Skip to content
Úti podcast artwork

Úti

by Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal.Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti.Email: [email protected] eða [email protected]: @utihladvarpHjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton

From the show's RSS feed, refreshed Oct 23, 2026. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir

    Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að…

    more
  2. Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir

    Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.

  3. Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)

    Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru…

    more
  4. Róbert Marshall og meira úti

    Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og...

  5. Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi

    Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér. Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust...

  6. Birta & Emil - Allir í skátana!

    Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum,...

  7. María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift

    Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá...

  8. Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið

    Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann...

  9. Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára

    Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki...

  10. 90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir

    Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun. Peloton...

  11. Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi

    ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu. Úti er í boði...

  12. 69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig

    Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur. Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að...

  13. 68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf

    Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og...

  14. 67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur

    Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét...

  15. 66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn

    Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún...

  16. 65. Rafmagnshjól

    Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt. Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól. Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá…

    more
  17. 64. Uppgjörið 2025

    Í þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra og það sæta. Eins tilkynnum við um þann aðila sem hlýtur Gullhjálminn árið 2025....

  18. 63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo

    Yfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi kostninga sem verða næsta vor. Hjólavarpið er í boði Pelaton reiðhjóla- og…

    more
  19. 62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí

    Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið…

    more
  20. 61. Efni

    Í þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti. Hjólavarpið er í boði Pelaton, hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum. Þar má finna frábær hjól og vörur tengdar hjólreiðum.

  21. 60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar

    Í þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar á meðal Ligandrol, Ostarine og RAD140. Eins hefur Þorsteinn sjálfur gefið út…

    more
  22. 59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson

    Í þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson, hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum. Böddi hefur verið virkur í athugasemdum um næringu og hreyfingu á samfélagsmiðlum og við förum dálítið yfir stemninguna í...

  23. 58. Viku á undan Tour de France

    Félagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson, eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton, létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France. Í þættinum fjöllum við um þetta ævintýri, hvernig þeir undirbjuggu sig fyrir 3.338 kílómetra og 51.550...

  24. 57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin

    Í þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í þættinum förum við yfir alla dagana, hvernig okkur gekk og svo svona hvað okkur fannst stand...

  25. 56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer

    We’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage and the overall victory: Starla Teddergreen and Lauren Zimmer. Starla is the co-owner of...

  26. 55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins

    Umfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason. Þessi þáttur er unninn í samstarfi við Fors.is sem selur úrvals vítamín og fæðubótaefni. Þau eru með Kinetica orkugelin sem bragðast sjúllað…

    more
  27. 54. Grefillinn yfirferð

    Smá yfirferð frá frábærri keppni, ný leið og allskyns snilld í gangi. Hafdís Sig. tók þetta kvennamegin í 200 km og hún kíkti í viðtal, heyrðum líka í Jóhönnu Bárðard. og mótastjóranum Mæju Sæm. Þátturinn er styrkur af Stillingu og snillingunum hjá Pedal.is.

  28. 53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks

    Að þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins yfir tengsl viðmælenda við hjóla síðan rennum við yfir helstu eigindir í þessari keppni…

    more
  29. 52. The Rift uppgjörið

    Í þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið, eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu Rún Hákonard. markaðsstjóra Lauf eins heyrum við aðeins í Ingvari Ó. nýkríndum...

  30. 51. Nú er það gult - Rynkeby ævintýrið

    Við fáum Elvar Jóns. sem kemur og segir okkur frá Rynkeby. En á hverju ári fer galvaskur hópur fólks frá Íslandi á gulum hjólum og ferðast frá Danmörku til Parísar. Verkefnið snýr þó ekki bara að hreyfingu og heilsueflingu heldur er líka góðgerðarbatterí og eitthvað miklu meira. Hópurinn fer út...

  31. 50. Götuhjól á þingvöllum > Bríet, Ingvar og Daninn (Alfred Grenaae))

    Í þættinum renni ég aðeins aftur yfir þennan árekstur og ég renni aðeins yfir umfjöllun sem tengist því, en síðan hendi ég mér bara beint í stutta yfirferð frá götuhjólamóti síðustu helgar og fæ smá viðbrögð frá þátttakendum í elite karla og kvenna. Það var Ingvar Ó. sem varð í öðru sæti, næst…

    more
  32. 49. Fokkin jeppi sem klessti á mig og ferð yfir alpana

    Í þessum þætti deili ég fyrst hrakförum úr eigin lífi áður en ég fer yfir 10 daga ævintýraferð yfir Alpana, frá Þýskalandi til Ítalíu, með Brynjari vini mínum. Við ræðum útsýni, mat, áskoranir – og veltum fyrir okkur því helsta sem stóð uppúr ferðinni. Síðan erum við með hagnýtar pælingar fyrir…

    more
  33. 48. Tyler Wacker and the Westfjords Way

    Ath. þessi þáttur er að mestu á ensku / this episode is mostly in english. Tyler Wacker er ævintýrahjólari sem hefur komið víða við, eins og stendur er hann potturinn og pannan í hjólauppbyggingu á vestfjörðum og kemur að skipulagi og undirbúningi Westfjords Way Challenge. Í þættinum förum við…

    more
  34. 47. Afrek og almenningur, samtal við ÍSÍ

    Í þættinum förum við yfir starfsemi ÍSÍ, íþrótta og ólympíusambands íslands, þó fyrst og fremst það sem snýr að almenningsíþróttum og því hvernig er hægt að koma lýðnum af sófanum. Eins förum við yfir átaksverkefni sambandsins og stöldrum aðeins við hjólað í vinnuna.

  35. 46. Hjólasumarið með Mæju Sæm

    Við kynnumst María Sæm Bjarkardóttir og því hvernig hún flæktist í hjólreiðum. Eins förum við yfir hjólasumarið hjá henni þar sem standa upp úr fararstjórn fyrir hönd Íslands samhliða mótastjórn fyrir hönd Breiðabliks. Þar eyðum við mestum tíma í Grefilinn en hann fer fram 9. ágúst næstkomandi.

  36. 45. Buying Your First Bike in Iceland

    In this episode, I’m joined by Matthew Kanaly to break down what you need to know before buying your first bike in Iceland—from where to shop and what’s available, to price points, maintenance, bike types, and that all-important question: What are you actually going to use your bike for? Whether...

  37. 44. Hjól vs. bíll - sjálfbærar samgöngur?

    Þessi þáttur er samstarfsverkefni með Hannesarholti sem heldur utan um metnaðarfulla dagskrá tengda sjálfbærnimarkmiðum sameinuðu þjóðanna. Þar var haldið pallborð nýlega og rætt um sjálfbærar samgöngur.

  38. 43. Ákall eftir róttækum hugmyndum - Spjall við Gísla Martein Baldursson

    Gísli settist með mér og við fórum yfir hans framlag í borgarpólitík og þeim framgangi og breytingum sem þar hafa orðið.

  39. 42. Röggi og Súlur Vertical

    Frábærar fréttir að norðan, ný hjólakeppni bætist við og tilheyrir núna Súlum Vertical sem fer frá því að vera hlaupaviðburður í hlaup, hjól og gönguskíði. Rögnvaldur Már fer aðeins yfir sína vegferð í hjóleríi og lýsir síðan aðeins þessari viðbót við hjólasenuna. https://www.sulurvertical.is/…

    more
  40. 41. Enduro Börkur

    Fórum yfir vegferðina inní hjólreiðar og það hvernig er að reka fjöllu, vinna og sinna draumi. Börkur Smári ætlar að hjóla á fullu inní 2025 eins og eflaust margir hjólarar.

  41. 40. Gull Special - Hafdís Sigurðardóttir

    Í tilefni af veitingu Gullhjálmsins tók ég stöðuna á Hafdísi Sigurðardóttur fyrsta mótttakanda hjálmsins. Gullhjálmurinn er veittur í samstarfi við Hjólreiðasamband Íslands og Tri reiðhjólaverslun. Kann þeim bestu þakkir fyrir stuðningin og óska Hafdísi innilega til hamingju.

  42. 39. Gull, póstkort og ljós á nýju ári

    Stuttur og laggóður þáttur, fór til Portugal að hjóla segi aðeins frá því, óska Hafdísi til ham með Gullhjálminn og eitt og annað. Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur.

  43. 38. Mælingar og Siggi í Greenfit

    Í þættinum fer ég aftur til Greenfit og við tökum stöðuna á gamla. Eins ræðum við aðeins hvað þessar tölur standa fyrir og hvernig þær geta aðstoðað okkur. Siggi er líka kominn úr risa ólympíu verkefni með Guðlaugu Eddu og við fórum aðeins yfir það og hvað er framundan hjá Sigga. Ath kostning til...

  44. 37. Hjólaárið 2024

    Í þættinum förum við yfir hjólakeppnir og viðburði sem áttu sér stað á árinu. Viðmælendur í þættinum voru Hafsteinn Ægir, Ása Guðný og Magne Kvam.

  45. 36. Fundur um bíllausan lífsstíl

    Í þættinum fáum við innsýn í fund sem var haldinn á Loft hostel um bíllausan lífstíll. Við heyrum nokkrar klippur frá frambjóðendum og svo yfirferð eftir fundinn þar sem ég og Björn Teitsson rennum yfir þetta.

  46. 35. Á hjóli sögunnar

    Nýr taktur í þessum þætti, hverfum aftur til tímans rétt fyrir aldamótin 1900 og rennum aðeins yfir tilurð og fyrstu skrefin í þróun reiðhjólsins. Eins set ég mér nýtt markmið en það er að klára Rift MTB næsta sumar, sjáum hvernig það fer.

  47. 34. „Mikilvægi styrktarþjálfunar vanmetið“ Hildur Guðný

    Í þættinum kemur hún Hildur Guðný Káradóttir til okkar og fer yfir sína vegferð í hreyfingu og íþróttum. Ferðalagið úr fimleikum og yfir í ultrahlaup. Hún er þjálfari hjá Mjölni og MFL kvenna hjá KR. Hildur hefur staðið sig flenni vel í hlaupum og tók núna síðast þátt í landsliðs bakgarðshlaupi í...

  48. 33. „Shit! Við erum með hugmynd“ - samtal við Benna og Berg hjá Lauf

    Í þessum þætti fáum við að heyra frá þróun innan Lauf, aðeins hvernig þetta hefur verið keyrt áfram og síðan hvernig staðan er á þeim. Farið yfir nýjustu viðbótina í Lauf hjólafjölskylduna hana Elju sem er fulldempað fjallahjól með pláss fyrir stór dekk. Eins fáum við að heyra um nýja...

  49. 32. Hætti að kenna og fór að hjóla - samtal við Hafdísi Sigurðardóttir

    Hafdís Sigurðardóttir er ein af fremstu götuhjólurum á Íslandi og hefur tekið þátt í fjölda landsliðsverkefna ásamt því að hafa gert mjög gott mót á Íslandi, margfaldur Íslandsmeistari. Hún er nýlega byrjuð að éta möl og tók þátt í HM í gravel núna síðastliðna helgi. Förum yfir þetta og stöðuna...

  50. 31. Íslandsmeistarar í downhill - Sól og Jóhann

    Fékk til mín frábæra viðmælendur sem bæði urðu Íslandsmeistarar í downhill/fjallabruni núna í sumar. Í þættinum er farið yfir sportið og síðan svona stöðuna á Íslandi. Óskað er eftir fleiri þátttakendum og miklu fjármagni til að gera besta og flottasta náttúru bikepark í heimi. Hjólavarpið er...

About this show

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal.Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti.Email: [email protected] eða [email protected]: @utihladvarpHjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton

Hosted by

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Úti have?

Úti has 80 episodes on PodParley. The most recent episode was published on October 23, 2026.

What is Úti about?

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal.Þættirnir...

How often does Úti release new episodes?

Úti publishes every two weeks, based on its 80 episodes since November 2023.

Who hosts Úti?

Úti is created and hosted by Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal.
Link copied