Golfstöðin podcast artwork

PODCAST · health

Golfstöðin

Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Jun 10, 2026 · Source feed

  1. 12

    Tómas Hjaltested - Stigameistari Gsí 2025 - kominn heim frá USA

    Tómas Eiríksson Hjaltested er áhugaverður keppniskylfingur. Hann var að koma heim frá Bandaríkjunum en þar hefur hann verið á skólastyrk tengdum golfi síðustu ár. Sumarið 2025 var hann stigameistari á GSÍ mótaröðinni. Hann er einn af högglengri kylfingum landsins og hlakkar til íslandsmótsins í sumar. Hann segir okkur frá því afreki að hafa með viku millibili eða svo fengið albatross í Kiðjabergi og holu í höggi í Póllandi. Styrktaraðilar þáttarins eru:HreppamjólkGB ferðirMatlandBagbee

  2. 11

    Íþróttasálfræði og hausinn í golfi

    Margrét Lára Viðarsdóttir og Fannar Máni Fjalarsson starfa hjá Heil heilsumiðstöð og eru nýlega farin að bjóða upp á mjög áhugaverðan fyrirlestur um hausinn í golfi og hvernig má bæta hann. Þau fara aðeins yfir það hvað þau eru að predika í fyrirlestrinum, hvað kylfingar mættu tileinka sér við markmiðasetningu fyrir hringi ofl. Við ræðum aðeins Golf gamebook kvíðann sem sumir kannast vel við og heyrum hvernig íþróttasálfræðingum gengur sjálfum í golfi og með sinn haus í golfinu. Þátturinn er í boði:- Hreppamjólk- GB ferðir - Suitup- Matland

  3. 10

    Kári Sölmundarson - Golfklúbburinn Oddur

    Kári formaður Golfklúbbsins Odds kom og spjallaði um stöðuna í Oddinum þetta vorið, hvernig völlurinn kemur undan vetri, hvað klikkaði síðasta sumar ofl. Hann segir frá stækkun vallarins, hvenær það fer af stað og hvernig sú stækkun er skipulögð. Við komum svo létt inn á golfbíla í Oddinum, róbótavæðingu, æfingasvæðið ofl. Styrktaraðilar þáttarins eru:HreppamjólkMatlandGB ferðirSuitupBagbee

  4. 9

    Bjarni Þór Hannesson -Yfirvallarstjórinn sem fræðir

    Gestur hlaðvarpsins í dag heitir Bjarni Þór Hannesson og er yfirvallarstjóri í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Hann er mörgum kylfingum kunnugur fyrir það að setja áhugaverð myndbönd inn á samfélagsmiðla er varða golfvallaumhirðu og ástand golfvallanna í Mosfellsbæ. Bjarni er sprenglærður golfvallafræðingur, hefur starfað á mörgum golfvöllum og virðist hafa nokkuð gaman að því að miðla þekkingu á öllu sem tengist grasumhirðu og almennri umsjón golfvalla. Hann segir okkur frá mjög merkilegum nýjungum sem við munum sjá á golfvöllum landsins á næstu árum, segir okkur afhverju við sjáum ekki bakspuna á flötum hérlendis eins og þekkist erlendis, ástand valla eftir veturinn ofl. Hljómsveitin Moses Hightower lánaði okkur upptökuaðstöðu sína að þessu sinni þar sem Golfstöðin var einfaldlega uppbókuð hvern einasta dag. Þess má geta að stef þáttarins er Remix af laginu Sjáum hvað setur með Moses Hightower en Daði Freyr remixaði það svona lista vel. Þátturinn er í boði:HreppamjólkGB ferðirMatlandHreysti

  5. 8

    Sigmundur Einar Másson - Leikskipulag, tölfræði, strokes gained ofl

    Sigmundur Einar Másson er einn helsti séní landsins í leikskipulagi í golfi, strokes gained, tölfræði og fleira í þeim dúr. Hann hefur aðstoðað marga af bestu kylfingum landsins við að greina sinn leik og nota tölfræðilega greiningu til þess að skipuleggja sig og sínar ákvarðandi á golfvellinum. Í þættinum fer hann aðeins yfir bakgrunninn og hvernig hann endaði á að sérhæfa sig í þessum fræðum. Hann útskýrir strokes gained tölfræði sem er frekar ný af nálinni og hvernig hann lætur kylfinga skrá öll sín högg til þess að byggja upp gagnagrunn til greiningar. Þátturinn er í boði:HreppamjólkGB ferðirSuitupMatland

  6. 7

    Kylfuhraðaþjálfun

    Í þessum þætti köfum við aðeins ofan í kylfuhraða, hvað ákvarðar hann og hvernig hægt er að þjálfa hann. Hvaða máli skiptir kylfuhraði í nútíma golfi og hver er munur á meðalhögglengd eftir forgjöf? Hver eru algengustu mistökin sem kylfingar gera þegar þeir þjálfa kylfuhraðann? Hvernig virka superspeed græjur og hverju skila æfingar með slíkum græjum?Styrktaraðilar þáttarins eru:- Hreppamjólk- Matland- Hverslun- GB ferðir- Suitup

  7. 6

    Guðni Valur - sá högglengsti

    Guðni Valur Guðnason er þekktastur fyrir afrek sín í kringlukasthringnum. Hann leynir þó á sér á golfvellinum, er hörku kylfingur og sennilega sá allra högglengsti á landinu með kylfuhraða upp undir 150mph. Guðni Valur lýsir aðeins golfinu sínu, hvernig hann æfir og fleira. Hann segir okkur helstu tölur sem hann á í lyftingum, hvort hann stefni á long drive keppnir ofl skemmtilegt. Styrktaraðilar þáttarins eru:www.matland.iswww.suitup.iswww.gbferdir.iswww.hverslun.iswww.hreysti.is

  8. 5

    Hlöðver Guðnason - Golfkennari eldri kylfinga

    Hlöðver Guðnason byrjaði merkilega fullorðinn í golfi miðað við að hann sé PGA golfkennari og lágforgjafar keppniskylfingur. Hann segir okkur söguna af því hvernig hann byrjaði og hvernig ferlið var að lækka sig niður undir 5 í forgjöf. Við ræðum námskeið sem hann kennir í Golfstöðinni þar sem blandað er saman golfkennslu og líkamsrækt fyrir 60 ára og eldri. Í PGA náminu einbeitti Hlöðver sér sérstaklega að þjálfun eldri kylfinga með stoðkerfisvanda og segir okkur aðeins frá lokaverkefninu sem var um það. Hann sjálfur hefur góða reynslu af líkamsrækt fyrir golfið og hefur með henni haldið sér í góðum kylfuhraða og átti sennilega sitt besta golftímabil í sumar. Eftirtaldir aðilar styðja við hlaðvarpið:- Matland- GB ferðir- Hverslun- Suitup- Hreysti

  9. 4

    Birgir Björnsson kylfusmiður - mýtur tengdar kylfumælingum ofl

    Birgir Björnsson er pga kennari, kylfusmiður og allsherjar grúskari. Í þættinum ræða Biggi keisari, eins og hann er kallaður, heimsókn Bjarna Más til hans í kylfumælingu, hvað kom útúr þeirri mælingu og hvað Biggi gat ráðlagt honum. Í framhaldi ræða þeir hverjir hafa þörf á kylfumælingum, algengar mýtur í kringum slíkar mælingar og hvaða hluti verið er að hugsa við val á mismunandi kylfum og búnaði. Þeir ræða stuttlega einnar lengdar kylfur eins og Bryson notar, breytta gráðutölur á járnum í dag, vinsældir trékylfa síðustu ár o.s.frv.Styrktaraðilar þáttarins eru:HreystiSuitupMatlandGB ferðirHverslunGolfstöðin

  10. 3

    Styrktarþjálfun golfara

    Í þessum þætti fjallar Bjarni Már sjúkraþjálfari- og golfstyrktarþjálfari um grunnatriðin í styrktarþjálfun golfara. Hvernig gagnast styrktarþjálfun golfurum, hvernig eiga golfarar að vera að lyfta öðruvísi en aðrir og svarar nokkrum algengum spurningum sem varðar málið. Styrktaraðilar þáttarins eru:GB ferðirHverslunSuitupMatlandHreystiwww.golfstodin.is

  11. 2

    Grétar Eiríksson - Elva golf

    Í þessum þætti kemur Grétar Eiríksson PGA kennari og einn af stofnendum Elva golf og segir okkur frá þessu áhugaverða íslenska nýsköpunarfyrritæki. Þeir hafa þróað hárnákvæmt greiningartæki sem greinir hreyfingar kylfinga í öreindir, nánast um leið og slegið er. Fyrstu básar eru komnir í gagnið og Bjarni Már fór fyrir þáttinn í greiningu hjá Grétari sem sýndi honum græjurnar og greindi sveifluna.Styrktaraðilar þáttarins eru:H-verslunGB ferðirSuitupHreystiMatland

  12. 1

    Ragga Kristins - Mælingar, æfingar og golfið

    Gestur þáttarins er Ragga Kristins atvinnukylfingur. Hún fer yfir TPI Hreyfigreiningar sem hún hefur farið í, fyrst fyrir tveimur árum og svo sama dag og þátturinn var tekinn. Við ræðum niðurstöðurnar, hvernig hún æfir sig bæði í ræktinni og hvernig hún æfir sig í golfi. Ragga gefur okkur góða innsýn inní hennar tölur, markmið og áherslur í æfingum. Við förum talsvert á dýptina varðandi kylfuhraða, styrktaræfingar ofl.

  13. 0

    Kynningarþáttur

    Í þessum þætti kynnum við hlaðvarpið Golfstöðina. Hvað verður tekið fyrir í framhaldinu, hver er þáttastjórnandinn og við hverju má búast. www.golfstodin.isSamstarfsaðilar þáttarins eru: Hreysti GB ferðirSuitup Matland

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.

HOSTED BY

Bjarni Már Ólafsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Golfstöðin have?

Golfstöðin currently has 13 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Golfstöðin about?

Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi...

How often does Golfstöðin release new episodes?

Golfstöðin has 13 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Golfstöðin?

You can listen to Golfstöðin on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Golfstöðin?

Golfstöðin is created and hosted by Bjarni Már Ólafsson.
URL copied to clipboard!