Skip to content
Guð-spjall podcast artwork

PODCAST · religion

Guð-spjall

by Steinunn A Björnsdóttir

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 16, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Sálmar í stríði og Benóný á ballinu

    Í þessum þætti verður aðeins brugðið út af vananum og í stað þess að ræða texta næsta sunnudags tölum við um sálmabækur að fornu og nýju, deilurnar um Leirgerði, um það þegar Matthías Jochumsson var lagfærður og um sálma á arabísku. Við fjöllum líka um túlkunar- og textafræði dægurlaga - var það...

  2. Páskar enn og aftur

    Spjallað um atburði kyrruviku frá ýmsum sjónarhornum.

  3. Vatni breytt í vín í þurrum janúar

    Þarf alltaf að vera vín? Brúðkaupið í Kana getur verið erfitt að skilja ef áfengismagnið truflar okkur. Hvað var Jesús að fara með þessu? Og tengist þessi saga Bakkusarátrúnaði? Var Jesús dónalegur við mömmu sína? Og hvaða Guð er það sem við sjáum bara hnakkann á? Þetta og fleira og fleira til...

  4. Andar í varðhaldi og apokrýfan

    Fyrsta Pétursbréf hefur stutta en dularfulla setningu um að Jesús hafi predikað fyrir öndunum í varðhaldi. Tengist það etv. frásögn í apókrýfu Pétursguðspjalli? Og hvað þýðir skírnin? Hver sá dúfuna og heyrði röddina? Það eru engin einföld svör en ótal spurningar í þessu hlaðvarpi um texta fyrsta...

  5. Jólaþáttur 2021: ljósmæður og lítil orð

    Hvað er í jólagruðspjallinu og hvað er ekki. Hvað höldum við að sé þar og hvað hugsum við aldrei um? Og hversu lengi er hægt að ræða um gríska orðið και (kæ eða ke)? Hvað sögðu englarnir? Þetta og ýmislegt annað í jólaþættinum sem vísar talsvert til þáttar nr. 21 um jólagruðspjallið. Mælt með...

  6. Auðmýkt, asnar og aðventa

    Létt spjall um texta aðventunnar og ýmsa fleiri texta.

  7. Þetta er auðvitað kolrangt! Spjallað um þýðingaraðferðir og annað skemmtilegt

    Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson er gestur þáttarins að þessu sinni og ræðir við okkur um þýðingaraðferðir. Sérstaklega er rætt um Jesaja og þakkarsálm Hiskia konungs, sem var viðfangsefni doktorsrannsóknar hans. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós, t.d. leysir hann þýðingarvanda sem aðrir hafa verið...

  8. Hafið, ógnin og umvöndunarháttur þátíðar

    Voru lærisveinarnir hræddir við smá golu? Af hverju beitti Páll umvöndunarhætti þátíðar? Og hver er þessi maður að vindur og vatn hlíða honum? Textar sjómannadags skoðaðir í stuttu spjalli um textanna, sjómennsku og sjómannadaginn. Lexía: Slm 107.1-2, 20-31 Þakkið Drottni því að hann er góður…

    more
  9. Gestrisni er trúariðkun. Saga úr Mamre-lundi

    Ekki er allt sem sýnist þegar þrír menn heimsækja Abraham. Þekkt saga sem segir margt. Kunnug úr fleiri trúarhefðum, túlkuð á ýmsan hátt, meðal annars í tengslum við þrenninguna. Textar þrenningarhátíðar skoðaðir. Lexía: 1Mós 18.1-5 Abraham sat í tjalddyrum sínum í miðdegishitanum í Mamrelundi er...

  10. Eldfim tunga og erfiðar þýðingar

    Hvítasunnuundrið, Kinnin og Nasaret, besta veðrið til að þurrka steinbít, hið eilífa vor og mál beggja kynja - hér er komið víða við í spjalli um texta hvítasunnu. Lexía: Jl 3.1-5 Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, gamalmenni yðar mun dreyma drauma og...

  11. Bænabók Jesú og Boney M

    Hér er farið vítt og breytt um Sálmana, bænabókarinnar sem Jesús þekkti. Við skoðum orð og þýðingar, merkingar, hugsanarím og harma og lítum að eins á tengsl þeirra við þekkta þætti í menningu og málfari. Útgangspunkturinn er Sálmur 102 sem hér er birtur: Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast og...

  12. Guð-spjall, 39. þáttur: Andhetjan Abraham, Hagar og heimiliserjur

    Staðgöngumæðrun, þrælahald, afbrýðissemi, talhlýðni og grimmd eru til umræðu í þættinum, ásamt myndarlegu magni af ritskýringu. Lexían á sviðið en tæpt er á pistli og guðspjalli. Lexía: 1Mós 21.8b-21 Þann dag, er Ísak var vaninn af brjósti, gerði Abraham veislu mikla. Sá þá Sara son Hagar hinnar...

  13. Guð-spjall, 38. þáttur: Réttlæti, átök, villa og trú

    Textarnir bjóða upp á spjall allt frá málfræði yfir í trúfræði, þjóðfélagsmál og fleira. Lexía: Sak 8.16-18 Þetta er það sem ykkur ber að gera: Segið sannleikann hver við annan og fellið dóma af sanngirni og velvilja í hliðum yðar. Enginn yðar ætli öðrum illt í hjarta sínu og fellið yður ekki við...

  14. Guð-spjall, 37. þáttur: Allt um hirðinn og svolítið um dyrnar

    Hér er rætt um góða og slæma hirða, aðeins um sauðfjárverndina og dálítið um dyr. Guðspjallið er snúið og sumir hafa burtskýrt hluta þess en það er ekki alveg keypt í þessu spjalli. Textar vikunnar: Lexía: Jer 23.1-6 Vei hirðunum sem leiða sauðina afvega og tvístra hjörðinni sem ég gæti, segir...

  15. Guð-spjall, 36. þáttur: Kristilegur kommúnismi og postullegt spretthlaup.

    Hinir fyrstu kristnu seldu eigur sínar og gáfu öllum jafnt. Hvað þýðir það fyrir okkur? Og hver vann postullega spretthlaupið að gröfinni og af hverju er sagt frá því? Stutt spjall um texta næsta sunnudags og guðspjall páskadags með viðkomu í fornöld og nútíma. Textar 1. sun eftir páska: Lexía…

    more
  16. Guð-spjall um glænýtt Kirkjurit: Hver skráir söguna og hvaða sögu?

    Sérþáttur um nýútkomið Kirkjurit með fjölbreyttu efni. Blaðið sjálft má nálgast hér. Við ræðum við sr. Arnald Mána Finnsson sem situr í ritnefnd ritsins um skráningu sögunnar - um það sem gerðist en hvergi er skráð, til dæmis varðandi samskipti fólks í Samtökunum 78 og Þjóðkirkjunni, um trúarhóp...

  17. Guð-spjall, 35. þáttur: Óskalögin: Basans uxar og steinninn stóri

    Við fögnum árs afmæli Guð-spjalls þáttanna með köku og í sykurvímu ákveðum við að fjalla um einhverja texta sem við höldum upp á og tengjast dymbilviku og páskum, frekar en texta næsta sunnudags. Þetta eru eiginlega óskalögin. Við völdum Sálm 22 og upprisufrásögn Markúsar. Sálmur 22 Guð minn, Guð...

  18. Guð-spjall, 34. þáttur: Hvað er sannleikur?

    Þegar stórt er spurt reyna spekingar gjarnan að svara. Við tökumst á við þessa spurningu og fleiri í þætti dagsins þar sem fyrir koma skúffaðir embættismenn, harðstjórar í heimspekisamræðum, hugtökin synd og fyrirgefning og svo hún María sem gladdist við að hitta Elísabetu, sem skildi hvað hún…

    more
  19. Guð-spjall, 33. þáttur: Matur, líf og gnægð

    Matur er miðlægt þema í textum dagsins, mettun og styrking og gnægð. Og líf. Og út frá því fer spjall okkar í ýmsar áttir, frá sögum úr sveitum yfir í frumkirkjuna og bókina Sapiens og hvort landbúnaðarbyltingin hafi veirð mannkyni böl. Lexía: 2Kon 4.42-44 Einu sinni kom maður frá Baal Salísa og...

  20. Guð-spjall, 32. þáttur: Jarðhræringar í textum og túlkun óláta í sviðsmynd dagsins

    Hér er rætt um Samúelsbækur, versin sem ekki eru inni í textum dagsins og margar sviðsmyndir dregnar upp í anda umræðu vikunnar. Páll postuli kemur einnig við sögu og glannalegar tengingar milli hans, Neró og ofsókna á hendur kristnum. Þá er þeirri spurningu velt upp hvers vegna í ósköpunum Jesús...

  21. Guðspjall, 31. þáttur: Tala dýrsins, drottningin af Saba og demónar

    Við förum vítt og breitt í þessum þætti. Opinberunarbókin og tala dýrsins, spekirit og drottningin af Saba sem hitti Salómon (og hve náin voru þau kynni), trú, vantrú og demónar. Lexía: Okv 4.23-27 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins. Haltu munni þínum fjarri...

  22. Guð-spjall, 30. þáttur: Tekið fast á föstunni og flókið guðspjall

    Þrjátíu þættir! Og samt eins og við höfum ekkert lært. Lexíu og pistil má tengja föstunni en guðspjallið - jahérnahérna! En við gerum okkar besta og tínum að auki til ýmislegt - deilur Páls postula við kjaftfora liðið í Korintu, þýðingar sr. Páls í Selárdal og fólkið sem telur öruggt að Guð...

  23. Guð-spjall, 29. þáttur: Æ, þarf að tala um aga?

    Textarnir í föstuinngang eru margþættir og mann gæti grunað að einhverjir vildu helst skera þá við trog. En þó má ýmislegt um þá segja. Til dæmis hvað er sameiginlegt með skurðgoðasafni og Kibbútz samyrkjubúunum. Lexía: Jes 57.13-15 Lát skurðgoðaflokk þinn bjarga þér þegar þú hrópar á hjálp....

  24. Guð-spjall, 28. þáttur: Vá, það eru konur í Biblíunni!

    Vissir þú að fyrsti Evrópubúi sem tók kristni var kona? Veistu hvað hún hét? Biblían, konurnar og köllunin er þema þessa þáttar sem skoðar texta 2. su. í níuviknaföstu sem jafnframt er Biblíudagurinn. Textar dagsins: Lexía: Jes 48.16-19 Komið til mín og heyrið þetta: Frá upphafi hef ég aldrei…

    more
  25. Guð-spjall, 27. þáttur: Er allt hégómi? Eða bara röng þýðing? Og hver er ávinningurinn af stritinu?

    Predikarinn mætir með sínar þekktustu setningar. Allt er hégómi, aumasti hégómi - eða hvað? Við köfum í það og kíkjum svo á aðra texta næsta sunnudags. "Hver er ávinningurinn?" er etv. hin sameiginlegi þráður en svörin misjöfn. Já, og svo er hann Páll postuli eitthvað að tala um skít. Svona kemur...

  26. Guð-spjall, 26. þáttur: "Ég er sá sem ég er"

    Hið dularfulla svar Guðs við spurningu Móse um nafnið er til umræðu, Guð sem er, hinn verandi Guð; Birtan, fjallið, breytingin - já - og hvernig stóð á því að Guð var kallaður Jehóva. Hér er tæpt á ýmsu í þætti vikunnar um texta næsta sunnudags. Lexía: 2Mós 3.1-15 Móse gerðist fjárhirðir hjá...

  27. Guð-spjall, 25. þáttur: Blindan og blygðunarsemin

    Blindir menn fá sýn, hórkarlar eru ávíttir. Hér er rætt um texta 2. sunnudags eftir þrettánda, annars vegar um kraftaverk og hins vegar um ávítur Páls postula vegna þess að hinir kristnu karlar í Kórintuborg sóttu vændishús. Eins og áður er komið víða við, orðaleikur úr grískunni skírður og enn…

    more
  28. Guð-spjall, 24. þáttur: Þrettándinn, tröllin og vitringarnir.

    Hvað er líkt með Cicero og Biden? Hvar segir að vitringanir hafi verið þrír? Hvernig er best að komast yfir Jórdaná og af hverju var Jesús skírður þar? Þetta er meðal þess sem við tökum fyrir í þessum þætti þar sem farið er yfir texta þrettándans og texta fyrsta sunnudags eftir þrettánda....

  29. Guð-spjall, 23. þáttur: Barnamorðin og blessaður þjóðsöngurinn

    Af fjölmörgum textum jóla veljum við tvo. Samræður fara vítt um svið og við sögu koma Heródes, Kleópatra og samtímafólk þeirra en einnig Matthías Jochumsson og sálmurinn Lofsöngur sem varð að þjóðsöng - líka vers tvö, sem er aldrei sungið. Áramót eru tími til að rifja upp tímamótaviðburði....

  30. Guð-spjall, 22. þáttur: Orðið og upphafið - guðspjall jóladags

    Hér er rætt um guðspjall jóladags þar sem farið er aftur í sköpun heims og rætt um hið skapandi orð og skilning Jóhannesar. Guðspjall: Jóh 1.1-14 Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er.…

    more
  31. Guð-spjall, 21. þáttur: Jólaguðspjallið er ekki allt sem sýnist

    Í þessum þætti tökum við fyrir jólaguðspjallið sjálft og komumst að því að ranglega sé haft eftir englunum og gistihúsaeigandinn sé fjarri. Það þarf eiginlega að vara fólk við þessum þætti en við mælum samt með honum. Guðspjall: Lúk 2.1-14 En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi...

  32. Guð-spjall, 20. þáttur: Vonin, biðin og brotnir tímar

    Í fyrsta sinn er Barúksbók hluti af textaröðinni. Í textanum er því spáð að Jerúsalem rísi á ný og verði borg réttlætis og friðar. Í Pistlinum úr Jakobsbréfi bíður fólk endurkomunnar og tekur að gæta óþolinmæði á háskalegum tímum þegar pólitík í borginni er á suðupunkti. Og í guðspjallinu er...

  33. Guð-spjall, 19. þáttur: Messías og skyrið

    Adda Steina og Sveinn spjalla um texta fyrsta sunnudags í aðventu með ýmsum útúrdúrum, bæði í þýðingarmálum og þjóðlegum fróðleik. Textar dagsins eru: Lexía: Jes 42.1-4 Sjá þjón minn sem ég styð, minn útvalda sem ég hef velþóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun færa þjóðunum réttlæti.…

    more
  34. Guð-spjall, 18. þáttur: Fæðingarhríðir, forlög og forgengileiki

    Farið er vítt og breytt í hlaðvarpi vikunnar og ýmislegt dregið fram, þar með hugsanleg breyting á frægum versum úr predikaranum, umræða um fæðingarhríðir náttúrunnar og svo auðvitað dóminn - og þar með forlagahyggju og náð. Jólavísan Jólasveinar einn og átta kemur þarna fyrir og ýmislegt fleira....

  35. Guð-spjall, 17. þáttur: Eskatólógía og olía

    Sveinn og Steinunn Arnþrúður ræða texta sunnudagsins 15. nóvember á misalvarlegum og léttum nótum. Þetta er næst síðasti sunnudagur kirkjuársins og við erum komin að dómsdagstextunum. Lexía: Sef 3.14-17 Hrópaðu af gleði, Síonardóttir! Fagnaðu hástöfum, Ísrael! Þú skalt kætast og gleðjast af öllu...

  36. Guð-spjall, 16. þáttur: Skuldafangelsi eða fyrirgefning - er það einhver spurning?

    Í þessum þætti er vitnað í Aristóteles, Ágústínus (vafasöm fullyrðing?) og Guiliani, talað um trú, rök og tilfinningar og töluna sjö og sjö sinnum sjö. Er mikið mál að fyrirgefa sjö sinnum? Gefa enn einn séns? Textarnir eru valdir úr textum næsta sunnudags sem er bæði Kristniboðsdagurinn og 22…

    more
  37. Guð-spjall, 15. þáttur: Sælir - eða vansælir?

    Textar Allraheilagramessu eru til umfjöllunar í þessum þætti. Er hægt að vera sæll í erfiðum aðstæðum? Af hverju eru syrgjendur sælir? Steinunn og Sveinn ræða sæluboðin og aðra texta með grímu fyrir andliti og vel sprittuð. Textar dagsins: Lexía: Jes 60.19-21 Sólin verður ekki framar ljós þitt um...

  38. Guð-spjall, 14. þáttur: Skapa fötin manninn? Vondir tímar, víndrykkja og vonin

    Spjall um texta sunnudagsins 25. október. Þar er boð í brúðkaupsveislu, brenna og morð, "þetta eru vondir tímar" segir postullinn, en samt er megináherslan á boð í veislu þar sem allt er ókeypis - og á veisluklæðin. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Sveinn Valgeirsson spjalla um textana…

    more
  39. Guð-spjall, 13. þáttur: Þjáningin, misskilningurinn, túlkunin

    Textar vikunnar fjalla allir um þjáningu en frá mismunandi hliðum: Lexían er úr Jobsbók þar sem þekktur texti fær nýja túlkun, pistillinn fjallar í raun um staðgengil - þ.e. að þjást fyrir aðra og í guðspjallinu mætum við ekkju sem hafði misst einkason sinn. Textarnir eru: Lexía: Job 19.25-27 Ég...

  40. Guð - spjall, 12. þáttur: Guð og brjóstin, áhyggja og umhyggja

    Áhyggjur okkar og umhyggja Guðs er viðfangsefni texta næsta sunnudags, 15. su e. þrenningarhátíð. Lexía: Jes 49.13-16a Lofsyngið himnar, fagna þú jörð, þér fjöll, hefjið gleðisöng því að Drottinn hughreystir þjóð sína og sýnir miskunn sínum þjáðu. En Síon segir: „Drottinn hefur yfirgefið mig, Guð...

  41. Guð-spjall, 11. þáttur: Enn um andann helga og fjölbreytt hlutverk hans, misskilninginn með monogenes og mælskulist fornaldar.

    Við spjöllum um texta hvítasunnudags og annars í hvítasunnu. Þarna er bakgrunnur textans skoðaður, áherslur og einstök orð. Þar á með hvers vegna orðið eingetinn kom inn í íslenskuna, og hvort anda Drottisn sé úthellt yfir mannkyn eða yfir alla sköpunina (Jóel 3:1). Að auki ræðum við eitt og…

    more
  42. Guð-spjall, 10. þáttur: Uppstigning, andlausi sunnudagurinn og skandallinn

    Hér spjöllum við um texta uppstigningardags og texta 6. sunnudags eftir páska, sem stundum er kallaður andlausi sunnudagurinn (og nafnið er skýrt í þáttunum). Hæfilega létt spjall og jafnvel brandarar, dálítil gríska og ýmiskonar fróðleikur Textana eru á eftirfarandi linkum: Uppstigningardagur og...

  43. Guð-spjall, 9. þáttur: Bænir og bersöglismál

    Steinunn Arnþrúður og Sveinn fara vítt og breitt í þessu spjalli og segja frá ævi spámanns, stofnanda Rómar, þýða áhugaverð orð og velta fyrir sér umræðunni um eðli Krists. Lexía: Jer 29.11-14a Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til...

  44. Guð-spjall, 8. þáttur: Steinhjartað, verjandinn og spekin

    Við förum vítt og breitt í umfjöllun um texta dagsins. Það er ýjað að ýmsu um Ezekíel, pirrast og sögur sagðar, glímt við þýðingu á orðinu parakletos og fleira og fleira. Textarnir eru hér: Lexía: Esk 36.26-28 Ég mun gefa ykkur nýtt hjarta og leggja ykkur nýjan anda í brjóst. Ég mun taka...

  45. Guð-spjall, 7. þáttur: Útlegð, undarleg boð og ófríður Jesús

    Steinunn og Sveinn ræða texta næsta sunnudags og missa sig aðeins í ýmsum léttum sögum og vangaveltum um Unorthodox, af hverju Orígenes taldi Jesú ófríðan og af hverju við megum ekki hafa kanadíska þræla. Textarnir eru þessir: Lexía: Jes 43.16-19 Svo segir Drottinn sem lagði veg yfir hafið og…

    more
  46. Guð-spjall, 6. þáttur: Hirðirinn og leiguliðinn

    Góði hirðirinn, hirðishlutverkið, leiðtoginn - allt þetta er til umræðu í þessu hlaðvarpi sem er styttra en venjulega og alveg passlegt fyrir einn kaffitíma. Njótið vel. Lexía: Esk 34.11-16, 31 Því að svo segir Drottinn Guð: Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. Eins og…

    more
  47. Guð-spjall, 5. þáttur: Samfylgd og sannfæring

    Í þessum þætti ræðum við um frásögninga af Emmausförunum sem er í Lúkasarguðspjalli, 24.13-35 og síðan um það þegar Jesús birtist lærisveinunum bakvið luktar dyr og Tómas var vantrúaður, Jóhannesarguðspjalli 20.19-31. Við ræðum samfylgdina, T. S. Eliott, hugtakið Shalom og hvernig spyrja má um...

  48. Gud-spjall, 4. þáttur: Dymbilvika og páskar, þáttur í þremur hlutum.

    Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sveinn Valgeirsson takast á við texta dymbilviku og páska og velta upp ýmsum flötum, svo sem stórum steini, fótaþvotti og því hvort Páll postuli myndi hallast að rétttrúnaðarkirkjunni í skilningi sínum á eðli Krists. Einnig hebreska orðinu Peshar, gríska orðinu...

  49. Guð-spjall, 3. þáttur: Fátæka hafið þið alltaf hjá yður - eða hvað?

    Steinunn Arnþrúður og Sveinn takast á við texta Pálmasunnudags og fara vítt og breytt. Textarnir eru eftirfarandi: Lexía: Sak 9.9-10 Fagna mjög, dóttirin Síon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem. Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna, ungum...

  50. Guð - spjall, 2. þáttur: Eirormar, æstir menn og ætlunarverk Maríu.

    Prestarnir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sveinn Valgeirsson skoða spjalla um texta næsta sunnudags, sögurnar að baki þeim og hugsanlega túlkun. Að þessu sinni verða textar 5. sunnudags í föstu skoðaðir en einnig textar boðunardags Mariu, sem er 25. mars. Textar 5. su. í föstu: Lexía: 4Mós...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

HOSTED BY

Steinunn A Björnsdóttir

Frequently Asked Questions

How many episodes does Guð-spjall have?

Guð-spjall currently has 51 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Guð-spjall about?

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

How often does Guð-spjall release new episodes?

Guð-spjall has 51 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Guð-spjall?

You can listen to Guð-spjall on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Guð-spjall?

Guð-spjall is created and hosted by Steinunn A Björnsdóttir.
URL copied to clipboard!