Skip to content
Matmenn podcast artwork

PODCAST · arts

Matmenn

by Mat Menn

Davið og Bjartur fara yfir allt sem tengjast matreiðslu á léttu nótunum og fær hlustendur til að fræðast og skella uppúr á sama tíma. Þættirnir verða gefnir út á hverjum föstudegi og eru þeir bæði í mynd og hljóði. Viðmælendur eru af ýmsum toga og koma þeir allir að mat á einn eða annan hátt. Þarna verður rætt við matreiðslumenn, þjóna, bakara, kjötiðnaðarmenn, slátrara, buttler, kennara, bændur, hótelstjórnendur, veitingamenn, þekkt fólk úr þjóðfélaginu og svo mætti lengi telja. Nóg er af sögum úr bransanum, og ætlum við að deila þeim með ykkur

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Sep 17, 2025 · Source feed

Episodes

  1. #28 - Kjartan Vídó

    Kjartan Vídó er viðmælandi númer 28 hjá Matmönnum. Kjartan er einn af stofnendum The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum, sem er handverksbrugghús og ölstofa. Fyrirtækið var stofnað af Kjartani og vini hans, Jóhanni Guðmundssyni, árið 2012. Bræður þeirra, Hlynur Vídó og Davíð Guðmundsson, komu...

  2. #27 - Sigurður Gíslason

    Sigurður Gíslason er viðmælandi Matmanna að þessu sinni. Sigurður, eða Siggi Gísla eins og hann er oftast kallaður, er þaulreyndur matreiðslumaður og eigandi farsæla og vinsæla veitingastaðarins Gott í Vestmannaeyjum ásamt eiginkonu sinni, Berglindi Sigmarsdóttur. Hann er þekktur fyrir ​heilnæma...

  3. #26 - Gísli Mattías Auðunsson

    Gísli Matthías Auðunsson er viðmælandi Matmanna að þessu sinni. Gísli Matt eins og hann er oftast kallaður er matreiðslumaður, athafnamaður og talsmaður íslenskrar matarmenningar. Hann er þekktastur fyrir að hafa stofnað og rekið veitingastaðinn Slippinn í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu sinni…

    more
  4. #25 - Núllarinn

    Viðmælandi Matmanna að þessu sinni er Guðjón Þór Guðmundsson sem útskrifaðist árið 2001 sem matreiðslumaður, en hann lærði á Óðinsvé og í Viðey. Guðjón er matreiðslumeistari, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækis Núllarinn. Núllarinn er íslensk vefverslun sem sérhæfir sig í...

  5. #24 - Bara við tveir

    Matmenn koma hér sterkir inn og segja frá komandi uppákomum og plönum næstu mánuði. Davíð Hanssen og Bjartur Birkisson lýsa hér spenningi sínum yfir komandi viðburðum og skemmtilegar bransasögur slæðast með í þessu brosmilda spjalli þeirra. Hrist verður upp í þáttunum með nokkrum nýjungum á...

  6. #23 - Yesmine Olsson

    Gestur 23. þáttar Matmanna er Yesmine Olsson en hún er matreiðslubókahöfundur, dansari, danshöfundur, einkaþjálfari og veitingamaður. Yesmine, sem er fædd á Srí Lanka en ólst upp í Svíþjóð, hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Hún hefur haft mikinn áhuga á mat og matreiðslu frá unga aldri og hefur...

  7. #22 - Erlendur Eiríksson

    Erlendur Eiríksson er fjölhæfur maður og með margþættan feril, en Davíð og Bjartur fengu Erlend til sín í heimsókn í 22. þátt Matmanna, þar sem hann mætti með smakk af einstaklega góðum grænkeraostum. Erlendur er faglærður matreiðslumeistari, flugmaður, leikari og með meistaragráðu í lögfræði svo...

  8. #21 - Jón Örn Stefánsson

    Jón Örn Stefánsson sem er þekktur matreiðslumeistari og eigandi Kjötkompaní mætir hér til leiks í 21. þátt Matmanna. Jón er fæddur á Ísafirði 28. apríl 1965 og flutti snemma til Hafnarfjarðar. Hann stofnaði Kjötkompaní í september 2009 og rekur nú þrjár verslanir (í Dalshrauni í Hafnarfirði, á...

  9. #20 - Valdís Ósk Margrétardóttir

    Valdís Ósk Margrétardóttir er tuttugasti viðmælandi Matmanna. Valdís er þriggja barna móðir og afskaplega skemmtileg, hún er faglærður framreiðslumaður og hefur starfað sem slíkur í mörg ár. Hún hefur unnið sem þjónn á Fosshótel Reykjavík og Gamla Bíó sem dæmi, en í dag er hún eigandi og...

  10. #19 - Kristinn Bjarnason

    Kristinn Bjarnason er nítjándi viðmælandi okkar Matmanna, en hann er tveggja barna faðir og einn af eigendum North West Restaurant & Guesthouse í Víðigerði, þar sem hann og fjölskyldan hafa verið iðin við að byggja upp starfsemina undanfarinn 14 ár. Víðigerði er staðsett við Þjóðveg 1 í Víðidal í...

  11. #18 - Túri Hard Rock

    Arthur Pétursson matreiðslumeistari, yfirkokkur á Hard Rock Cafe Reykjavík og skáti í húð og hár er átjándi viðmælandi Matmanna. Arthur eða Túri eins og hann er betur þekktur, var yfirkokkur á stærsta Hard Rock stað í heimi sem staðsettur er í Orlando á Flórída. Sá staður tekur 1.040 manns í sæti...

  12. #17 - Rósakaffi

    Viðmælendur okkar í þessum sautjánda þætti Matmanna, eru hjónin Jóna Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Guðmundur Magnús Níelsen garðyrkjumaður. Jóna er frá Vopnafirði þar sem hún ólst upp við bakstur í hópi kvennfélagskvenna og nýtir sér reynslu sína þaðan í fyrirtækinu sínu í dag sem...

  13. #16 - Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson

    Villi meistara kokkur er sextándi viðmælandi Matmanna að þessu sinni, en skírnarnafn hans er Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson frá Reykjavík. Ferillinn hans byrjaði sem sextán ára piltur á Einar Ben í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann hóf samning sinn í matreiðslu til tveggja ára og kláraði svo seinni…

    more
  14. #15 - Simmi Vill

    Sigmar Vilhjálmsson, oftast kallaður Simmi Vill er fimmtándi viðmælandi Matmanna. Hann er mikill frumkvöðull, hefur skemmtilega sköpunargáfu og nóg af skoðunum á flestum málum. Simmi hefur verið iðinn við frumkvöðlastörf árum saman, eða allt frá því hann lauk skólagöngu sinni við Menntaskólann á...

  15. #14 - Ólöf Ólafsdóttir

    Ólöf Ólafsdóttir konditor er fjórtándi viðmælandi Matmanna. Ólöf lærði á sínum tíma hjá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakarí og eftir það fór hún að læra konditorinn hjá ZBC Zeland Business College í Danmörku. Ólöf var hluti af kokkalandsliðinu 2024 sem vann til glæsilegra verðlauna á...

  16. #13 - Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen

    Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen er þrettándi viðmælandi okkar Matmanna. Hún lærði heimspeki í Oslóarháskóla, og er einnig uppeldis-og menntunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Til að fjölga skírteinunum aðeins meira, fór hún líka í Make up og Beauty skólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist…

    more
  17. #12 - Adam Helgason

    Í tólfta þætti Matmanna fengum við Adam Karl Helgason í skemmtilegt spjall. Adam sem er mikill matgæðingur, er best þekktur fyrir TikTok klippurnar sínar um mat og veitingastaði. Hann vinnur að frumkvöðlastarfi í fyrirtæki sem hann er meðeigandi að og ræðir meðal annars við okkur um það og það...

  18. #11 - Gabríel Kristinn Bjarnason

    Gabríel Kristinn Bjarnason er nýkrýndur kokkur ársins 2025 og er ellefti viðmælandi MatManna. Gabríel hefur verið iðinn við kokkakeppnir hérlendis og erlendis frá unga aldri, hann er einnig í kokkalandsliðinu og hefur gríðarlegan metnað til að komast í gullið í næstu heimsmeistara keppni. Í dag...

  19. #10 - Siggi Pylsumeistari

    Sigurður Haraldsson er marg verðlaunaður kjötiðnaðarmeistari og einn af lífseigustu mönnum bransans, hann er tíundi viðmælandi Matmanna og hefur frá mörgu að segja. Siggi, eins og hann er gjarnan kallaður,rekur og á kjötvinsluna Kjötpól og einnig kjötbúðina Pylsumeistarann við Laugarlæk í...

  20. #9 - Beggi Bakari

    Ingibergur Sigurðsson er bakari og Íslandsmeistari í glímu, hann er níundi viðmælandi Matmanna og hefur frá ýmsu að segja. Beggi eins og hann er oftast kallaður, rekur og á Reykjavík Bakarí sem er heildsölu og framleiðslu bakarívinnsla. Þar er bakað fyrir veisluþjónustu fyrirtæki og bakarí. Beggi...

  21. #8 - Jón Gísli Jónsson

    Jón Gísli Jónsson er viðmælandi Matmanna í þessum áttunda þætti okkar. Hann er faglærður kjötiðnaðarmaður og vinnur í dag sem verslunarstjóri hjá Kjötkompaní á Höfða. Hann er einnig landsliðs fyrirliði í kjötiðn en liðið er nýbúið að keppa í heimsmeistara kennini í París í þeirri grein. Jón Gísli...

  22. #7 - Heiðrún Vínkona

    Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir er viðmælandi Matmanna í þessum sjöunda þætti okkar. Hún er faglærður framreiðslumaður og/eða þjónn eins og svo oft er sagt. Hún hefur lokið WSET 3 (Wine & Spirit Education Trust) og hefur margra ára reynslu í veitingageiranum. Í dag rekur hún, ásamt vinkonu sinni...

  23. #6 - Snædís Xysa Mae Jónsdóttir

    Gestur Matmanna að þessu sinni er hin margverðlaunaði matreiðslumeistari Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, sem er nýtekin við sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kitchen og Bar. Hún er einnig þjálfari íslenska landsliðsins í matreiðslu. Snædís er sú yngsta sem hefur hlotið Cordon bleu orðu hjá...

  24. #5 - Jóhann Butler

    Jóhann Gunnar Arnarson sem kemur frá Akureyri er viðmælandi Matmanna. Í þessum þætti er farið yfir, hvað í ósköpunum butler gerir? Hann Jóhann útskrifaðist úr brytaskólanum „The International Butler Academy“ í Hollandi, sem sér hirðum konungsfjölskyldna í Hollandi, Jórdaníu og Sádi-Arabíu fyrir...

  25. #4 - Emil Hallfreðsson

    Gestur Matmanna er að þessu sinni Emil Hallfreðsson fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og einn af eigendum Olifa. Hér er rætt um líf Emils á Ítalíu og vörurnar sem hann flytur inn til landsins. Spurningin er, hefur Emil lent í ítölsku mafíunni og hver er uppáhalds maturinn hans, kanski Bjúga?

  26. #3 - Dóra Svavarsdóttir

    Dóra Svavarsdóttir er formaður Slow Food Iceland einnig er hún menntaður landvörður og matreiðslumeistari svo er hún líka kennari í Hótel og Matvælaskóla Kópavogs. Dóra hefur rekið sinn eigin veitinarstað og veisluþjónustu culina og heldur reglulega matreiðslunámskeið fyrir hópa og einstaklinga…

    more
  27. #2 - Helvítis Kokkurinn

    Gestur Matmanna í dag er Ívar Örn Hansen einnig þekktur sem Helvítis Kokkurinn. Ívar kom með eldpiparsulturnar sínar og tók Bjart í sultu útgáfuna af "Hot ones". Umræðurnar fóru út um víðan völl allt frá ferðalaginu hans í sjónvarpið til stóru spurningarinnar er pulsa samloka?

  28. #1 - Þórir Erlingsson

    Þórir er tvöfaldur forseti. Hann er forseti Klúbbs Matreiðslumeistara, ásamt því að vera forseti Nordic Chefs Association.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Davið og Bjartur fara yfir allt sem tengjast matreiðslu á léttu nótunum og fær hlustendur til að fræðast og skella uppúr á sama tíma. Þættirnir verða gefnir út á hverjum föstudegi og eru þeir bæði í mynd og hljóði. Viðmælendur eru af ýmsum toga og koma þeir allir að mat á einn eða annan hátt. Þarna verður rætt við matreiðslumenn, þjóna, bakara, kjötiðnaðarmenn, slátrara, buttler, kennara, bændur, hótelstjórnendur, veitingamenn, þekkt fólk úr þjóðfélaginu og svo mætti lengi telja. Nóg er af sögum úr bransanum, og ætlum við að deila þeim með ykkur

HOSTED BY

Mat Menn

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Matmenn have?

Matmenn currently has 28 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Matmenn about?

Davið og Bjartur fara yfir allt sem tengjast matreiðslu á léttu nótunum og fær hlustendur til að fræðast og skella uppúr á sama tíma. Þættirnir verða gefnir út á hverjum föstudegi og eru þeir bæði í mynd og hljóði. Viðmælendur eru af ýmsum toga og koma þeir allir að mat á einn eða annan hátt. Þarna...

How often does Matmenn release new episodes?

Matmenn has 28 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Matmenn?

You can listen to Matmenn on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Matmenn?

Matmenn is created and hosted by Mat Menn.
URL copied to clipboard!