EPISODE · May 12, 2023 · 45 MIN
Síðasta lag fyrir myrkur -Blá
from Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar · host Bókasafn Hafnarfjarðar
Síðasta lag fyrir myrkur er... Blá Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með. Blá eftir Maju Lunde, sem segir frá Signe. Hún er komin á sjötugsaldur þegar hún heimsækir æskustöðvarnar í Noregi. Þar blasa við umfangsmiklar virkjunarframkvæmdir, og hún siglir skelkuð á braut til að hitta mann sem hún eitt sinn elskaði, í skútunni sinni, sem heitir Blá – en neðan þilja geymir hún undarlegan farm. Aldarfjórðungi síðar er David á flótta norður eftir Frakklandi með lítilli dóttur sinni. Endalausir þurrkar hafa hrakið þau að heiman þar sem miskunnarlausir eldar geisa. Dag einn finna þau vel falinn bát á eyðibýli langt úti í sveit og ótal spurningar vakna …
NOW PLAYING
Síðasta lag fyrir myrkur -Blá
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
May 14, 2026 ·74m
May 13, 2026 ·25m
May 13, 2026 ·75m
May 13, 2026 ·54m
May 12, 2026 ·20m
May 12, 2026 ·56m