Skip to content
Klefinn með Silju Úlfars podcast artwork

Klefinn með Silju Úlfars

by Silja Úlfars

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

From the show's RSS feed, refreshed Jul 14, 2026. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar

    Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður…

    more
  2. Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”

    Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira. Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með...

  3. Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein

    Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún...

  4. Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein

    Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul. Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði...

  5. Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum

    Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að…

    more
  6. Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka

    Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka kom í Klefann og hleypti okkur aðeins bak við tjöldin á Reykjavíkurmaraþoninu. Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að halda svona stóran hlaupaviðburð fyrir mörg þúsund manns. Hrefna segir okkur frá því hvernig...

  7. Elísa Viðars - Næring Hlaupara - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

    Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur kom í Klefann til að ræða næringu hlaupara þar sem nú nálgast Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fer fram 23. ágúst. Elísa deilir dýrmætum ráðum um hvernig hlauparar geta bætt frammistöðu sína með réttri næringu og undirbúningi. Þá er farið yfir mikilvægi...

  8. Erla Björnsdóttir - Betri Svefn

    Ein besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Erla ræddi...

  9. Hreiðar Haraldsson - Hugarþjálfari

    Hreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild. Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa…

    more
  10. Baldur Þór Ragnarsson – Körfuboltaþjálfari og Íslandsmeistari

    Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk...

  11. Birgir Sverrisson - Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands

    Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. Lyfjapróf…

    more
  12. Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ

    Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku. Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað...

  13. Ólafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍ

    Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem...

  14. Jimmy Ekstedt - fyrrum landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins

    Jimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi. Þótt…

    more
  15. Gestur Pálmason - Stjórnendaþjálfari

    Gestur Pálma hefur komið víða við, hann er meðal annars fyrrum sérsveitarmaður og segir okkur frá því ferli. Í dag starfar hann sem stjórnenda þjálfari hjá Complete og sagði okkur frá áhugaverði nálgun stjórnenda. Gestur hefur unnið með mikið af íþróttafólki og þá hefur hann aðstoðað hlaupara í...

  16. Perla Ruth Albertsdóttir - Landsliðskona í handbolta

    Perla Ruth Albertsdóttir er landsliðskona í handbolta, hún mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 17 ára og segir okkur frá því þegar hún byrjaði, hvernig hún æfði með yngri flokkum til að fá verkefni við hæfi og eyddi mörgum kvöldum að henda bolta í vegg til að læra grunnatriðin. Perla segir frá...

  17. Pétur Rúnar Heimisson - Markaðsmál íþróttafélaga

    Pétur Rúnar Heimisson er markaðs- og þjónustustjóri hjá fasteignafélaginu Heimum. Pétur hvetur íþróttafélög til að leggja meira áherslu á markaðsmál því það muni skila sér á endanum til félagsins. Núna er úrslitakeppnin hafin í handbolta og körfubolta og knattspyrnu tímabilið að hefjast, hvað eru...

  18. Sigrún Haraldsdóttir - Happy Hips og bandvefslosun

    Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips, sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur. Sigrún fór yfir margt í...

  19. Viran Morros - retired Spanish handball player

    Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum. Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og…

    more
  20. Kristinn Jónasson - Skattamál íþróttafélaga og körfubolti

    Kristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins. Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við...

  21. Unnar Helgason - Osteopati

    Unnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér…

    more
  22. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Landsliðskona í knattspyrnu

    Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og…

    more
  23. Dr. Birna Varðardóttir - REDs - Orkuskortur í íþróttum

    Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi...

  24. Remix: Aron Pálmars & Logi Geirs

    Bæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman. Hlustaðu hér á Loga Geirsson. Hlustaðu hér á Aron...

  25. Aron Pálmarsson - Landsliðsfyrirliði

    Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi. Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi,...

  26. Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari

    Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu…

    more
  27. Eygló Fanndal Sturludóttir - Ólympískar lyftingar

    Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í...

  28. Guðbjörg Gunnarsdóttir - Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins

    Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri...

  29. Snorri Steinn Guðjónsson - Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

    Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. Snorri ræðir...

  30. XJ - Arnar Páll Gunnlaugsson

    Arnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 18:15 -...

  31. XB - Ásmundur Einar Daðason

    Ásmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf). 15:55 - Fjármagn til...

  32. XP - Theodór Ingi Ólafsson

    Theodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 21:25 - Brottfall og...

  33. XS - Hannes S. Jónsson

    Hannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 37:37 - Brottfall…

    more
  34. XC - Hanna Katrín Friðriksson

    Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 23:45…

    more
  35. XV - Bjarki Hjörleifsson

    Bjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 23:40 - Brottfall...

  36. XM - Anton Sveinn McKee

    Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 25:00 - Brottfall og...

  37. XD - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi...

  38. Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?

    Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig...

  39. Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur

    Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni. Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin…

    more
  40. Erlingur Richardsson - handboltaþjálfari

    Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða…

    more
  41. Arnar Sölvi - Íþróttanæringarfræðingur

    Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur. Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu…

    more
  42. Lára Hafliðadóttir - Þjálfun kvenna og tíðahringurinn

    Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar. Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif...

  43. Brynjar Benediktsson - Soccer & Education USA

    Brynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta,...

  44. Kristín Þórhallsdóttir - Kraftlyftingakona

    Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet. Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð…

    more
  45. EM í götuhjólreiðum

    Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km. Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu…

    more
  46. Anton Sveinn Mckee - sundmaður og Ólympíufari

    Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður. Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna. Þá sagði hann okkur ítarlega frá...

  47. Ingeborg Eide - kastari og Paralympics fari

    Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37 í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september. Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í...

  48. Frjálsíþrótta Ólympíu þáttur

    Ólympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum. 4:30 mín - Purple Speed King 9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð 14:00 mín - leiðin að Ól ……

    more
  49. Vésteinn Hafsteinsson - Afreksstjóri ÍSÍ

    Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ. Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL. Hann er nú á...

  50. Hlaupaspjall Klefans í Útilíf

    Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara…

    more

About this show

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar.

Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið!

https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

Hosted by

Silja Úlfars

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Klefinn með Silju Úlfars have?

Klefinn með Silju Úlfars has 70 episodes on PodParley. The most recent episode was published on October 31, 2025.

What is Klefinn með Silju Úlfars about?

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

How often does Klefinn með Silju Úlfars release new episodes?

Klefinn með Silju Úlfars publishes weekly, based on its 70 episodes since February 2024.

Who hosts Klefinn með Silju Úlfars?

Klefinn með Silju Úlfars is created and hosted by Silja Úlfars.
Link copied