Hugrænn styrkur podcast artwork

PODCAST · health

Hugrænn styrkur

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins. 

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Sep 8, 2026 · Source feed

  1. 11

    #10 - Arnar Pétursson

    Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og keppt fjórum sinnum á HM í hálfmaraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum. Arnar ræðir um mikilvægi sterks hugarfars og hvernig maður fær það mesta úr sjálfum sér í keppni. 

  2. 10

    #9 - Agnar Smári Jónsson

    Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu undir pressu. Áhugaverður þáttur um mikilvægt málefni. 

  3. 9

    #8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson

    Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir hvernig hann fann ástríðuna aftur eftir að hafa misst hana um tíma. Arnór Sveinn útskýrir dyggðarsiðfræði og lýsir hvernig hann nýtir sér þau fræði til að verða betri knattspyrnumaður og manneskja. 

  4. 8

    #7 - Anton Sveinn McKee

    Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um að bæta hér í textann þriðja gildinu sem hann gleymdi að nefna í viðtalinu. Gildin hans eru þrjú; óttalaus, vera í núvitund og óbrjótanlegur. Hann kemur einnig inn á mikilvægi þess að bæta umgjörð fyrir afreksfólk á Íslandi til að framleiða enn fleiri afreksfólk. 

  5. 7

    #6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir

    Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig hún þjálfaði líkama og huga fyrir íþróttina og sitt daglega líf. 

  6. 6

    #5 - Kristófer Acox

    Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann sérstaklega í að þjálfa sig að mæta huganum. 

  7. 5

    #4 - Hildur Antonsdóttir

    Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún þjálfar hugann, meðal annars með sjónmyndaþjálfun, og ræðir áhrif sjálfstrausts á frammistöðu. 

  8. 4

    #3 - Höskuldur Gunnlaugsson

    Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu. Hann segir frá tímanum eftir að eldri bróðir hans féll frá, þá hvernig hans upplifun var og hvernig hann vann með það áfall. 

  9. 3

    #2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé)

    Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann fór yfir sína upplifun af tónlistarheiminum og hver hans framtíðarplön eru á sínum tónlistarferli.

  10. 2

    #1 - Sara Björk Gunnarsdóttir

    Sara Björk Gunnarsdóttir, atvinnukona í knattspyrnu, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, var gestur í fyrsta þætti Hugræns Styrks. Sara Björk fór yfir góðu og erfiðu stundirnar á ferlinum. Rætt var um andlegu hlið knattspyrnunnar. 

  11. 1

    Kynningarþáttur

    Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær íþrótta- og annað afreksfólk, fagfólk og fleiri til að ræða áhugaverðar sögur og andlegu hliðina. Hér er stutt kynning á því.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins.

HOSTED BY

Hugrænn styrkur

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Hugrænn styrkur have?

Hugrænn styrkur currently has 11 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Hugrænn styrkur about?

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins. 

How often does Hugrænn styrkur release new episodes?

Hugrænn styrkur has 11 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Hugrænn styrkur?

You can listen to Hugrænn styrkur on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Hugrænn styrkur?

Hugrænn styrkur is created and hosted by Hugrænn styrkur.
URL copied to clipboard!