Tilveran

PODCAST · health

Tilveran

Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman!Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.

  1. 27

    Þegar dauðastundin nálgast

    Í þessum þætti fékk ég Alexandreu Rán Syen, hjúkrunarnema á líknardeild, til þess að tala við mig um starf sitt og hvað það er sem gerist síðustu sólarhringana í lífi einstaklinga. Þátturinn er í boði Venju.

  2. 26

    „Ég hefði átt að trúa eigin tilfinningum“

    Í þessum þætti fékk ég listakonuna Helenu Reynis til þess að tala við mig um listamannalífið, hvaðan hún fær innblástur, hvernig hún kemur sér að verki þegar hún nennir því ekki, andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi fyrrum kærasta og nýlegum fósturmissi.Þátturinn er í boði Venju.

  3. 25

    „Ég hefði átt að trúa eigin tilfinningum“

    Í þessum þætti fékk ég listakonuna Helenu Reynis til þess að tala við mig um listamannalífið, hvaðan hún fær innblástur, hvernig hún kemur sér að verki þegar hún nennir því ekki, andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi fyrrum kærasta og nýlegum fósturmissi. Þátturinn er í boði Venju.

  4. 24

    „Ætlar þú að vera fórnarlamb aðstæðna eða taka ábyrgð?“

    Í þessum þætti fékk ég Ólöfu Helgu Pálsdóttur, körfuboltakonu og Grindvíking með meiru, til þess að ræða við mig um körfuboltaferilinn, brjóstakrabbameinið, skilnaðinn og hvernig það var að þurfa að yfirgefa sinni heimabæ eftir eldumbrot. Einnig ræddum við sjálfseflingu og mikilvægi þess að verða ekki fórnarlamb aðstæðna.

  5. 23

    „Mikill léttir að fá Bipolar-greininguna “

    Í þessum þætti fékk ég Anítu Ósk Georgsdóttur til þess að ræða við mig um Bipolar-greininguna og hvernig henni hefur tekist að fóta sig í lífinu á ný. Aníta Ósk heldur úti samfélagsmiðlinum Hennar heimur á Instagram og TikTok þar sem hún deilir sinni reynslu.

  6. 22

    „Var alla tíð harðákveðin í því að lifa ekki A4 lífi“

    Í þessum þætti fékk ég Ástu Hafþórsdóttur, leikgervahönnuð, til þess að ræða við mig um bransann hérlendis og erlendis, ævintýraþrána sem alltaf hefur blundað í henni og því þegar henni tókst að breyta kerfinu og verða fyrsta einstæða konan hérlendis til þess að gangast undir frjósemismeðferð.

  7. 21

    „Mig langar að skilja eftir mig jákvæð fótspor“

    Í þessum þætti fékk ég Ásthildi Ómaríudóttur, eiganda og framkvæmdastýru framleiðslufyrirtækisins Míósak Multimedia, til þess að ræða við mig um ADHD konur, útvíkkun þægindahringsins, jákvæð líkamsímynd, neikvæð áhrif áfengis, og mikilvægi þess að halda uppi jákvæðri orku.

  8. 20

    „Stundum þurfum við að fá kennara inn í lífið til þess að sýna okkur hvar maður er ekki að standa með sér“

    Í þessum þætti fékk ég Söru Barðdal, heilsumarkþjálfa og eiganda Sjálfsins heilsuseturs, til þess að tala um foreldramissinn, áfallaúrvinnsluna, óheilbrigð sambönd, heilsuferðalagið, tantra, lífsorkuna og hið magnaða meðferðarúrræði sem 9D öndunarferðalagið er.

  9. 19

    „Meðvirkni verður að mestu öll til fyrir tíu ára aldur“

    Í þessum þætti fékk ég Valdimar Þór Svavarsson, eiganda ráðgjafaþjónustunnar Fyrsta skrefið, til þess að ræða við mig um hinar margslungnu hliðar meðvirkni. Valdimar heldur einnig úti hinu vinsæla hlaðvarpi Meðvirknipodcastið.

  10. 18

    „Ekki láta óttann við það óþekkta stoppa þig“

    Í þessum þætti fékk ég Bjargeyju Ingólfsdóttur, Yin Yoga kennara og fararstjóra, til þess að tala við mig um þriðju vaktina, hugræna byrði, heilsubrestinn, tækifæri breytingaskeiðsins, nýtt upphaf, tvíkynhneigð og hinn óútreiknanlega íslenska deitmarkað.

  11. 17

    „Systir mín var myrt“

    Í þessum þætti fékk ég Ragnheiði M Kristjónsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra, til þess að tala við mig um morðið á Áslaugu Perlu systur hennar, foreldramissinn, dauðahræðsluna og baráttuna við matarfíknina.

  12. 16

    „Bróðurmissirinn var erfiðasta lífsreynsla í heimi en jafnframt sú fallegasta“

    Í þessum þætti fékk ég Maríu Kristu Hreiðarsdóttur, eiganda Kristu design, til þess að tala um bróðurmissinn, sinn heilbrigða lífsstíl, áhrifavaldasamfélagið og hvaðan hún hefur allan sinn drifkraft.

  13. 15

    „Ég er með þetta lucky girl syndrome“

    Í þessum þætti fékk ég Írisi Líf Stefánsdóttur, eiganda Accounta bókhaldsþjónustu, til þess að ræða við mig um hugtakið Digital nomad, lucky girl syndromið sem hún segir elta sig, fjáhagslegt frelsi, nískuna og mikilvægi sjálfstrausts.

  14. 14

    „ Það eru forréttindi að fá að vera til“

    Í þessum þætti fékk ég Olgu Björt Þórðardóttur, fjölmiðlakonu og ljósmyndara, til þess að tala um sína áfallasögu, aktivisma, meðvirkni, samskipti og mikilvægi þess að byggja sér upp gott tengslanet.

  15. 13

    „Ég er klassísk ADHD stelpa“

    Í þessum þætti fékk ég Vigdísi Diljá Óskarsdóttur, stjórnanda samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, til að tala við mig um hvernig það er að vera klassísk ADHD-stelpa, álheiminn, starfsferilinn, samfélagsmiðlana, móðurhlutverkið og hversu gott það er að búa á landsbyggðinni.

  16. 12

    „Ég hef sótt öll mín tækifæri sjálf“

    Í þessum þætti fékk ég Berglindi Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðing, markþjálfa og gusumeistara, til þess að tala við mig um tækifærin, alla framtakssemima, breytingaskeiðið, veikindi foreldra, gjaldþrotið, ferðalögin og nýjasta hluta starfsferilsins, stjórnmálin. Berglind heldur úti hinum vinsæla instagramreikning, Lífsgleðinni.

  17. 11

    „Jólin eru fjallganga“

    Í þessum þætti fékk ég Hildi Eir Bolladóttur, sóknarprest í Akureyrarkirkju, til þess að ræða við mig um jól og sorg.

  18. 10

    „Tíðni sjálfsvíga hjá konum er hæst um 60 ára aldur“

    Í þessum þætti fékk ég Halldóru Skúladóttur hjá Kvennaráðum til þess að ræða við mig um breytingaskeiðið, mikilvægi hormónauppbótarmeðferðar, streitu, andlega vanlíðan, sjálfsmildi og það hversu mikilvægt fyrir konur á miðjum aldri er að huga að réttu mataræði og hreyfingu.

  19. 9

    Átti erfitt með að samgleðjast ófrískum konum

    Í þessum þætti ræði ég við Soffíu Dögg Garðarsdóttur, sem heldur úti samfélagsmiðlinum Skreytum hús, um ófrjósemi, foreldraumönnun, langþráð móðurhlutverkið og áhrif þess að vera barn alkóhólista.

  20. 8

    „Svefninn er grunnur að öllu öðru“

    Í þessum þætti ræði ég við Erlu Björnsdóttur, eiganda Betri svefns, um mikilvægi svefns.

  21. 7

    „Dansinn framkallar gleðihormón “

    Í þessum þætti fékk ég Unni Elísabetu Gunnarsdóttur, leikstjóra, sviðshöfund og tónlistarkonu, til þess að ræða við mig um gleðilykla, dans, hugleiðslu, það hvernig við hækkum tíðnina og að hún sér stundum það sem við hin sjáum ekki.

  22. 6

    „Ég er hætt að hata líkama minn“

    Í þessum þætti fékk ég tónlistarkonuna Stínu Ágústsdóttur til þess að tala um tónlistina, veikindin, það hatur sem hún hafði lengi vel á líkama sínum, snúið móðurhlutverkið og mikilvægi þess að elta draumana sína.

  23. 5

    Fróðleiksmolar um breytingaskeiðið

    Í þessum þætti fékk ég Hönnu Lilju Oddgeirsdóttur, eiganda Gyna Medica, til þess að tala um allt sem breytingarskeiðinu viðkemur.

  24. 4

    „Ætla ekki að hugsa; ég hefði átt.. “

    Í þessum þætti fékk ég Kristínu Þórsdóttur, kynlífsmarkþjálfa, til þess að tala um makamissinn, sorgina, kynlífsmarkþjálfun, lífið með ADHD, breytingaskeiðið og mikilvægi þess að rækta ástarsambandið sitt.

  25. 3

    Frá örmögnun til upprisu

    Í þessum þætti fékk ég Önnu Sigurðardóttur, eiganda Samkenndar heilsuseturs, til þess að ræða um örmögnun, barnsmissinn, heilsubrestinn í kjölfarið, líkamlega verki, sjálfsuppbyggingu og mikilvægi samkenndar í eigin garð.

  26. 2

    „Lífið er eins og stórt slönguspil"

    Í þessum þætti fékk ég Guðrúnu Hafþórs, markþjálfa, til þess að tala við mig um veikindi sem hún lenti í vegna myglu, flókið föðursamband, föðurmissinn, breytingaskeiðið og það hversu flókið það getur verið að vera fullorðin manneskja.

  27. 1

    Kynningarþáttur

    Í þessum stutta og krúttlega kynningarþætti fer ég yfir það hvernig hugmyndin að Tilverunni kviknaði og af hverju ég tel hana eiga erindi.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman!Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.

HOSTED BY

Kristborg Bóel Steindórsdóttir

CATEGORIES

URL copied to clipboard!