabbana sé raunhæfur kostur fyrir miðaldra menn. Þetta er léttur, beinskeyttur og afar skemmtilegur þáttur þar sem stíll, sjálfsmynd og smá hégómi mætast í góðu jafnvægi. Alls ekki leiðinlegt hlustunarefni.

  19. 82

    Einmitt Special #6 Menn eins og við "Kalóríur og Karlhormón"

    Í þessum þætti af Einmitt Special – Menn ræða Baldur og Einar við heilsufrumkvöðulinn Inga Torfa Sverrisson. Hvað gerist með testósterón á miðjum aldri? Erum við að vanmeta kalóríur? Við ræðum einnig nýja íslenska heilsuappið LifeTrack, sem Ingi og Linda Rakel Jónsdóttir hafa þróað fyrir íslenskan markað – einfalt verkfæri með yfir 9.000 íslenskum matvörum. Þetta er þáttur fyrir karlmenn sem vilja skilja líkama sinn – ekki berjast við hann.

  20. 81

    Einmitt Special #5 Menn eins og við "Í hverju ertu maður?"

    Í þessum þætti fara Baldur og Einar yfir tíu heitar vangaveltur um klæðaburð fullorðinna karlmanna. Skinny jeans eftir fertugt,  cargo buxur og hvort strikaskór gangi við jakkaföt allt út frá þeirra mati. En umræðan er miklu dýpri. Þeir ræða muninn á því að klæða sig yngri – og að klæða sig betur og hvers vegna fullorðinn stíll á að vera meðvitaður, ekki stressaður. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa einhvern tímann staðið fyrir framan fataskápinn og hugsað: „Er þetta enn að virka?"

  21. 80

    116. framkvæmdastjóri Krísuvík "Skýr merki um árangur"

    Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtökin, hefur haft afgerandi áhrif á þróun og eflingu starfsseminnar frá því hann tók við starfinu. Undir hans stjórn hefur verið lögð rík áhersla á fagmennsku, skýra framtíðarsýn og mannúðlega nálgun sem hefur styrkt innra starf samtakanna og aukið traust út á við. Elías er gestur í nýjasta þætti af Einmitt Hlaðavarp, þar sem hann ræðir sitt hlutverk sitt og vegferð Krísuvíkursamtakanna. Að auki standa Krísuvíkursamtökin fyrir árlegri fjáröflun í þessari viku undir yfirskriftinni Edruvika, þar sem markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi edrúmennsku og tryggja áframhaldandi rekstur og þróun meðferðar- og endurhæfingarstarfs samtakanna. Fjáröflunin er mikilvægur þáttur í því að halda úti öflugu starfi og gefur almenningi tækifæri til að leggja málefninu lið. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi    pureshilajit.is    

  22. 79

    Einmitt special #4 Menn eins og við / „Ég er kominn heim"

    Egill Ploder er nýkominn heim úr hárígræðslu frá Tyrklandi. Hann naut aðstoðar Baldurs og Einars í ferlinu og nú fara þeir yfir þetta allt saman eftir aðgerð og hvernig kollurinn á Agli er að koma undan verkefninu. Er þetta nú allt þess virði?

  23. 78

    Einmitt special #3 Menn eins og við

    Í þessum þætti ræða Baldur og Einar um næturkrem fyrir karla, andlitsvax, saursýnatöku, tyrkenska klippingar og þegar Baldur sá Maradona ekki skora í Argentínu 2009. Hér er eitthvað fyrir alla sem hafa gaman tilvistarkreppu miðaldra karla í Garðabæ.

  24. 77

    Einmitt Special #2 Menn eins og við. Egill Ploder á leið til Tyrklands

    Einar Bárðar og Baldur Rafn spjalla við Egill Ploder en Egill var á leiðinni til Istanbul þegar þátturinn var tekinn upp og var að gera sig kláran í hártilfærsluaðgerð með aðstoð þeirra félaga. Spurningarnar eru margar og svörin bæði gagnleg og sprenghlægileg í sumum tilfellum því ekki má tapa gleðinni þó menn hafi tapað hárinu. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is  Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans    egc.is - Hamraborg  mammaveitbest.is  fylgifiskar.is Nýbílavegi  kjotburid.is Austurvegi Selfossi  pureshilajit.is

  25. 76

    Einmitt Special #1 Menn eins og við:

    Einar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is  Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans    egc.is - Hamraborg  mammaveitbest.is  fylgifiskar.is Nýbílavegi  kjotburid.is Austurvegi Selfossi  pureshilajit.is    

  26. 75

    115. Guðmundur Fylkisson „Doktor í því sem virkar ekki"

    Maður ársins 2025 á langflestum miðlum landsins er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður. Maðurinn sem leitar að börnunum sem vilja ekki láta finna sig. Hann er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum ferilinn frá snjóflóðunum að vestan að leitarverkefnum dagsins í dag.

  27. 74

    114. Kjartan Már Kjartansson „í lagi í vera ekki hress ef maður verður hress aftur"

    Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi.

  28. 73

    113. Guðrún Karls Helgudóttir: "Hlutverk kirkjunnar er að þjóna öllum"

    Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir er gesturinn minn í þessum þætti. Það eru jól þegar hann kemur í loftið og við ræðum kirkuna og trúna og upprisu trúarinnar.    

  29. 72

    112. Þórdís Kolbrún "Það er dýrt að vera staðfsöst"

    Gestur minn í þessum þætti er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir — Ein öflugasti stjórnmálamaður landsins. Hún hefur á sínum ferli haft mikil áhrif á utanríkismál og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Við ræðum valdið og pólitískan kostnað þess að standa með þjóðunum sem standa með Íslandi.

  30. 71

    111. Gunnar Dan "Sprenging af ljósi"

    Gestur minn í þessum þætti af Einmitt er Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, sem nýverið gaf út bókina UFO101. Hann hefur í mörg ár sökkt sér ofan óútskýrð fyrirbæri og mögulega heimsóknir utanjarðarvera til jarðar — og Íslands. Við ræðum bókina og hvernig persónuleg andleg upplifun breytti sýn hans á alheiminn og mannkynið.

  31. 70

    110. Dr. Erla Björns "Vöknum seinna, sofum betur"

    Gestur minn í þessum þætti er Dr. Erla Björnsdóttir Sálfræðingur og sérfræðingur í svefnvenjum. Við ræðum áskoranirnar sem felast í því að búa hérna uppi í norðri og stilla klukkuna á móti lífræðilega tímabeltinu okkar

  32. 69

    109. Björn Berg "Grasið er ekki grænna.."

    Gestur minn í þessum þætti er Björn Berg fjármálaráðgjafi – skýrt, hressandi og ótrúlega gagnlegt spjall um hvernig við náum betra svigrúmi og sterkari fjármálum; hlustaðu hér.

  33. 68

    108. Ólafur Hand "Aldrei farið frá Flateyri"

    Gestur minn í þessum þætti er Ólafur William Hand, einn úr áhöfn togarans Péturs Jónssonar RE-69 sem var kallaður til björgunar á Flateyri nóttina sem snjóflóðið féll fyrir 30 árum.

  34. 67

    107. Páll Óskar "Ennþá Gordjöss"

    Gestur minn í þessum þætti er hin eini sanni Páll Óskar Hjálmtýrsson poppstjarna. Við tölum um nýjustu plötunni hans og Benna Hemm Hemm, bakslagið, ástin og batann. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: * hertzlangtimaleiga.is * Kolski.is * scavolini.is  * Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: * biobu.is - * egc.is - * mammaveitbest.is  * fylgifiskar.is * kjotburid.is * pureshilajit.is

  35. 66

    106 Mikael Kaaber "Fyrsta hlutverkið fimm ára"

    Gestur í þessum þætti er ungstjarnan Mikael Kaaber sem er að slá í gegn í söngleiknum Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu þar sem hann fer með annað aðalhlutverkið. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is Kolski.is scavolini.is  Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  36. 65

    105. Elli Egils "Lamaður af ástarsorg í tvo mánuði"

    Elli Egils er uppi á vegg hjá Weekend og Hr. Hnetusmjör, hann og konan hans María búa í Las Vegas þar sem þau vinna bæði í sinni list, ættleiða börn og búa til líf sem þeim langar í.

  37. 64

    104. Margrét Lára "Stórmótin í sumar, EM og Þjóðhátíð"

    Margrét Lára Viðarsdóttir er gestur minn í annað sinn, við ræðum um glænýja bók sem hún var að gefa út. Væntingar hennar til EM og næstu Þjóðhátíð Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is  Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  38. 63

    103. Einar og Baldur: Allt sem þú vildir vita um hárígræðslur

    Í nýjasta þættinum af Einmitt ræða Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason ferðalag sitt til Istanbúl í byrjun maí – þar sem þeir gengust báðir undir hárígræðsluaðgerð. Þeir fara yfir allt ferlið af hreinskilni og húmor – frá fyrstu hugsunum að lokaniðurstöðu. Sérstakur gestastjórnandi þáttarins er Ásgeir Kolbeinsson sem heldur utan um spjallið og hvetur þá til að fara alla leið í sögunni. Þetta er þátturinn fyrir alla sem hafa velt hárígræðslu fyrir sér – en aldrei þorað að spyrja. Hárið, húmorinn og hreinskilnin eru í forgrunni í þessum einstaka þætti. Ef þú vilt vita enn meira [email protected] Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is  Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  39. 62

    102 Sonja og Svavar „Við getum ekki annað"

    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins EINMITT ræðir Einar Bárðarson við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Florez, 17 ára drengs frá Kólumbíu, sem íslensk yfirvöld hyggjast vísa úr landi í byrjun júní. Í þættinum fara Sonja og Svavar yfir þann tíma sem Oscar hefur verið inn í þeirra lífi. Alveg frá því að hann fór að koma inn á heimilið sem vinur barnanna þeirra, frá þeim degi sem hann fór að búa hjá þeim, brottvísunina og til dagsins í dag.

  40. 61

    101. Eiríkur Ómar "Vaknaði í bráðauppskurði"

    Eiríkur Ómar Sæland er gestur minn í þessum þætti. Hann vaknaði í bráðauppskurði á Landspítalanum árið 2016 og er ennþá að glíma við eftirkostin af þeim læknamistökum.

  41. 60

    99. Eliza Reid "Diplómati deyr"

    Gestur minn í þessum þætti er Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú. Hún var að gefa frá sér sína fyrstu skáldsögu Diplómati deyr sem kemur út bæði hér og erlendis. Við ræðum ritstörfin, stílista, jafnrétti og lífið eftir Bessastaði í þessum stórskemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  42. 59

    98 Bogi Ágústsson "Átökin um traustið"

    Bogi Ágústsson hefur lesið fréttir fyrir okkur í 48 ár. Honum finnst þetta orðið alveg þokkalegt og segist vera á síðustu mánuðunum hjá Ríkissjónvarpinu. Þjóðin elskar Boga og treystir sem er lykilþáttur í fréttaflutningi. í þessum þætti ræðum við Bogi stærstu fréttir síðustu fimm áratuga og heimsmyndina eins og hún blasir við í dag. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>

  43. 58

    100. Bríet "Mig langar að ná til þeirra allra"

    Bríet er ein skærasta stjarna samtímans og í þessum þætti ræði ég við hana um tónlistina úr öllum þeim áttum sem hún mæti Bríeti. Söngur, flutningur, lagasmíðar, tónleikahald og ferðalög út í heim bæði til að upplifa frelsið, finna fjölskylduna sína og svo nýju verkefnin hennar í Nashville Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is  http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>

  44. 57

    96. „Litlar líkur en afleiðingar slæmar."

    Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og fyrrv. starfsmaður SÞ og NATO í Afganistan hefur blandast mikið inn í almenna umræðu síðustu vikna í sambandi við breytta ásýnd í heimsmálnum. Ég fékk Erling til mín til að útskýra stöðuna fyrir okkur á mannamáli. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is  Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>

  45. 56

    97. Jóhanna Guðrún "Shit hvað þetta er leiðinlegt lag!"

    Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er ein okkar allra besta söngkona og hefur verið frá því að hún var 10 ára. Eins skrítið og það kann að hljóma var eitt stærsta "comeback" íslenskrar tónlistar árið 2009 þegar hún landaði 2. sæti í Eurovision þá aðeins 18 ára. Við ræðum ferilinn hennar, Eurovision, FM957 og hvað Mömmur þurfa bara nauðsynlega að djamma Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is  Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is    

  46. 55

    95. Tolli "En er hægt að fyrirgefa allt?"

    Gestur minn í þessum þætti er Tolli vinur minn Morthens. Hann hefur í áratugi beit sér í málefnum fanga bæði í afplánun og eftir. Hann hefur í áratugi farið inn í fangelsin okkar með 12 spora vinnu sem í árana rás hefur þróast í hugleiðslu, jóga og öndunarvinnu. Tolli segir kærleikann og fyrirgefninguna eina sem togar mannin úr myrkrinu í birtuna. En er hægt að fyrirgefa allt? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: eLKO.is kolski.is scavolini.is  bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: BioBu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  47. 54

    94. Brynja Dan "Alin upp við það að fólk horfir"

    Brynja Dan Gunnarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún eigandi Extraloppunnar í Smáralind, eigandi 1111.is, bæjarfulltrúi og fyrrum varaþingmaður. Hún er fædd á Sri Lanka, en ættleidd hingað til lands aðeins tveggja mánaða gömul. Hún missti bæði föður sinn og móður hér á Íslandi fyrir tvítugt og það hefur sannarlega mótað hana. Við ræðum fjölskyldur, áföll, liti, hringrásina og lífið í þessum skemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is  Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: www.egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is Pureshilajit.is

  48. 53

    93. Gunni Hilmars "Vona að gleymi ekki að þetta er fólk"

    Gunni Hilmars er gesturinn minn í þessum þætti. Hann hefur verið í sviðsljósinu í áratugi sem tískumógull í GK, Anderson & Lauth, Kormák og Skjöld og núna Thomsen. Þá stofnaði hann dúettinn Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur á síðasta áratug og náð aðdáunarverðum árangri og þá hefur hann líka látið til sín taka í málefnum jaðarsetra í borginni. Magnað samtal. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is Scavolini.is  Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is

  49. 52

    92. Elín Hall "Ég er búin að læra að hlusta á líkamann"

    Elín Hall er gestur Einars Bárðarsonar í þessum þætti. Hún var bara 16 ára þegar hún tók þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Síðan tóku við hvert stórhlutverkið af öðru, Bubbi og Vigdís og Lof mér að falla og ofan í það tvær frábærar plötur. Nú eru 10 ár frá Söngvakeppninni og nú vita allir hver Elín Hall er, eða er það ? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: *Ég C Gleraugnaverslun, Hamraborg Kópavogi *Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi *Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, Kópavogi  *Kjötbúrið Austuvegi 65 á Selfossi *Pureshilajit.is

  50. 51

    91. Hannes Þór "Mamma grátbað mig að fara ekki"

    Hannes Þór Halldórsson er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum smá fótbolta en við ræðum þó mest hina hliðina á Hannesi sem er framleiðandi en nú er væntanleg í Sjónvarp Símans þriðja þáttaröðin af Iceguys en fyrsta myndbandið sem Hannes gerði var fyrir Nylon flokkinn árið 2024 fyrir rúmlega 20 árum.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

HOSTED BY

Einar Bárðarson

Produced by Einar Bárðarsson

Frequently Asked Questions

How many episodes does Einmitt / Menn eins og við have?

Einmitt / Menn eins og við currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Einmitt / Menn eins og við about?

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

How often does Einmitt / Menn eins og við release new episodes?

Einmitt / Menn eins og við has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Einmitt / Menn eins og við?

You can listen to Einmitt / Menn eins og við on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Einmitt / Menn eins og við?

Einmitt / Menn eins og við is created and hosted by Einar Bárðarson.
URL copied to clipboard!