Súrinn
by RÚV Hlaðvörp
Í þúsundir ára hefur mannfólkið bakað ilmandi súrdeigsbrauð í samstarfi við örverur súrdeigsins. En súrdeigsbakstur á Íslandi nær þó varla svo langt aftur? Hver ætli sé elsti súr á Íslandi og hvar er hann að finna? Ragnheiður Maísól Sturludóttir leggur af stað í rannsóknarleiðangur til þess að komast að uppruna súrdeigsins á Íslandi. Við nánari skoðun á þessari litlu deigklessu vakna stórar spurningar um mannfólkið og tengsl okkar við heiminn.
Episodes
-
6. þáttur: Eistneski súrinn
Í þessum sjötta og síðasta þætti veltir Ragnheiður Maísól fyrir sér af hverju súrdeigsbakstur varð svona vinsæll á tímum covid-faraldursins. Hún er þó aðallega að velta fyrir sér hvernig stendur á því að við myndum tilfinningatengsl við deigklessu í krukku og gerum allt sem í okkar valdi stendur...
-
5. þáttur: Heilög Fransiska og Alaskasúrinn
Hvernig endar súrdeigsmóðir, sem er beintengd sænsku konungsfjölskyldunni og Nóbelsverðlaununum, í Mosfellsbæ? Og hvernig flækist hún þaðan á Djúpavog? Ragnheiður Maísól hittir þessa víðförlu súrdeigsmóður sem nefnist Heilög Fransiska. Svo er það hin súrdeigsmóðirin á Höfn í Hornafirði sem hefur...
-
4. þáttur: Skyrið hennar Bergþóru
Ragnheiður Maísól er að velta fyrir sér örverum súrdeigsins og grúska í minjaskrá Þjóðminjasafnsins þegar hún rekst á þrælmerkilegar skyrleifar. Líklega eru þetta elstu varðveittu minjar hér á landi um samstarf mannfólks og örvera í eldhúsinu. Uppfull af forvitni leggst hún í frekari rannsóknir á...
-
3. þáttur: Baskasúrinn
Leitin að elstu súrdeigsmóður Íslands tekur óvænta stefnu einn morguninn þegar Ragnheiður Maísól er að fara með dóttur sína í leikskólann. Frá leikskólanum berst leitin vestur á Strandir, þaðan austur á Seyðisfjörð, því næst til Baskalands og loks suður til Reykjavíkur þar sem í ljós kemur að...
-
2. þáttur: Atvinnusúrinn
Ragnheiður Maísól reynir að átta sig á sögu brauðmenningar á Íslandi og hvar sé líklegast að bakað hafi verið samfleytt úr súrdeigi um lengri tíma hér á landi. Þetta leiðir hana í hveitifyllt bakherbergi nokkurra bakaría víða í Reykjavík. Þar kemst hún m.a. í kynni við risastóra steinmyllu og...
-
1. þáttur: Súrdeigsmóðirin
Hvað er eiginlega þetta fyrirbæri, súr og súrdeigsmóðir, sem eru á allra vörum? Í fyrsta þætti kemst Ragnheiður Maísól að því að elsta súrdeigsmóðir heims er líklega um 4500 ára. En hver er elsta súrdeigsmóðir Íslands? Sjálf veit Ragnheiður Maísól ekkert um uppruna sinnar eigin súrdeigsmóður.…
more -
Súrinn stikla
Útvarpsþáttaröðin Súrinn samanstendur af 6 þáttum og kemur á hlaðvarpsveitur 24. desember.
About this show
Í þúsundir ára hefur mannfólkið bakað ilmandi súrdeigsbrauð í samstarfi við örverur súrdeigsins. En súrdeigsbakstur á Íslandi nær þó varla svo langt aftur? Hver ætli sé elsti súr á Íslandi og hvar er hann að finna? Ragnheiður Maísól Sturludóttir leggur af stað í rannsóknarleiðangur til þess að komast að uppruna súrdeigsins á Íslandi. Við nánari skoðun á þessari litlu deigklessu vakna stórar spurningar um mannfólkið og tengsl okkar við heiminn.
Hosted by
RÚV Hlaðvörp