EPISODE · Feb 9, 2022 · 6 MIN
Ræmurýmið - Office Space
from Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar · host Bókasafn Hafnarfjarðar
Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar. Office Space er óður til hinna vinnandi barna áttunda áratugarins og kolsvört kómedía um dáleiðslu, fyrirtækjakúltúr, ömurlega yfirmenn, síbilandi prentara, sérfræðiþekkingarlausa „sérfræðinga“ og mikilvægi rauðra heftara. Peter, Samir og Michael vinna á andlega dauðri skrifstofu hugbúnaðarfyrirtækis, klæðast hvítum skyrtum og þjást. Peter, að ráði unnustu sinnar, heimsækir dávald í tilraun til að ná taki á kvíða og lífsleiða, en það er upphaf atburðarásar sem endar með ósköpum, sér í lagi fyrir prentara. Meðal leikara eru Ron Livingston, Jennifer Aniston, Stephen Root og Gary Cole. Leikstóri og höfundur er Mike Judge.
NOW PLAYING
Ræmurýmið - Office Space
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
May 12, 2026 ·20m
May 12, 2026 ·56m
May 11, 2026 ·20m
May 10, 2026 ·72m
May 9, 2026 ·60m