Episodes
-
Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí. Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og...
-
Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni. Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt. Næsta fimmtudag munum við kynna...
-
Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er...
-
Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn...
-
Rauður raunveruleiki - Alþjóðlegur baráttufundur gegn heimsvaldastefnu og arðráni
Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi. Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum. Kapítalismi og...
-
Átök í Sósíalistaflokknum
Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.
-
Rauður raunveruleiki - Stríðsæsingar, vestræn sjálfsmynd og óvinir frelsisins
Jovana Pavlovic, Jökull Sólberg Auðunsson & Halldór Armand koma til Karl Héðins að ræða um stöðu heimsmálanna, stríðsæsingar, vestræna sjálfsmynd, um stöðu Evrópu og Íslands á áhugaverðum tímum. Klukkan 17:30 í beinni á Samstöðinni
-
Rauður raunveruleiki - Byggjum betur!
Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!". Undirskriftarlisti hér:...
-
Virðing fyrir fólki og lífi / Askur og Kristbjörg
Virðing fyrir fólki og lífi. Fjallað um tímana og fólk á flótta með Aski Hrafni Hannessyni og Kristbjörgu Örnu Elínudóttur Þorvaldsdóttur. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anitu Da Silvu Bjarnadóttur.
-
Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson
Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“. Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það...
-
Rauður raunveruleiki - Stéttabarátta, nýfasismi og Twitter
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í...
-
„Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu. Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp...
-
Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
-
Rauður raunveruleiki - Fangelsin, öryrkjar og velferð. Sósíalistar ræða málin.
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur. Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum. Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum…
more -
Rauður raunveruleiki - Ragnar Sverrirsson / Heimsganga fyrir friði og tilveru án ofbeldis
Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu. Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun...
-
Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður
Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið. Alfred hefur margt til…
more -
ASÍ, mótmæli á morgun, stéttabarátta og pólitík.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00. Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum. Nú er nóg komið!“…
more -
Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson
Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar. Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi…
more -
Rauður raunveruleiki - Ingólfur Gíslason & Sæþór Benjamín Randalsson
Antia Da Silva og Karl Héðinn fá til sín góða gesti í spjall um heimsmálin og efnahagsmál. Ingólfur Gíslason er kennari sem hefur verið mjög virkur í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Sæþór Benjamín Randallsson situr í stjórn Eflingar og er ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti.
-
Þórarinn Eyfjörð - Menntun, samfélag, lýðræði og stéttabarátta
Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu. Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings...
-
Venesúela - Ráðist að fullveldi og sjálfstæði þjóðar
Í dag ætlum við að ræða um Venesúela. Bólivarísku byltinguna frá 1999, þjóðnýtingu Venesúlega á olíuauðlindum sínum, sem eru þær stærstu í heimi. Við ræðum við Gunnvöru Rósu Eyvindardóttir, en hún vann meistararitgerð um áhrif bólivarísku byltingarinnar fyrir almenning í Venesúela. Tjörvi…
more -
Sósíalistar allra landa: Eleobore Mbra Kofi
Kristinn Hannesson sótti nýlega mjög fjölmenna ungmennaráðstefnu í Rússlandi þar sem ungt fólk úr hinum svokallaða þriðja eða öðrum heimi var og þar á meðal mikið af sósíalistum. Kristinn myndaði tengingar við sósíalista víðsvegar að úr Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku og við höfum ákveðið…
more -
Heimsvaldastefnan, Trump og Suður Ameríka / Eyjólfur B. Eyvindarson
Eyjólfur B. Eyvindarson, einnig þekktur sem Sesar A er gestur okkar í kvöld. Við ræddum um heimsmálin, skotárásina á Trump, heimsvaldastefnuna, Suður Ameríku og nýlega valdaránstilraun í Bólivíu. Einnig ræðum við um aðdraganda Úkraínustríðsins og um 75 ára afmæli NATÓ hernaðarbandalagsins.…
more -
Barnasáttmálinn, siðrof og barátta
Í þættinum í kvöld koma til okkar þau Askur Hrafn Hannesson og Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir. Kristbjörg er meðlimur baráttusamtakana No Borders og hefur verið í fremstu víglínu við að reyna að stöðva brottvísun Yazan, Palestínska barnsins með hættulegan hrörnunarsjúkdóm. Askur er sömuleiðis...
-
Radio Radicale / Róttæk fjölmiðlun á Ítalíu
Radio Radicale er róttækur ítalskur fjölmiðill sem hefur starfað óslitið frá 1976. Við vorum svo lánsöm að ná tali af Stefano Chiarelli en hann hefur unnið hjá Radio Radicale í marga áratugi! Stefano mun tala ítölsku í viðtalinu en unnusta hans, Estrid Þorvaldsdóttir, mun þýða fyrir okkur. Við...
-
Hagkerfið, vaxtamunur og okur, gjaldeyrismál
Jóhannes Hraunfjörð Karlsson er hagfræðingur og sagnfræðingur. Við tókum ítarlegt spjall, ásamt Ólafi Jónssyni og Kára Jónssyni, um ástandið í hagkerfinu í dag, um vaxtamun og okur og um gjaldeyrismál. Hvert er stefna yfirvalda búin að taka okkur og hvað þarf að gera til að koma okkur úr þessum...
-
Palestína, mótmæli, ofbeldi lögreglunnar og forsetakosningar
Gestir þáttarins eru Sanna Magdalenda Mörtudóttir, Magga Stína, Ægir Máni Bjarnason og Stefán Örn Snæbjörnsson. Þátturinn er í umsjón Anitu Da Silva Bjarnadóttur og Karl Héðins Kristjánssonar
-
Red Reality - Gaza 2024: A Catastrophic Man Made Disaster - Dr. Mads Gilbert
Rauður raunveruleiki - 28. maí Red Reality - Gaza 2024: A man made disaster - Dr. Mads Gilbert Dr. Mads Gilbert er norskur læknir sem hefur látið sig málefni Palestínu varða í langan tíma. Við ræddum við Mads um hryllinginn á Gasa, um styrk mannkynsins og nauðsyn þess að við berjumst fyrir því…
more -
Umhyggja, siðferði, samfélag og Marx - Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson
Í Rauðum raunveruleika í kvöld tölum við við nýdoktor í heimspeki, hann Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson. Doktorsverkefnið hans snérist um frásagnir fórnarlamba af ofbeldi. Um tengsl frásagna og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert…
more -
Kvennaverkföll, feminismi og stéttarbarátta
Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu.…
more -
Hagfræði, pólitík og spilling / Þorvaldur Gylfason
Þorvaldur Gylfason er hagfræðingur, prófessor emeritus og samfélagsrýnir. Við ætlum að ræða við Þorvald um hagkerfið, stjórnsýsluna á Íslandi og um spillingu. Af hverju virðist ekki vera tekið á spillingarmálum á Íslandi? Er hagkerfið að virka fyrir almenning í landinu? Hver eru áhrif ólígarka á...
-
MFÍK & SHA: Baráttan fyrir réttlæti og friði
Guttormur Þorsteinsson er formaður Samtaka Hernaðarandstæðinga og Lea María Lemarquis er meðlimur MFÍK, Menningar og Friðarsamtaka Kvenna. Við komum beint af samstöðufundi fyrir Palestínu, laugardaginn 20. apríl, þar sem Lea og Guttormur voru með ræðu. Við ræddum um utanríkisstefnu Íslands,...
-
Eimreiðarelítan: Auðvaldsklíkur og Spilling / Þorvaldur Logason
Nýverið kom út bók eftir félagsfræðinginn og heimspekinginn Þorvald Logason sem ber nafnið Eimreiðarelítan - Spillingarsaga. Í þeirri bók er rakin saga þess hvernig fámennum hóp á Íslandi tókst að grípa óheyrileg völd og beita þeim til þess að hagnast sér og sínum, á kostnað almennings. Í…
more -
Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti / Guðmundur Hrafn Arngrímsson
Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á…
more -
Rauður raunveruleiki - Pressenza: Nonviolent journalism, humanism and truth
Gestir Rauðs raunveruleika eru Pía Figueroa og Antonio Cravollo. Pía er einn stofnenda alþjóðlega fréttamiðilisins Pressenza og húmanisti. Antonio Cravalo er skipuleggjandi húmanistahreyfingarinnar og er, meðal annars, virkur í heimsþingum húmanista í Asíu og Suður - Ameríku. Við töluðum við Píu…
more -
Kominn heim frá Rússlandi. Ungmennaráðstefnan og heimspólitíkin / Kristinn Hannesson
Kristinn Hannesson er nýkominn heim frá ungmennaráðstefnu í Sochi, Rússlandi. Við fengum að heyra um upplifun hans af ráðstefnunni og fjölluðum um heimspólitíkina henni tengdri. Um nýja kalda stríðið og leiðina út úr því. Tekið upp 18. mars
-
Red reality - World Humanist Forum and the march for peace and non-violence
The World Humanist Forum just took place in Reykjavík ahead of the world march for peace and non - violence. A recording of the meeting, which took place in the national library of Iceland, will be published on Solidarity Station in the coming week. We spoke to some of the main organizers of the...
-
Seðlabankinn. Stéttastríð? Pólitískt hagkerfi samtímans
Karl Héðinn fjallar um fréttir vikunnar, stýrivexti seðlabankans, ójöfnuð og auðræði. Einnig verður fjallað um Ísraelsku greiðsluþjónustuna Rapyd og háskólakerfið, um reiðufé, banka og vilja auðvaldsins til þess að takmara reiðufé.
-
Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls
Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working...
-
14 ár í Guantanamo án saka / Mohamedou Ould Slahi & Dr. Deepa Driver
Mohamedou Ould Slahi var fangelsaður og pyntaður hryllilega í fangabúðum Bandaríkjanna við Guantanamo-flóa frá 2002 til 2016 án allra saka. Í fjórtán ár var hann sviptur frelsi sínu, smánaður og beittur grimmilegu ofbeldi af margvíslegum toga. Mohamedou var í heimsókn á Íslandi um helgina og…
more -
Fjölskyldusameiningar og glæpir gegn mannkyninu
Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson fjalla um fjölskyldusameiningar, neyð fólks í Palestínu og glæpsamlega framferði Ísraelsríkis. Við munum aðeins snerta á nýju kjarasamningunum og um nauðsyn baráttunnar fyrir betri heimi
-
Nordic Baltic Sustainability Conference
The Nordic Baltic Sustainability Conference was held in Iceland this year and we have the pleasure to speak to the attendees just following the close of the conference. We will speak about the environment, the statement of the conference and what the future might hold for Nordic and Baltic...
-
Mótmælt fyrir Palestínu / umræða vikunnar
Karl Héðinn og Oliver Axfjörð segja frá samstöðumótmælum fyrir Palestínu sem fóru fram í dag á öllum Norðurlöndunum. Við sýnum myndbönd þaðan og fjöllum um ástandið á Gaza og í heiminum. Einnig munum við velta fyrir okkur af hverju Sjálfstæðismenn telja sig þurfa sérsveitargæslu og hvers vegna...
-
Rússland og heimsvaldastefnan: Ungmennaráðstefna í Sochi
Kristinn Hannesson kom til okkar í Rauðan raunveruleika áður en hann flaug út til þess að sækja alþjóðlega ungmennaráðstefnu í Rússlandi. „World youth festival”. Hátíðina munu um 20.000 ungmenni sækja, víðsvegar að úr heiminum. Í þættinum fjöllum við um ástæður þess að hann, ásamt annarri frá...
-
Þjóðarmorð í beinni, siðrof og firring
Grimmd Ísraels gagnvart Palestínu hefur bara aukist eftir úrskurð Alþjóðadómstólsins. Neyð fólks á Gaza hefur aldrei verið meiri. Í þættinum í kvöld munum við ræða um nýjustu fréttir af árásunum, alþjóðasamfélagið og ræða stöðuna í samfélaginu.
-
Díalektísk efnishyggja / Þorvaldur Þorvaldsson
Þorvaldur Þorvaldsson er ötull baráttumaður fyrir sósíalisma og situr í stjórn lífskoðunarfélagsins DíaMat Við munum ræða við Þorvald um díalektíska efnishyggju, sögu hennar og áherslur, sósíalisma og um aðalfund félagsins sem er núna næsta sunnudaginn kl. 15:00 í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105
-
Skuldaþrælkun og frétt vikunnar
Í kvöld mun Karl Héðinn greina frá versnandi skuldastöðu heimilanna í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hvernig skuldir heimilanna og ríkissjóða hafa stóraukist á undanförnum árum og fjalla um þá pólitísku hagstefnu sem liggur þar á bakvið. Einnig verður sagt frá frétt vikunnar, að okkar mati....
-
Árásir á Jemen, stigmagnandi stríð
Bandaríkin og Bretland hafa varpað sprengjum á Jemen minnst sex sinnum á síðustu tíu dögum. Þetta gera þeir til þess að „vernda alþjóðlegar flutningaleiðir“ frá banni Jemens á umgangi ísraelskra skipa í gegnum Rauðahafið Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ætlum við að fjalla um þessar árásir...
-
Rauður raunveruleiki - Gengisfelling þjóðarinnar
Í kvöld munum við ræða við Ólaf Jónsson og Kára Jónsson um gengisfellingu krónunnar. Er verið að halda gengi krónunnar niðri viljandi og þá hvers vegna? Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert undanfarið og það leitt til þess að kaupmáttur heimilanna hefur rýrnað. Mörg stærstu fyrirtæki landsins…
more -
The legacy of colonialism - Giti Chandra
Dr. Giti Chandra er fræðimaður hjá GEST-verkefninu við Háskóla Íslands og hélt nýverið erindi í Stjórnmálaskóla Sósíalistaflokksins um nýlendustefnuna. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Guðröður Atli Jónsson, Karl Héðinn Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir munu ræða við Giti um nýlendustefnuna...