Mennska

PODCAST · education

Mennska

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi.Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.Most episodes are in Icelandic and some in English.Tónlist/music: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.www.bjarnisnae.comInstagram: bjarni.snaebjornsson---Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkjaMennska verður

  1. 45

    "Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson

    Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarinnar Organisation Intersex International – Europe (OII-Europe). Nú í haust fagnaði hún tímamótum á vegum OII-Europe sem hún segir okkur frá. Kitty er líka nýorðin amma og nýtur lífsins þessa dagana að huga að fjölskyldu sinni og halda áfram baráttunni fyrir bættum heimi.Heimildir sem vísað er í:Disrupting the multilateral order? The impact of anti-gender actors on multilateral structures in Europe:https://centreforfeministforeignpolicy.org/2023/01/17/disrupting-the-multilateral-order/The Next Wave: How Religious Extremism Is Regaining Power:https://www.epfweb.org/node/1147TIP OF THE ICEBERG skýrsla:https://www.epfweb.org/sites/default/files/2021-06/Tip%20of%20the%20Iceberg%20June%202021%20Final.pdf ------Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuTil að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig á stortytel.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi Árnason

  2. 44

    “Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson

    Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi, við tölum um glansmyndirnar á samfélagsmiðlum, mataræði, sjálfsmildi og auðvitað listina. Kolbeinn er einstakur maður sem er óhræddur við að berskjalda sig og það var dásamlegt að setjast niður með honum og skilja ekkert eftir.@kolbeinnarnbjornsson------Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuTil að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig komin á stortytel.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  3. 43

    "Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir

    Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu (tabu.is). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímutilnefningu sem dansari ársins fyrir verkið Góða ferð inn í gömul sár sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hún er líka ein af fyndnustu manneskjum sem ég þekki og ég fæ þann heiður að leika og dansa með henni um þessar mundir í leikverkinu Skammarþríhyrningurinn í Borgarleikhú[email protected]@tabufem-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuTil að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig komin á stortytel.www.bjarnisnae.com Instagram: @bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  4. 42

    “Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir

    Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins. Auk þess að vera einstakur listamaður starfar hún einnig sem fagstjóri sviðshöfundabrautar Listaháskóla Íslands.Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu listina og samstarf okkar Grétu sem spannar nú fjórar leiksýningar. Gréta segir okkur frá MA náminu sínu í leikstjórn í Helsinki og hvað það þýðir fyrir henni að vera leikstjóri. Þetta er heiðarlegt og skemmtilegt spjall enda erum við Gréta bestu vinir og höfum verið frá því hún leikstýrði mér fyrst í verkinu Stertabendu árið 2016.@gretakristino----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHér er hægt að styrkja Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  5. 41

    "Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir

    Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimsstyrjöld. Þessar rannsóknir leiddu til útgáfu á bók hennar "Hættið þessu fikti strákar" þar sem hún skrifar um uppgötvanir sínar. Í þættinum förum við yfir þessar rannsóknir og skoðum hvernig hommar og annað hinsegin fólk birtist í ritum fyrr á öldum, hvernig var talað um okkur í annálum og hvar var ekki talað um okkur. Þetta er áhugavert samtal um söguritskoðun og hvernig opinber hinseginleiki hefur oft leitt til útskúfunnar. Hægt er að kaupa bókina "Hættið þessu fikti strákar" beint af Særúnu, það eru örfá eintök eftir. Best er að senda henni skilaboð í gegnum facebook eða instagram @lisa_birgis----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskutil að gerast áskrifandi að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: @bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  6. 40

    “Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir

    Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þar sem hún sagði að mannréttindi okkar eru aðeins eins og "litrík olíubrák sem liggur yfir öllu, nóg til að lægja stærstu öldurnar. En auðvitað allt of þunn til að halda aftur af kraftinum í djúpinu til lengri tíma, fari að hvessa duglega". Það var svo skemmtilegt að eiga hispurslaust spjall við magnaða konu.Instagram: @ragnsverris---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskutil að gerast áskrifandi að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  7. 39

    "Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir

    Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún  hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum en þessi misserin einbeitir hún sér að því að klára doktorsritgerð um HIV faraldurinn á Íslandi. Í þættinum kynnumst við Hafdísi og fáum að heyra sögu hennar, hún segir frá afrekssundferli sínum og hvernig sagnfræði eignaðist hug hennar allan. Dásamlegt samtal um hrikalega mikilvæg málefni sem hafa kannski ekki fengið mikið vægi í Íslandssögunni.

  8. 38

    "Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason

    Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sögu og við heyrum líka hvaða toll það tók af Herði og frama hans sem þjóðfrægur leikari og söngvaskáld. Auðvitað forvitnast ég aðeins um æsku hans í miðbænum, hvernig strákaævintýrin fóru fram í hans ungdómi og hvernig hann mætti fordómum og leiðindum með húmor og galsa. Svo rifjum við upp þegar við hittumst í heita pottinum í Tálknafjarðarlaug fyrir um 30 árum síðan sem var mikilvægur fundur fyrir mig sem feiminn skápahomma. Hörður er sannarlega þjóðargersemi og það var heiður að fá hann í mikilvægt og magnað samtal um einstaka ævi.Ævisaga Harðar kemur út í haust og ég get ekki beðið eftir að lesa hana.-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuÁskrift að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkjaHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  9. 37

    “Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir

    Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að skapa rými þar sem einstaklingar geta öðlast frið frá ytri kröfum samfélagsins og tengst sjálfum sér betur.Þetta er einstakt samtal og við vorum fljót að fara á dýptina varðandi líkamsvirðingu, sjálfsvirði, samkennd, sárin okkar, einmanakennd og fleira.Hér eru hlekkir á Móa:www.moarstudio.iswww.moarverslun.is----We can do hard things hlaðvarpið: https://open.spotify.com/show/0eFL5HJejQHZrdgAFdPnOm?si=d7c0ec1874b94ac1Umfjöllun um nemdanda sem stóð með Palestínu í útskriftarræðu hjá NYU: @mattxiv---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  10. 36

    "Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton

    Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilraunir Aldísar til að eyðileggja fyrir sjálfri sér og svo komum við auðvitað inn á sameiginlega ástríðu sem er grænkeralífsstíllinn.Svo skemmtilegt og gefandi spjall við dásamlega manneskju.Aldís á instagram: @aldisamah----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  11. 35

    "Alein - saman" Bragi Páll

    Bragi Páll er einn af okkar mögnuðu rithöfundum sem hefur gefið út fjölmargar bækur. Þátturinn er að þessu sinni óvenjulegur því ég fékk Braga til að lesa inn pistil sem hann skrifaði á facebook vegginn sinn í vikunni sem fjallar einfaldlega um mennskuna.---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  12. 34

    „Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks

    Arna Magnea er einstök listakona og aktívisti. Hún er leikkona og nýlega var frumsýnd bíómyndin Ljósvíkingar þar sem hún brilleraði í stóru hlutverki. Hún er einnig með sérhæfingu í sviðsbardögum, kennari, móðir og ljóðskáld.Í þættinum förum við mjög víða og Arna segir okkur frá æsku sinni sem var undirlögð af togstreitu og ofbeldi. Við ræðum raunveruleika trans fólks á Íslandi í dag og að sjálfsögðu förum við yfir stöðuna í heiminum öllum, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem mannréttindi eiga mjög undir högg að sækja um þessar mundir. Þetta er einstakt, skemmtilegt of fræðandi samtal og ég er svo stoltur að deila því með heiminum.Arna á instagram: @arnamagneadanksHistory Wizard (John Bradley-Lestrange) á instagram: @the_history_wizard----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  13. 33

    „Risa hagsmunaöfl hagnast á því að halda upplýsingum frá okkur” - Rósa Líf Darradóttir

    Rósa Líf er einstök baráttukona. Hún er formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi sem hefur látið til sín taka síðustu ár. Hún er einnig læknir, hestakona og almennt mikið hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.Í þættinum tölum við að sjálfsögðu um grænkeralífsstílinn, sem er sameiginlegt grunngildi okkar beggja. Við förum einnig yfir hvernig við getum verið betri við dýrin og svo förum við að sjálfsögðu yfir af hverju Taylor Swift er ein magnaðasta tónlistarkona okkar tíma.Þetta er fallegt og einlægt spjall sem spilaði á alls konar tilfinningar hjá mér því ég get oftast ekki hamið mig þegar dýrin eru annars vegar.----Rósa Líf á IG: rosalifSamtök um dýravelferð á IG: dyravelferdNæring og jafnvægi á IG: (sem við nefnum í þættinum): naeringogjafnvaegi----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  14. 32

    „Hún er þrálát hugmyndin um að fatlað fólk sé þiggjendur“ - Freyja Haraldsdóttir

    Freyja Haraldsdóttir er einstakur aktivisti og doktorsnemi sem hefur komið víða við í baráttu sinni fyrir bættum heimi fyrir fatlað fólk. Í þættinum segir hún mér frá uppvextinum í Garðabæ, hvernig flutningur fjölskyldunnar til Nýja Sjálands mótaði hana og auðvitað hlæjum við okkur í gegnum unglingsárin. Við tölum um baráttu hennar fyrir NPA aðstoðinni, dómsmál sem hún höfðaði gegn barnaverndarstofu og móðurhlutverkið. Þetta er myljandi skemmtilegt spjall og það var svo gaman og lærdómsríkt að fara á dýptina með Freyju, ræða tilfinningar, hvernig hún hlúir að sjálfri sér og hvað er mikilvægast. Hér er heimasíða Tabú sem er feminísk fötlunarhreyfing: www.tabu.isTabu á instagram: @tabufemHér er Freyja á instagram:  freyjaharalds---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  15. 31

    „Það þýðir ekki að breiða yfir allt sem er erfitt" - Inga Auðbjörg Straumland

    Inga Auðbjörg er kona ekki einhöm. Hún vinnur vanalega sem verkefnastjóri og athafnastjóri og er einnig formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi. Hún hefur óskaplega gaman af stjórnarsetu almennt og er mikill Eurovision-nörd. Það er gaman að ræða við Ingu um Siðmennt og hver krafa félagsins er varðandi jafnræði meðal trú- og lífsskoðunarfélaga. Svo deilum við reynslusögum úr athafnastjórastarfinu, hvernig það er að leika og syngja saman í söngleikjakórnum Viðlagi og hvernig við erum með óbragð í munninum yfir Eurovision þessi misserin. Það er ekki hægt að leiðast þegar Inga er annars vegar enda er hún myljandi skemmtileg og orðheppin.heimasíða Ingu: www.straumland.isInga á instagram: @ingaausa----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  16. 30

    "Það eru byltingar og breytingar í kortunum" - Jara Gian Tara

    Jara er kyngimögnuð. Hún er stjörnuspekingur, yogakennari, tónlistarkona, coach og margt fleira fallegt sem gerir heiminn að betri stað. Í þessum áramótaþætti dembum við okkur djúpt í stjörnuspekina og skoðum árið sem er að kveðja og það sem er að taka við. Það er alltaf jafn gaman þegar ég upplifi samhljóm með djúpum lestri á stjörnunum og raunverulegu lífi og það gerist sannarlega í þættinum. Fyrir utan stjörnuspekina ræðum við mörg önnur sameiginleg áhugamál eins og t.d. geimverur, EMDR, hugleiðslur og þakklæti. Svo gefandi og töfrandi spjall.Hér eru helstu hlekkir til að finna Jöru. Ég mæli auðvitað með sjörnulestri hjá henni!Instagram: https://www.instagram.com/jaragiantaraOg tiktok: https://www.tiktok.com/@jaragiantaraHeimasíðan: https://giantara.com/Panta tíma og búa til sitt eigið stjörnukort: https://giantara.com/makeyourownchart/ Human design kort: https://giantara.com/check-your-human-design/ Hlekkur á nýju plötuna: https://www.thoracius.com/streaminglinks/synthea----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  17. 29

    "Að berjast fyrir betri heimi fellur aldrei úr gildi" - Þorvaldur Kristinsson

    Þorvaldur Kristinsson hefur lifað tímana tvenna. Hann fæðist í Hrísey árið 1950 og nám leiddi hann erlendis og aftur heim nokkrum sinnum. Á viðburðarríkri ævi tók hann virkan þátt í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fyrir þá mikilvægu vinnu var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar Íslensku fálkaorðu árið 2004. Fyrir utan það vann hann við ritstörf, m.a. sem útgefandi, höfundur og ritstjóri. Hann er enn að því sumar kom út bókin Herbergi Giovannis eftir James Baldwin í þýðingu Þorvaldar. Saga þessa mannréttindaforkólfs er einstök og það var heiður að ræða við hann um lífið, baráttuna og ritstörfin. Þetta er mjög ljúfur desemberþáttur sem yljar í svartasta skammdeginu enda Þorvaldur með einstaklega þýða og fallega rödd.----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  18. 28

    „Kerlingabylting mun sameina okkur“ - Eva Rún Snorradóttir

    Eva Rún er mögnuð sviðslistakona og höfundur sem hefur komið víða við á litríkum ferli. Hún hefur gefið út ljóðabækur, skrifað leikrit og verið mjög virk í sjálfstæðum leikhópum eins og Kviss búmm bang og 16 elskendum. Hún er nýbúin að gefa út nýja skáldsögu sem nefnist Eldri konur.Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um listina, hvað drífur okkur áfram og baráttu okkar við að halda okkur á jaðrinum. Þetta er svo fallegt og skemmtilegt spjall við einstaka listakonu.----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornsson og mennska_Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  19. 27

    “Það er ekki hættulegt að leyfa fólki að vera eins og það er” - Daníel E. Arnarsson

    Daníel E. Arnarsson er magnaður hugsjónamaður og hefur komið víða við á stuttri ævi. Hann var um tíma framkvæmdastjóri Vinstri grænna og starfaði einnig sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 í 7 ár. Þar að auki hefur hann verið á þingi sem varamaður og freistar þess nú að komast inn í lögfræði í HÍ.Í þessum þætti fræðist ég mikið um Samtökin '78 og það magnaða starf sem þar er unnið. Við ræðum auðvitað líka pólitík, bakslagið og hvernig við getum haldið áfram að gera heiminn að betri stað. Það gustar af Daníel og þetta er stórskemmtilegt spjall því hann er myljandi skemmtilegur.-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  20. 26

    "Það er ekki til quick-fix" - Dögg Guðmundsdóttir

    Dögg Guðmundsdóttir er mögnuð kona sem hefur mikla ástríðu fyrir næringarfræði og heilbrigðu sambandi við mat. Hún er á lokametrunum að klára MS í næringarfræði vinnur við ráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins.Við förum vítt og breitt í hið stóra viðfangsefni sem er næringarfræðin og kemur í ljós að það er ekki til neitt eitt svar til að öðlast heilbrigt líf í gegnum mataræði (sem var ákveðinn skellur). Við ræðum m.a. mýturnar sem eru þarna úti, af hverju kolvetnin hafa verið máluð út í horn sem einhvers konar djöfull, þarmaflóruna, nútvitund og geðheilbrigði. Alveg dásamlega skemmtilegt spjall og ég lærði svo mikið.Endilega fylgið @naeringogjafnvaegi sem er æðislegur vettvangur sem kemur inn á ótalmargt  í sambandi við heilsu, næringu og jafnvægi lífins.Dögg á insta: @dogg.gudmunds----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  21. 25

    “Listin getur verið rás fyrir kærleikann” - Vigdís Jakobsdóttir

    Vigdis Jakobsdóttir er ástríðufullur listamaður sem hefur komið að ævintýralegum verkefnum. Hún lærði leikstjórn í Bretlandi og við heimkomu byrjaði hún strax að leikstýra ásamt því að stofna fræðsludeild Þjóðleikhússins og starfaði þar í áratug. Hún var einnig aðjúnkt í listkennsludeild LHÍ, hefur verið í alþjóðastjórn ASSITEJ (samtök sviðslistahópa og leikhúsa fyrir unga áhorfendur) og er þessi misserin að ljúka störfum sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Í þætti vikunnar ræðum við ástríðu okkar beggja sem eru aðgengismál og hvernig listin getur verið farvegur fyrir kærleikann og magnaðar samfélagsbreytingar. Það var dásamlegt að eiga hispurslaust og gefandi spjall við þessa drífandi og kærleiksríku konu.----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  22. 24

    "Ég sætti mig ekki við að vera smættaður niður í eitthvað eitt" - Bjartmar Þórðarson

    Bjartmar er magnaður listamaður og sprenglærður í þokkabót. Hann vinnur jöfnum höndum við að leika, syngja, leikstýra og kenna auk þess sem hann nýtur þess að gera upp íbúðir.Sameiginlegir snertifletir okkar tveggja eru margir í lífi og list þar sem við erum báðir hommar og leikarar. Við köfum djúpt í þann skrítna veruleika sem getur myndast þegar hið heterónormatíva samfélag vill setja okkur í box. Við ræðum ást okkar á söngleikjum, sem og leiklist í víðu samhengi og eigum hér yndislegt og heiðarlegt spjall.

  23. 23

    "I put my life into 23kg bag to come here" - Ray Milano

    Ray left his home country of Venezuela because of persecution because there he is a well known out gay man and drag queen, and he didn't feel safe. He moved to Iceland last year and has already made a huge impact on the queer community here with his drag performance artistry and love. We talk about his background in his hometown in Venezuela, his dancing and drag. He tell me about how he stopped feeling safe in his country and how his journey to Iceland was. We talk about the gay life, coming out, love, laughter and fun times.Please follow Ray's drag queen Crisartista on instagram and go see her at her next gig! Her handle is  @crisartista----Bjarni Snæbjörnsson is the creator of Mennska (Humanity). Find out more and/or follow him here:www.bjarnisnae.comInstagram: bjarni.snaebjornssonfacebook.com/bjarniactorTónlist/music: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.

  24. 22

    "Við erum orka" - Jóhanna Jónas

    Jóhanna Jónasdóttir er leikkona, heilar, þerapisti og dansari. Hún er móðursystir mín og hefur verið uppáhaldsfrænka frá því ég man eftir mér. Hún menntaði sig sem leikkona í Bandaríkjunum og átti mikilli velgengni að fagna í þeim bransa, fyrst í New York og Hollywood, en við heimkomu til Íslands var hún fastráðin við Borgarleikhúsið í nokkur ár. Í kjölfar algers hruns á líkama og sál tók við djúp heilunar- og sjálfsvinna sem leiddi hana í heilunarnám. í dag starfar hún sem heilari og samtalsþerapisti og hjálpar öðrum að takast á við áföll og erfiðleika. Þessa dagana gefur hún út sjálfsævisögu sína: Frá Hollywood til heilunar, sem er ekki aðeins heiðarlegt uppgjör við ævina, sorgir og sigra, heldur einnig aðgengileg sjálfshjálparbók.Þetta er yndislegt spjall þar sem tenging okkar er nú þegar mjög djúp og við týnum okkur alveg í flæði og tengingu.Heimasíða Jóhönnu með hugleiðslum og námskeiðum:www.johannajonasar.is------Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  25. 21

    "Afsala ég mér mannréttindum mínum því ég á erfitt með gang?" - Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir

    Kolbrún Dögg er sviðslistakona, höfundur, aktívisti og leikkona. Hún leikur nú í sínu eigin verki í Þjóðleikhúsinu sem nefnist Taktu flugið, beibí og þar segir hún frá lífshlaupi sínu, sigrum og hindrunum.Í spjalli vikunnar förum við vítt og breitt eins og vanalega og tölum að sjálfsögðu um listina, aktívismann, aðgengismál, mannréttindi, ritstörfin og drauma framtíðarinnar. Kolbrún er svo yndisleg og jarðtengd að ég öðlaðist stærra hjarta og mikla innri ró við að kynnast henni svona vel og eyða með henni smá stund.----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  26. 20

    "Ég hugsa listina sem þjónustustarf" - Una Torfadóttir

    Una þarf varla að kynna en hún hefur geirneglt sig inn í íslenskt tónilstarlíf á stuttum en kraftmiklum ferli frá því fyrsta lagið hennar kom út í mars 2022. Í þætti dagsins förum við yfir hvað leiddi hana að tónlistarferlinum og hvernig er umhorfs hjá henni í dag. Við ræðum einnig sviðslistir, klæðskerasaum, giggin og að sjálfsögðu nýjan söngleik hennar Storm, sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu snemma árs 2025. Þetta var svo gefandi og skemmtilegt spjall við konu sem gerir allt frá hjartanu.----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  27. 19

    "Ég nota öll fornöfn - ég vil aðallega vera sexý" - Sindri "Sparkle" Freyr

    Sindri Sparkle (hún/hán/hann) er einstakt fjöllistakvár sem starfar við grafíska hönnun, uppistand, ljóðaskrif og myndlist. Í þætti vikunnar kynnist ég þessum stormsveip sem er uppfullt af húmor, gáska og hlátri. Við ræðum að sjálfsögðu hinseginleikann í allri sinni dýrð og förum vítt og breitt um heim listarinnar, hvernig við látutum hlutina gerast og þurfum líka að vinna tengiliðavinnu og plögga okkur. Svo mergjaður þáttur og það gustar alveg um stúdíóið í orkunni sem stafar af Sindra.Sindri á instagram: sindrisparklefreyr----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  28. 18

    "Gerðu það sem hjartað þitt segir" - Birna Rún Eiríksdóttir

    Birna Rún er manneskja með marga hatta og hún er alveg svakalega góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Sem leikkona hefur hún sést á skjám landsmanna í fjölda ára og hlaut Edduna á sínum tíma fyrir Rétt. Hún hefur leikið mikið á sviði og flæddi lífrænt inn í það að verða mjög vinsæl á tiktok og instagram. Svo er hún uppistandari, veislustjóri og er nú að stíga sín fyrstu skref sem leikstjóri í gamanþáttaseríunin Flamingo Bar sem sýndur er á Stöð 2.í þættinum ræðum við bransann, lífið, kynlífið, börnin, hundana, að stíga inn í sjálfa sig, hræðslu okkar beggja við stöðnun og hvernig við getum gefið okkur sjálfum heimild til að vera við sjálf. Þetta er svo skemmtilegt og heiðarlegt spjall. Ég elskaði hverja mínútu.Birna á instagram: birnaruneiriks----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  29. 17

    "Ég vil alltaf vera fyrirmynd" - Kristín Taiwo Reynisdóttir

    Kristín Taiwo Reynisdóttir (hún/hennar) er háskólanemi og einn af stofnendum Antirastistanna sem er hópur aktivista sem er með það markmið að fræða Íslendinga um rasisma. Hópurinn heldur úti instagram reikningnum @antirasistarnir og hefur gefið út hlaðvörp og staðið fyrir ýmiskonar fræðslu. Í þættinum segir Stína mér frá reynsluheimi sínum og hvernig það er að vera svört á Íslandi. Svo förum við yfir hvernig hvernig við getum mætt hvert öðru betur. Fyrir utan allt þetta læri ég líka um hvernig unga fólkið djammar í dag eins og t.d. á októberfest. Þetta var svo skemmtilegt spjall þar sem við hlógum að lífinu og hversu fáránlegt fólk getur stundum verið.------Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  30. 16

    "Við stóðum saman" - Einar Þór Jónsson

    Einar Þór er einstakur aktívisti sem hefur staðið vaktina í málefnum hinsegin fólks og HIV smitaðra í áraraðir. Í þætti vikunnar förum við yfir æsku hans í Bolungavík og lærum hvernig sögur okkar tveggja eru að mörgu leiti líkar, þó 20 ár skilji okkur að. Einar segir okkur einnig frá ferðalagi sínu út úr skápnum og hann lýsir því hvernig alnæmisfaraldurinn var fyrir hann og hans samferðafólk. Svo tölum við auðvitað um tilfinningar og hann segir okkur hvernig hann passar upp á sig í gegnum lífsins ólgusjó og áföll.-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  31. 15

    "My mind is occupied" - Bashar Murad

    Bashar Murad was the main guest at Reykjavík Pride this year performing both at the opening ceremony as well as on the big stage in down town Reykjavík for the 100.000 guests that showed up for the celebration.He is a Palestinian pop star who has been making a name for himself in Europe and beyond. In this episode he tells me about his childhood and how it was growing up under an occupation. We delve into the topics of pinkwashing and talk music, art, queerness and how we can come together and make the world a better, safer place.Please follow bashar on instagram: basharmuradofficial---Bjarni Snæbjörnsson is the host in the podcast Mennska (meaning: humanity).www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Music: Axel Ingi ÁrnasonGraphic design: Emilía Ragnarsdóttir

  32. 14

    "Það er í lagi að skilja ekki" - Helga Haraldsdóttir

    Helga Haraldsdóttir stendur í ströngu þessa dagana enda er hún formaður Hinsegin daga í Reykjavík (ekki "Íslands" eins og ég segi í þáttunum!). Hún er einnig magnaður kokkur og við tengjumst beint í gegnum nostalgískar æskuminningar frá Vestfjörðum.Í þætti vikunnar förum við yfir mikilvægi Hinsegindaga og tölum um hátíðina í ár sem er stórglæsileg að vanda. Hún segir mér frá skemmtilegu lífshlaupi sínu og hver hennar togstreita hefur verið í sambandi við hinseginleikann. Svo hlæjum við svo mikið og gerum stólpagrín - að okkur sjálfum. Þáttur vikunnar kemur extra snemma því ég er svo spenntur fyrir Hinsegindögum!---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  33. 13

    "Tengslin eru númer 1, 2 og 3" - Lilja Sif Þorsteinsdóttir

    Lilja Sif er magnaður sálfræðingur sem heldur úti instagram reikningnum Heilshugar (@heilshugar_)Eftir tveggja vikna sumarfrí dembum við okkur á dýptina varðandi hvað tengsl eru mikilvæg fyrir okkur mannverur, hvernig við erum hópdýr og hvernig það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að eiga náin sambönd við annað fólk.  Við ræðum líka sjálfsrækt og sjálfsvinnu og auðvitað komum við inn á kerfin sem maðurinn hefur skapað sem er að buga okkur felst; kapítalismi, kynjakerfið, rasismi og nýlendustefnan.Bækur sem við ræðum:My Grandmother's Hands eftir Resmaa MenakemHow to be an Antirasist eftir Ibram X. KendiThe Boy Who Was Raised as a Dog eftir Bruce D. Perry og Maia SzalavitzALOK á instagram: @alokvmenonBjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku.Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð.www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Tónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  34. 12

    “Especially in the arts, we have to hold each other accountable” - REC Arts Reykjavik

    For this episode I welcome the amazing humans who are creators of REC Arts Reykjavik; Chaiwe Sól Patiswa Drífudóttir (she/her), Eva Yggrasil (she/they) and Rebecca Hidalgo (she/her). They are activists, artists, teachers and so many other beautiful things are fighting continuously to make the world a better place by highlighting stories and artistry of marginalised groupsWe go over many heartfelt topics that matters dearly to all of us like inclusion, how to create a community and a safe space, the power of the arts, and what it is to feel like to truly belong.Please follow REC Arts Reykjavik on social media:Instagram: @recartsrvkFacebook: https://www.facebook.com/recartsrvkPersonal IG handles:Chaiwe: @chaiwe_the_blaikingRebecca: @ondinathequeenEva: @eva.yggdrasil----Bjarni Snæbjörnsson is the creator of the podcast Mennskawww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonFacebook: https://www.facebook.com/bjarniactor Music: Axel Ingi ÁrnasonGraphic design and book cover Emilía Ragnarsdóttir

  35. 11

    “Ég legg mig fram við það að vera í hárri þakklætis- og kærleikstíðni” - Ellý Ármanns

    Í þætti vikunnar förum við Ellý Ármanns um víðan völl. Ellý þarf vart að kynna enda ein af eftirminnilegustu þulum RÚV og starfar m.a. í dag sem spákona og myndlistakona. Ég var svo spenntur að kynnast Ellý í gegnum þetta samtal og hér förum við í fullkomið flæði þar sem við ræðum þakklæti, lærdóm lífsins, listina, litlu börnin innra með okkur, leiðir til heilunar og margt margt fleira. Ellý á instagram: ellyarmannsdottir-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdótti

  36. 10

    "Listin er samfélagslega mótandi" - María Thelma Smáradóttir

    María Thelma (hún) er mögnuð leikkona sem hefur komið víða við á sinni stuttu starfsævi; skrifað og leikið í sínum eigin einleik, leikið í Þjóðleikhúsinu og mörgum sjónvarpsþáttum og fengið tilnefningar til Grímunnar.Í þætti vikunnar ræðum við á dýptina um list leikarans, um stóra samhengi lista, fjölbreytileika og hvað það skiptir miklu máli að eiga dýnamískar fyrirmyndir. Við förum yfir hvað það þýðir að standa með sjálfri sér og hvernig lífið og listin eru í raun últramaraþon.María Thelma á instagram: mariathelma93---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  37. 9

    "Við höfum öll rétt á því að líða vel" - Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir

    Ugla er mögnuð kona sem hefur stigið fast til jarðar varðandi réttindi trans fólks frá unga aldri. Í þætti vikunnar segir hún okkur frá sögu sinni og hvernig hún datt inn í aktívisma. Við ræðum einnig stöðuna í dag  í réttindamálunum og hvernig við þurfum að passa upp á það á hverjum degi að sjálfsögð mannréttindi okkar séu ekki tekin af okkur.Ugla á instagram: uglastefania----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  38. 8

    "Ástin sameinar því hún er mótspyrnan við hatri" - Ingileif Friðriksdóttir

    Ingileif Friðriksdóttir er mögnuð kona sem framkvæmir hugmyndir sínar og hefur því komið víða við, t.d. sem aktivisti, framleiðandi og höfundur sjónvarpsefnis, áhrifavaldur, fjölmiðlakona og margt margt fleira. Fyrir stuttu gaf hún út sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Ljósbrot sem er mjög spennandi og grípandi bók sem hverfist um ástir kvenna.Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um hinseginleikann, mikilvægi fyrirmynda, hvernig það er að skrifa heila bók, meðvirkni okkar, tilfinningagreind og hvernig við höfum lært að treysta flæðinu í lífinu.Hér er hægt að finna Ingileif á instagram: ingileiffSvo er það að sjálfsögðu hinseginleikinn á instagram: hinseginleikinnHér er hægt að kaupa bókina Ljósbrot: https://www.salka.is/collections/nyjustu-baekurnar/products/ljosbrot----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  39. 7

    "Við erum öll heil" - Bjarki Steinn

    Bjarki Steinn (hann) er ein af þessum manneskjum sem kemur inn í lífið manns og það er eins og við höfum alltaf þekkst. Hann er einstök fyrirmynd, opin og kærleiksrík sál sem segir mér frá lífi sínu og lærdóm í gegnum heilunarvinnu. Við ræðum hugvíkkandi efni, hinseginleikann, óttann, skömmina og mikilvægi þess að taka fagnandi á móti öllum tilfinningum okkar.Bjarki Steinn á instagram: https://www.instagram.com/bjarki_p?igsh=MXRuNjRmMHVjOTE4Nw==Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir--Eins og hlustendur taka eftir þá eru engar auglýsingar í Mennsku og ég vil gjarnan halda því þannig. Ef einstaklingar eða fyrirtæki vilja styrkja hlaðvarpið þá býð ég upp á valkvæða millifærslu þar sem þið ráðið upphæðinni. Hægt er að biðja um greiðslukvittun með því að senda mér skilaboð hér og taka fram kennitölu einstaklings / fyrirtækis:  https://www.bjarnisnae.com/contact-meVinsamlegast skrifið "hlaðvarp" í skýringu á millifærslu. kt: 0707785139rn: 0111-26-269483Með fyrirfram þökk, Bjarni

  40. 6

    "Við eigum ekki endilega að vera alltaf hamingjusöm" - Hulda Tölgyes

    Hulda Tölgyes er sálfræðingur, rithöfundur og mögnuð kona. Í þættinum eigum við dásamlegt samtal um fjöldamörg málefni sem við elskum bæði, t.d. partavinnu, triggera, leiðir til að koma okkur í jafnvægi og hvernig við getum hlúð að litlu börnunum innra með okkur. Við ræðum auðvitað líka þriðju vaktina, feðraveldið og hvernig við getum hjálpað hvort öðru og börnunum okkar að upplifa að þau tilheyri.Vefsíða: www.thridja.isInstagram: hulda.tolgyesVefsíðan sem Bjarni segir frá í sinni djúpdáleiðsluvinnu: www.tobemagnetic.com ----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com IG: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  41. 5

    "Ég ákvað bara að ráðast í þetta" - Hafsteinn Þórólfsson

    ** Varúð váhrif / Trigger Warning. Í samtalinu við Hafstein eru mörg erfið málefni rædd eins og einelti, kynferðisofbeldi gegn börnum, nauðgun og sjálfsvígshugsanir. **-----Hafsteinn Þórólfsson (hann) er söngvari, tónskáld og einstakur listamaður. Í þætti vikunnar segir hann okkur frá mögnuðu heilunarferðalagi sem hann þurfti að fara í vegna mikilla áfalla sem hafa dunið á honum í gegnum ævina. Við ræðum leiðir til sjálfsástar og heilunar sem og um skömmina, hinseginleikann, ástina, húmorinn og mikilvægi þess að eiga gott bakland og að leita sér hjálpar. Þátturinn er óvenjulega langur að þessu sinni því frásögn Hafsteins er flókin, margslungin og marglaga.---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.com IG: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía RagnarsdóttirLjósmynd af Hafsteini: Sunday & White Studio

  42. 4

    "Ekki láta öfgafulla umræðu þagga niður raddir umburðarlyndis" - Þorbjörg Þorvaldsdóttir

    Þorbjörg Þorvaldsdóttir (hún) er verkefnastýri hjá Samtökunum 78 og hefur verið ósérhlífin síðustu ár að berjast fyrir auknum mannréttindum ólíkra jaðarhópa. Í þættinum ræðum við um muninn á hatursorðræðu og hættulegri orðræðu. Ég læri um gagnvirka orðræðu og hvernig það er hjálplegt að manneskjuvæða hvort annað. Samtalið var mikill innblástur og minnti mig á hvernig mannréttindabarátta er maraþon og hvernig það gengur alltaf betur þegar við leggjum öll eitthvað að mörkum.-----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.comIG: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  43. 3

    "Fjölbreytileiki er lífið" - Guðbrandur Árni Ísberg

    Gestur vikunnar er Guðbrandur Árni Ísberg sem er reynslumikill sálfræðingur og höfundur Hann hefur skrifað bækur bæði um NÁNDINA og SKÖMMINA og er þessi misserin að skrifa nýja bók um ÁSTINA. Þetta var svo skemmtilegt og lærdómsríkt samtal þar sem við fórum á dýptina og ég lærði mikið um hvernig skömmin er í raun til staðar til að hjálpa okkur, þó hún sé oftast óþægileg.Ég mæli einnig með samtalinu sem Guðbrandur átti við Þorstein V. Einarsson hjá hlaðvarpinu Karlmennskunni árið 2022 þar sem hann ræðir einnig náið um skömmina. Hér er hlekkur á þann þátt: https://open.spotify.com/episode/065OXyeuzaYbXOcgHLuoDd?si=efd47eeae6824339 ----Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennskuwww.bjarnisnae.comIG: bjarni.snaebjornssonTónlist: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  44. 2

    "We can't talk about diversity without talking about inclusion" - Achola

    Achola is the creator of the very educational instagram account @inclusiveiceland and works towards raising awareness of the underrepresented priorities of women of foreign origin, people of colour and minorities. She holds an MA in International Affairs from the University of Iceland and has worked in different specialist positions relating to immigrant issues in Iceland.In this episode we talk about what inclusion really is and how we can't really talk about it without talking about diversity and privilege. Please follow @inclusiveicelandBjarni Snæbjörnsson is the creator and host of the Mennska podcast. Music: Axel Ingi ÁrnasonCover Design: Emilía Ragnarsdóttir

  45. 1

    "Gullvagninn kemur ekki að sækja mann." - Vala Kristín Eiríksdóttir

    Gestur þessa fyrsta þáttar er Vala Kristín Eiríksdóttir. Hún er leikkona, höfundur, framleiðandi og ein af mínum bestu vinkonum. Við kynnumst kvíðnum gíraffa, ræðum um ferðalag hennar í listinni, tilfinningar, breyskleika, vináttuna, innsæi og hlæjum okkur í gegnum klukkutíma af spjalli.We Can Do Hard Things, viðtal við Alok: https://open.spotify.com/episode/6AzxGzTIB4SNEIkJOfo7fh?si=5734a95d893f457c

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi.Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.Most episodes are in Icelandic and some in English.Tónlist/music: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.www.bjarnisnae.comInstagram: bjarni.snaebjornsson---Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkjaMennska verður

HOSTED BY

Bjarni Snæbjörnsson

URL copied to clipboard!